Jökull - 01.12.1959, Page 44
Gígskálin við
Kverkfjöll.
The new
Crater near
Kverkfjöll.
Ljósm. M.
Jóhannsson.
einum stað fundum við færa leið, en engan
veginn greiðfæra. Niðri var hrikalegt umhorfs:
Gnæfandi ishamrar, þar sem gufustrókar þeytt-
ust út um sprungur og glufu. Blágrænt lón var
undir íshömrunum, og virtist sem þar hefði orð-
ið sprengigos í lok umbrotanna, því að gíg-
botninn var þakinn fíngerðum sandi, sem glitr-
aði og tindraði og sýndist gulli blandinn, en
vitanlega var það brennisteinn. Gígbotninn var
150—200 m í þvermál og nokkuð aflangur. Is
var í botni, og sá í toppa á stórum ísbáknum.
Snjólag síðasta vetrar kom hreint og greinilega
fram efst í gígbörmunum, og sýnir það, að um-
brotin hafa orðið síðari hluta vetrar eða snemma
sumars. Gigskálinn var 90—100 m djúp að aust-
an og vestan.
Er við höfðum skoðað gíginn, gengum við
norður á jökulhálsinn vestan Ivverkarinnar.
Sást þá, að austan við gígskálina er ávalur háls
yfir að Kverkinni, og hafði vatn úr gígnum ber-
sýnilega hlaupið eða náð útrás undir hálsinn og
fram í Kverkina, því að jökullinn hafði þver-
sprungið og sigið niður í vatnsrásina.
Eftir hádegi var gengið vestur í Hveradal.
Veður var ljómandi og litadýrð mikil í dalnum.
— Kl. 18.45 var haldið til baka og ekið greitt.
Vorum komin heim i skála á Grímsfjalli kl.
21.30.
Fimmtud. 17. sept. Gott veður og bjart.. Eft-
ir hádegi var farið niður í Grímsvötn til mæl-
inga. Frá þrífæti var ekið beina stefnu á Depil
og lesinn hæðarmælir á 800 m bili. Á Stóra-
Mósa var mæld hæð frá undirstöðu vörðu að
yfirborði á Grímsvatnasléttu. I vor mældist sá
hæðarmunur 14 m, nú 7.45 m. Yfirborðið hafði
hækkað um 6.55 m síðan í júníbyrjun. Loks var
ekið í stefnu á Gríðarhorn og mæld hæð með
800 m millibilum.
Föstud. 18. sept. Haldið heimleiðis kl. 14. í
morgun var þokusúld, en breyttist í muggu og
hríðarveður með 2—3 st. frosti á Háubungu.
Þegar vestar og neðar kom á jökulinn, hlýnaði
og gerði svartaþoku. Kl. 18 stönzuðum við og
töldum okkur vera á móts við Pálsfjall. Enginn
leið var að halda niður jökul, svo að við slóum
tjöldum. Með nóttinni gerði versta veður. SA-
stormur og úrhellisrigning. Allt á floti um
morguninn.
Laugard. 19. sept. Tókum okkur upp í snatri
um 7-leytið, fundum slóðina og gekk greiðlega
niður að hjarnmörkum, en síðan varð óhægara,
því að veður var fúlt og hvasst og skyggni að-
eins 50—100 m. Um hádegi tók að létta, og
komum við niður á jökulsporð kl. 15.45.
Var okkur þar vel fagnað af vinum, sem
höfðu beðið okkar 1 Jökulheimum. Um kvöldið
var þar glatt á hjalla.
Sunnud. 20. sept. var gengið frá skálanum og
áhöldum fyrir veturinn og því næst haldið til
Reykjavíkur.
M. Jóhannsson.
42