Jökull


Jökull - 01.12.1959, Síða 14

Jökull - 01.12.1959, Síða 14
Myncl 6. Iskambar næst- um fremst í Kötlujökli. — Ice ridges near the snout of Kötlujökull. — Ljósm. J. Eythórsson 10. maí 1959. ann úr stað að hrærast og upp að springa. En um það bil, sem úti voru mjaltir þá tók strax vatnsflóð að koma í þá á, sem fellur næst út staðinn og staðarins tún“ (S.t. s. ísl. IV. bls. 202). Hér líða nokkrar klukkustundir frá því hrær- ingar finnast á Þykkvabæjarklaustri þar til hlaupið nær Alftaveri og líklegt, að jarðhrær- ingar hafi fundizt eitthvað fyrr í Vík. Skýrsla síra Jóns Salómonssonar, skráð í Kerl- ingardal 12. nóvember 1660, byrjar svo: „Anno 1660, þann þriðja nóvember um kvöld- ið móti dagsetri, sást fyrst eldsuppkoma til norð- urs, tilsýndar frá Höfðabrekku, er sú jörð við Mýrdal í Skaftafellssýslu, með langvaranlegum landskjálfta hartnær sem menn meintu heila stund þó stundum yrði nokkur kyrrð á, áður en eldurinn uppgaus. Þar eftir um kvöldið sama dags, þá úti var vanalegur vökutími og menn vildu hvilast, kom fram að Höfðabrekku jökla- gangur með ofurmáta miklum vatnsþunga“ (S.t. s. ísl. IV, bls. 216). Hér verður vart við jarð- skjálfta klukkustund áður en sér til elds og a. m. k. 3 klst. áður en hlaup er kornið niður að Höfðabrekku. I skýrslu klausturhaldaranna Þórðar Þorleifs- sonar og Erlendar Gunnarssonar segir urn gos- ið 172l"m. a.: , „Anno 1721, þann 11. maí-mánaðar, kl. 9 f. m., kom svo mikill jarðskjálfti, að á sumum bæjurn í Mýrdal voru menn ei óhræddir í húsum að vera, við hvern jarðskjálfta einnig vart varð á Síðu, undir Eyjafjöllum og í Fljótshlíð . . . Á sama degi kl. 1 e. m. heyrðust miklir dynkir með stórbrestum, hverjum að fylgdi ógnarlegur eldgangur með rnökk og svælu . . . Kl. 2 kom krapavatnshlaup hastarlega framrennandi með nokkrum jökum að stærð viðlíkt smáeyjum í sæ“. (S.t. s. ísl. IV, bls. 222). Hér líða fimm tímar frá því sterkir jarðskjálftar byrja þar til hlaupið fer fram urn sand. Jón Sigurðsson, sýslumaður að Holti í Mýr- dal, skrifar um gosið 1755: „Anno 1755 spjó Kötlugjá í Mýrdalsjökli, byrjuðust þau upptök föstudaginn þann 7. októbris, lítt fyrir hádegi, með miklum jarð- skjálftum, líkt sem húsum vaggað væri allan þann dag út og eftir komandi nótt, svo margir menn voguðu ei inni í húsum að vera fyrir hræringum jarðarinnar og kvíða fyrir, að húsin mundu detta . . .“ (S.t. s. ísl. IV, bls. 234). Annar heimildarmaður, Jón Guðmundsson prestur í Sólheimaþingum, segir nokkur hús hafa laskazt, svo að þau urðu síðan lítt brúkan- leg, en hann tekur einnig fram, að fólk sem var á ferð úti á Mýrdalssandi hafi ekki fundið jarð- skjálftana (S.t. s. ísl. IV, bls. 247). Ekki verður ráðið af heimildunum, hvenær hlaupið kom fram á sand, annað en það, að það hljóp þenna sama dag, en til gossins sást a. m. k. jafnfljótt og til hlaupsins og er helzt að ráða að komið hafi verið nokkuð fram yfir hádegi þegar það fór fram á sandinn. Um gosið 1823, sem hófst 26. júní, skrifar Sveinn læknir Pálsson, að litlu fyrir og um miðaftansbil fundust í Vík og á Höfðabrekku fyrstu jarðskjálftahræringar, stuttir kippir en snöggir, ei harðari en svo að hrikti í húsum, og þar á eftir hægari, en viðvarandi hræringar, sem þó bráðum hörðnuðu, þangað til um náttmála- leyti (S.t. s. ísl. IV, bls. 268). Jón Jónsson Aust- 12

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.