Bændablaðið - 13.05.2015, Page 14

Bændablaðið - 13.05.2015, Page 14
14 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 Fréttir Kuldatíð setur strik í reikninginn við sauðburð norðanlands Sauðburður er að komast á skrið á flestum bæjum í Suður- Þingeyjarsýslu þessa dagana. Þetta er að fara af stað hjá flestum þessa daga og verður líklega komið á fullt alls staðar um helgina. Á Litlu-Reykjum í Reykjahverfi og Auðnum í Laxárdal hófst burður þó fyrr en víðast hvar á þessum slóðum. Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson á Húsavík heimsótti fyrrnefnda tvo bæi á dögunum og tók m.a. myndir af forystuánum báðum á bænum sem hann sendi Bændablaðinu. „Það vildi svo ótrúlega til að þær voru báðar að ganga daginn sem bændur á Litlu-Reykjum voru að sæða. Þær skiluðu fimm lömbum úr sæðingunni,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði að ágætt hljóð hafi verið í bændum á Litlu-Reykjum. Sauðburður hafði farið ágætlega af stað og voru í kringum 70 ær bornar strax 5. maí. Bændur höfðu þó áhyggjur af tíðarfarinu en kalt er hér norðan heiða þessa daga og ekki útlit fyrir að draga fari úr kuldum fyrr en eftir miðja þessa viku. Á Auðnum var sauðburður að fara af stað fyrir alvöru og voru í kringum 30 ær bornar. Mikil litagleði er í ræktuninni þar á bæ. Var Benedikt Hrólfur Jónsson, bóndi á Auðnum, afar sáttur við litaúrvalið hingað til. Hann hafði þó þungar áhyggjur af veðrinu og sá fram á mikið plássleysi í fjárhúsunum ef ekki væri hægt að setja út kindur á næstu dögum. Þá var sauðburður rétt að hefjast á Syðri-Sandhólum og víðar í Suður- Þingeyjarsýslu. /HKr./AJH Benedikt Hrólfur Jónsson, bóndi á Auðnum, að veita burðaraðstoð. Hilmar Kári Þráinsson, bóndi á Litlu-Reykjum, með forystulömb. Svona var umhorfs í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu hinn 6. maí síðastliðinn. Myndir / Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson FRÁBÆR FERÐ EFTIR FYRRI SLÁTT! HEIMSMEISTARMÓT ÍSLENSKA HESTSINS 2015 2.-10. ÁGÚST Ferð á HM í Herning í Danmörku þar sem flogið er til Hamborgar með Icelandair. Fararstjóri er Siggi Sæm fyrrum landsliðseinvaldur sem segir sögur og spáir í spilin. NÁNAR Á UU.IS • HEIMSÓKN Á ÍSLENSKA HESTABÚGARÐINN VINDHÓLA Í ÚTJAÐRI HAMBORG • GIST Á SVEITAHÓTELI Í SCHLESWIG KVÖLD- OG MORGUNNMATUR INNIFALINN • VÍKINGASAFNIÐ VIKING MUSEUM HAITHABU HEIMSÓTT • KOMIÐ TIL HERNING 3. ÁGÚST OG GIST Á SCANDIC REGINA HÓTELINU 3.-10. ÁGÚST • FARARSTJÓRI SIGURÐUR SÆMUNDSSON VERÐ FRÁ 259.000 KR Á MANN TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI Fjölskylduvænt hótel í miðbæ Herning um 2,5 km frá mótssvæðinu. Góðar samgöngur verða verða frá Herning yfir á mótssvæðið. Varmadælur Besta loft í loft dæla sem SP í Svíþjóð hefur prófað Hvammsdal 4, 190 Vogar. Sími: 546 9500 Gsm: 892 8030. www.lofttaekni.is INVERTER SYSTEM Sparnaðar A +++ Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.