Jón á Bægisá - 01.12.2006, Qupperneq 114
Höfundar ogþýðendur
ferðasögu, Die Stimmen von Marrakesch — Aujzeichnungen nach einer Reise (1968) auk margs
konar ritgerða og hugleiðinga. A íslensku kom út Heymarvotturinn - fimmtíu manngerSir
(1994) í þýðingu Gunnars Harðarsonar.
Franz Gíslason (1935-2006, Hringþýðingar, bls. 43, Brúarsmiði í tuttugu dr bls. st'j,Jarðlifiins
forgengileiki bls. 94), kennari og þýðandi. Hann þýddi úr ensku og þýsku; einnig úr íslensku
á þýsku í samvinnu við Wolfgang Schiffer og fleiri.
Gauti Kristmannsson (f. 1960, Fleira fer á milli mála en orðin ein bls. 56, Sagnaþulir og
skrifiarar bls. 70, Hólmgangan bls. 74), dr. phil., lektor í þýðingafræði við bókmenntafræði-
og málvísindaskor Háskóla Islands, forstöðumaður Þýðingaseturs HI frá upphafi (2000).
Gottskálk Þór Jensson (f. 1958, Hólmgangan bls. 74), doktor í klassískum fræðum frá há-
skólanum í Toronto, lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Islands með áherslu á
fornklassískar bókmenntir og bókmenntasögu.
Kristjana Gunnars (Að þýða undirtyllur, bls. 12), fæddist 1948 í Reykjavík, fluttist til
Bandaríkjanna árið 1964 ásamt foreldrum sínum, dr. Gunnari Böðvarssyni og Tove konu
hans, og settist að í Kanada 1969. Kristjana hefur sent frá sér ljóð, smásögur, skáldsögur
og fræðirit. Hún hefur sömuleiðis ritstýrt tveimur safnritum. Meðal verka hennar eru
skáldsögurnar The Prowler (1988), Night Train to Nyköbing (1998), endurminningabókin
The Substance ofForgetting (1992) og ljóðabækurnar Carnival ofLonging (1989) og Exiles
Among You (1996). Nýjustu bækur hennar eru smásagnasafnið Any Day But This (2004)
og Stranger at the Door: Writers and the Act of Writing (2004). Að auki hefur Kristjana
birt enskar þýðingar á íslenskum textum: ljóðum, ritgerðum, smásögum og köflum úr
skáldsögum. Verk hennar hafa verið þýdd á íslensku, frönsku, spænsku og kínversku. Árið
1997 birti Jón á Bœgisá smásögu eftir hana í þýðingu Sólveigar Jónsdóttur.
Hallberg Hallmundsson (f. 1930, Tré segir frá Orfeifi, bls. 80) rithöfundur og þýðandi.
Nýjustu frumsömdu verk hans eru ljóðabókin Þá og þegar (2006) og smásagnasafnið
Nokkurs konar sögur (2005).
Ricardo Herren (f. 1940, Töfralaknirinn Francisco Martin bls. 95) frá Argentínu er sagn-
fræðingur og starfar sem blaðamaður og rithöfundur. Honum er hugleikin saga land-
vinninga og nýlendna Rómönsku Ameríku og hefur hann lagt sig fram við að setja þá sögu
í alþýðlegan búning. Eftir hann liggur fjöldi greina og bóka, m.a. La conquista erótica de
las Indias (Erótískir landvinningar í Indíalöndum, 1991), Dona Marina, la Malinche (Frú
Marina, la Malinche, 1992), Indios carapálidas (Hörundsbjartir indíánar, 1992), La otra
cara de la conquista: Viaje a las Indias maravillosas (Hin hlið landvinninganna: Ferðin til
hinna undraverðu Indíalanda, 1993) og Bolívar (Bolívar, 1994). Kaflinn sem birtist hér er
úr bók hans Hörundsbjartir indíánar. f þeirri bók fjallar Herren um Spánverja sem lentu
112
fást d .fSnydóe/ - TÍMARIT ÞÝÐENDA NR. IO / 2006