Bændablaðið - 13.05.2015, Side 10

Bændablaðið - 13.05.2015, Side 10
10 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 Fréttir Búfræðideild Landbúnaðar- háskólans er byggð upp á grunni Búnaðarskólans á Hvanneyri sem stofnaður var 1889. Samkvæmt blaðafrásögn var aðalmarkmið skólans að „ kenna sem bezt allan „praktiskan“ verknað“. Einungis einn nemandi sótti um skólavist, Hjörtur Hansson frá Hækingsdal í Kjós, og stundaði hann búnaðarnám sitt á Hvanneyri þann veturinn. Síðan þá hafa fleiri bæst í hópinn og síðustu ár hafa um 30 nemendur hafið nám á hverju hausti í búfræðideild. Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri í Borgarfirði er reistur á grunni öflugrar rannsóknastofnunar og tveggja gróinna menntastofnana á landbúnaðarsviði, Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins (Rala), Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi. LbhÍ tók til starfa í upphafi árs 2005. Á þeim 126 árum sem liðin er frá stofnun búnaðarskóla á Hvanneyri hafa 3.108 búfræðingar útskrifast þaðan og nú í vor bætast 25 fræðingar í hópinn. Nýr stjórnandi á búfræðibraut Ólöf Ósk Guðmundsdóttir er nýr námsbrautarstjóri búfræðibrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands en hún tók við starfinu í janúar síðastliðinn. Ólöf er frá Miðdal í Kjós. Hún er búfræðingur frá Hvanneyri og mun auk þess útskrifast með mastersgráðu í búvísindum í vor. „Í Miðdal er blandað bú með áherslu á mjólkurframleiðslu. Ég hef alltaf tekið þátt í bústörfum hjá foreldrum mínum og einnig tekið fyrir þau hross. Í háskólanáminu við LbhÍ tók ég að mér stundakennslu við búfræðibrautina sem ég hafði mjög gaman af. Þegar ég sá starf brautarstjóra auglýst sá ég þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál, landbúnað og kennslu.“ Ólöf segir að allt nám eigi að þróast með breyttum tímum og er búfræðinámið engin undantekning. Þegar hún tekur við starfinu er eitt af hennar fyrstu verkum að taka þátt í gerð nýrrar námskrár búfræðibrautar. Verið er að leggja lokahönd á námskrána og verður hún tekin í notkun í haust. Ný námskrá samin í samvinnu við landbúnaðinn „Nýja námskráin er unnin af starfsfólki búfræðibrautar í samvinnu við fulltrúa atvinnugreinarinnar. Ástæðan er sú að við viljum hafa námið þannig að útskrifaður búfræðingur uppfylli kröfur í starfsumhverfi landbúnaðarins. Námið er hugsað út frá því hvað búfræðingurinn á að fá út úr náminu sem getur nýst honum í starfi. Við erum að sérhæfa námið meira með því að breyta forkröfum. Gerð er krafa um að nemendur sem koma hingað á Hvanneyri séu búnir með ákveðna grunnáfanga í framhaldsskóla, m.a. bókfærslu, efnafræði og líffræði. Þetta er gert svo nemendur geti valið fleiri áfanga sem liggja á þeirra áhugasviði á meðan þeir stunda námið. Við vorum í raun að uppfæra áfanganna ef svo er hægt að segja, við bjóðum upp á nýja áfanga í markaðsvitund og gæðastýringu, áætlanagerð í búskap og ferðaþjónustu. Þá verður búfjárræktarfögum fjölgað og meiri áhersla á verklega kennslu. Sérhæfður áfangi Boðið verður upp á sérhæfða bútækniáfanga um landbúnaðar- byggingar, heilfóðurkerfi og mjaltaþjóna, og áfram verður boðið upp á fjölbreytta áfanga í hrossarækt, m.a. nýjan áfanga um fortamningar á unghestum.“ Uppbyggingu námsins verður breytt á þá leið að kennsla fer fram á stuttönnum og námið verður þá í heild átta stuttannir á tveimur árum. „Það þýðir sjö vikna kennslulota og próf í lok hverrar stuttannar. Á seinni hluta fyrsta árs fara nemendur í námsdvöl á kennslubú en skólinn er í samstarfi við námsdvalarbændur um allt land. Stuttannakerfið er notað í háskóladeildinni við LbhÍ og hefur reynst vel. Nemendur geta einbeitt sér að færri fögum í einu.“ Færri hafa komist að en vilja Búfræðinámið er vinsælt og undanfarin ár hafa færri komist að en vilja. Flestir nemendur hafa reynslu af bústörfum og allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á landbúnaði. „Ég er viss um að langflestir Íslendingar vilji hafa öflugan landbúnað hér á landi og þá þurfum við að halda áfram að mennta fólk sem stefnir í fjölbreyttan landbúnað. Menntun á að kallast á við þarfir atvinnugreinarinnar og með nýrri og glæsilegri námskrá, sem unnin er í samstarfi við fagnefnd búfræðinnar og hefur verið kynnt á Búnaðarþingi, fyrir Samtökum ungra bænda og starfsmönnun Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins trúi ég að námið verði áfram öflugt og að búfræðingar framtíðarinnar komi vel undirbúnir inn í starfsumhverfi landbúnaðarins.“ /BSS Nú eru 126 ár liðin frá stofnun búnaðarskóla á Hvanneyri: Alls hafa útskrifast þaðan 3.108 búfræðingar – Í vor bætast 25 í hópinn hjá Landbúnaðarháskóla Íslands Ólöf Ósk Guðmundsdóttir er nýr námsbrautarstjóri búfræðibrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands. Mynd / BSS Frá Hvanneyri. Mynd / BBL Matís og Landbúnaðarháskóli Íslands ætla í samstarf um gerð kennsluefnis og námskeiða á netinu fyrir smáframleiðendur kindakjöts. Fullvinnsla á kindakjöti heima á sveitabæjum og hjá öðrum smáframleiðendum mun líklega fara vaxandi á næstu árum. Tekjur bænda af heimavinnslu kindakjöts gætu aukist. Ef vel tekst til mun verkefnið stuðla að vöruþróun og framleiðslu á nýjum vörum. Á næstu árum verður þess einnig krafist að framleiðendur geti sýnt fram að þeir hafi faglega þekkingu og reynslu til að geta framleitt öruggar og góðar vörur. Það er líka lykillinn að góðum árangri. Einnig verða gerðar strangari kröfur um öryggi og magn aðskotaefna t.d. í reyktu kjöti. Matís og LBHÍ hafa nýlega fengið styrk af þróunarfé sauðfjárræktar til að gera kennsluefni um hefðbundnar og „nýjar“ vinnsluaðferðir og setja á netið. Það verður opið öllum áhugasömum. Smáframleiðendum í úrvinnslu á kindakjöti verður boðin leiðsögn og gefinn kostur á að taka próf í mismunandi þáttum sem sýnir að þeir hafi þá kunnáttu sem krafist er. Þannig geta bændur og aðrir smáframleiðendur eða aðilar sem hafa áhuga á úrvinnslu á kindakjöti sótt sér þekkingu og þjálfun á netinu og með því að sækja námskeið og taka próf sem staðfesta tilskilda kunnáttu. Þannig er hægt að tryggja rétt vinnubrögð. Þjálfunin er jafnframt hvatning til vöruþróunar og auðveldar viðkomandi aðilum að sækja um starfsleyfi og stunda innra eftirlit til að tryggja bæði gæði og öryggi afurðanna. Námskeiðin munu einnig standa nemendum í framhaldsskólum til boða. Þannig getur ungt fólk sem tengist smáframleiðslu og úrvinnslu á kindakjöti einnig aflað sér þekkingar og færni. UNA skincare hlaut viðurkenningu fyrir bestu markaðs- og aðgerða- áætlun í útflutnings verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur á ársfundi Íslandsstofu. UNA skincare húðvörurnar, komu fyrst á markað árið 2012. Rannsóknar- og þróunarvinna vörulínunnar fór fram í náinni samvinnu við Matís, bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. UNA skincare húðvörurnar innihalda lífvirk efni sem unnin eru úr íslenskum sjávarþörungum en starfsmenn fyrirtækisins hafa þróað aðferð til að einangra og framleiða virku efnin. Aðferðin tryggir hámarksvirkni og hreinleika efnanna og niðurstöður vísindarannsókna staðfesta að vörurnar hafa jákvæð áhrif á húðina. /VH Rannsóknir og þróun: UNA skincare fær viðurkenningu Bændablaðið Næsta blað kemur út 28. maí Matís og Landbúnaðarháskóli Íslands: Í samstarf um gerð kennsluefnis – og námskeiða á netinu fyrir smáframleiðendur

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.