Jökull - 01.12.1959, Blaðsíða 18
í sambandi við grein þá um Kötlugos, sem
hér fer á undan, eru hér birtar til fróðleiks
nokkrar myndir frá Kötlugosinu 1918 og um-
brotunum í Kötlujökli í sambandi við það gos.
Myndirnar frá 1918 og 1919 eru allar teknar
af Kjartani Guðmundssyni ljósmyndara, sem þá
átti heima í Vík. Tók Kjartan margar myndir
af gosmekkinum meðan á Kötlugosinu stóð, og
eru sumar þeirra svo alkunnar, að ekki er
ástæða til að birta þær hér. En Kjartan fór
einnig tvær ferðir upp á Ivötlusvæðið til að
kanna vegsummerki eftir gosið, þá fyrri 23. júní
1919, þá síðari 12. september sania ár. Skömmu
fyrir dauða sinn gaf Kjartan Jarðfræði- og land-
fræðideild Náttúrugripasafnsins myndir sínar
frá Kötlugosinu. Þótt sumar myndirnar séu ærið
gallaðar tæknilega, veita þær þó mikilsverðar
upplýsingar um gosið 1918 og jökulhlaupið, sem
því var samfara, og því tel ég ástæðu til að
birta þær hér.
____________________________________ ____________
Mynd 8. Séð norður yfir hjarnsvæði Kötlujökuls (Kötíusvæðið) til Kötlukolls eystri. Falljökullinn
efst í Kötlujökli er miðsvæðis á myndinni. Á Kötlusvæðinu er jökullinn umrótaður alveg norður
undir Kötlukoll vestri, en aðalhlaupið hefur farið niður með suðurjaðri Kötlujökuls, meðfram
Huldufjöllum. Mennirnir á myndinni eru Jón Ólafsson, kennari, Vík; Haraldur Einarsson, Kerl-
ingardal og Magnús Jónssón, verzlunarmaður í Vík, en þessir þrír gengu með Kjartani ljósmynd-
ara á jökulinn. — View towards N' over the accumulation area of Kötlujökull (The Katla Area)
ivliich was broken up by the eruption and jökulhlaup in Oct. 1918. The main flood forced its way
down along the north side of Huldufjöll. — Ljósm. K. Guðmundsson 23. júní 1919.
Mynd 9. Mynd tekin á
svipuðum stað og 8. rnynd,
en sýnir glöggar hvar
hlaupið hefur farið niður
syðst í falljöklinum, svo
og að umrót hefur orðið
rétt suðvestur af Vestri-
Kötlukolli, á svipuðum
stað og 25. júní 1955. —
View of the same area as
on Fig. 8, showing more
clearly the tracks of the
jökulhlaup. —
Ljósm. K. Guðmundsson
23. júní 1919.
16