Jón á Bægisá - 01.12.2006, Blaðsíða 5
Ritnefnd hefur orðid
Þetta tíunda hefti Jóns á Bœgisá kemur út í skugga andláts eins af stofn-
endum tímaritsins og ritnefndarmanns frá upphafi, Franz Gíslasonar.
Það gefúr auga leið að slíkrar driffjaðrar sem Franz var er sárt saknað og
Ingibjörg Haraldsdóttir ritar um hann minningarorð sem birtast í þessu
hefti. Ingibjörg var reyndar svo ljúf að taka sæti Franz í ritnefndinni og
bjóðum við hin hana velkomna til starfa á ný, því hún hefur áður setið í
nefndinni. Franz hafði einnig gengið frá tveimur greinum fyrir andlát sitt
og birtast þær hér, önnur er stutt yfirlit um störf hans sem þýðanda og
miðlara íslenskra bókmennta á þýska tungu og hin er bráðsmellin grein um
„hringþýðingar" þar sem stórstjörnur stjórnmálanna við lok síðustu aldar
koma við sögu.
Heftið er annars blanda af fræðilegu efni og þýðingum fagurbók-
mennta og má kannski segja að fræðilegum greinum fari fjölgandi. Tvær
stórfróðlegar greinar um þýðingar íslenskra bókmennta á erlend mál
eftir Kristjönu Gunnars og Jón Atla Bjarnason minna okkur á að þessum
þætti íslenskrar bókmenntasögu er allt of lítið sinnt, rétt eins og reyndar
þýðingum á íslensku. En það má ekki gleymast, eins og fræðimaðurinn
kunni Walter Benjamin benti á, að framhaldslíf bókmennta felst í þýðing-
unni; án þýðinga deyr verkið í frummáli sínu og nýtur ekki þeirrar endur-
lífgunar sem hver þýðing er. Sigurður A. Magnússon rekur einnig störf
sín við þýðingar og miðlun íslenskra bókmennta á erlendar tungur svo að
segja má að þungamiðja þessa heftis snúi að þessum þætti hinnar „íslensku
útrásar“ sem reyndar á sér miklu lengri sögu en hin margumtalaða útrás
viðskiptalífsins nú á dögum.
Nokkur merk ljóð eru þýdd hér og hafa þar verið að verki Sigurður A.
Magnússon, Baldur Óskarsson og Hallberg Hallmundsson, og einnig er
gerð tilraun með nýtt form á þýðingu tveggja smásagna, en þar eru birtar
í samsíða dálki athugasemdir sem „tala“ við og um textann sem um er að
ræða. Önnur sagan er eftir Elias Canetti og þar gerir þýðandinn, Gauti
Kristmannsson, sjálfur athugasemdir við textann sem snerta einkum átökin
fá/l á - í DAG HEYRA SÖNGGYÐJURNAR TIL m'n
3