Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 fjölga gestum yfir vetrartímann. Það hefur tekist ágætlega þannig að ekki er ástæða til annars en bjartsýni,“ segja þau Guðný og Karl. Þau bæta við að með því að bjóða upp á beint flug til Akureyrar opnist miklir möguleikar bæði fyrir gistihlutann og ferðaskrifstofuna. Samstarf við kanadíska ferðaskrifstofu Lamb Inn fékk á liðnu ári ferðaskrifstofuleyfi og vænta eigendur mikils af því, m.a. er stefnt að auknu samstarfi við erlendar ferðaskrifstofur. Í fyrravor dvaldi hópur kanadískra bænda á Öngulsstöðum, en Karl komst í samband við ferðaskrifstofu í Ontario sem skipuleggur bændaferðir. „Ég sendi tölvupóst út til þeirra og lýsti í stuttu máli því sem í boði er hjá okkur, fékk svar um hæl þar sem fram kom að mönnum litist vel á og er skemmst frá því að segja að hingað kom hópur kanadískra bænda og dvaldi á Norðurlandi þrjá daga. Allir voru himinlifandi með ferðina, höfðu gaman af að kynnast íslenskum landbúnaði, landi og þjóð,“ segir Karl. Annar hópur Kanadamanna kom síðastliðið haust og von er á þeim þriðja nú í lok maí. „Við höfum svo sett saman glæsilega bændaferð til Kanada í samvinnu við þessa sömu ferðaskrifstofu í haust,“ segir hann, en hægt er að nálgast upplýsingar um hana á vefsíðu Lamb Inn. Ferðin verður frá 12.–18. september, flogið til Toronto og ferðast um Ontario- fylkið. Vilja auka afþreygingu á staðnum Til stendur að auka afþreyingu þannig að fólk hafi eitthvað við að vera á meðan það dvelur á staðnum. Göngustígar hafa verið lagðir í næsta nágrenni og gestum gefst kostur á að leigja hjól og bruna um næsta nágrenni hjólandi. Þá eru uppi ýmsar hugmyndir með nýtingu á hlöðu og ýmsar afþreyingarhugmyndir eru uppi á borðum. Með Öngulsstöðum 3 fylgdi gróðurhús þar sem þegar er hafin rækt á blómum og matjurtum. „Okkar stefna er að rækta sem allra mest af því sem nýtt er heima við og sækja það sem þarf um eins skamman veg og unnt er,“ segir Guðný. Matsalurinn er rúmgóður og í takt við nafn staðarins sérhæfa eigendur sig í lambakjöti. Einkennisrétturinn er hefðbundið íslenskt lambalæri. Á liðnum vetri var tvívegis efnt til kótelettukvölda og féllu þau vel í kramið. Gamli bærinn Gamli bærinn á Önguls- stöðum er merkilegur í byggingasögulegu tilliti, en hann er einstakt vitni um byggingarstíl 19. aldar þegar fólk til sveita aflagði torfbæi og byggði ný hús. Jóhannes Geir og Ragnheiður hafa undanfarin ár unnið að því að byggja húsið upp og viðhalda byggingarsögu og menningararfi til framtíðar. Norðurhlutinn er nú sem safn og merki um þann búskap sem var í húsinu, þar hafa verið haldnar veislur og tekið á móti litlum og stórum hópum í heimsókn og mat eða fordrykki. Innviðir hússins eru ótrúlega heillegir og hafa staðist tímans tönn. Í Gamla bænum var að finna helsta samkomusal sveitarinnar og var hann í daglegu tali kallaður Leikhúsið. Þar voru sett upp leikrit, haldnar veislur og einnig fundir, m.a. var einn af stofnfundum KEA haldinn þar. „Í september ætlum við að endurvekja stemninguna í Leikhúsinu, höfum fengið Elvar Loga og Marsibil í Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði til að koma og sýna hér tvo einleiki; Gretti og Gísla sögu Súrssonar 18. og 19. september,“ segir Karl og bætir við að hann vonist til að hægt verði að bjóða upp á meira af slíkum menningarviðburðum í Leikhúsinu í framtíðinni. Þeir bjóða hryssurnar velkomnar! GUNNAR ARNARSON EHF HROSSARÆKT - SALA - ÚTFLUTNINGUR Gaumur Aðaleinkunn: 8,69 Bygging: 8,13 Hæfileikar: 9,05 My nd : Þ ór un n Ey vin ds dó tti r Frá Auðsholtshjáleigu IS2001187053 Hrafnar Aðaleinkunn: 8,46 Bygging: 8,08 Hæfileikar: 8,72 Frá Auðsholtshjáleigu IS2007187017 Sveinn-Hervar Aðaleinkunn: 8,25 Bygging: 8,06 Hæfileikar: 8,38 Frá Þúfu IS1994184553 Gári Aðaleinkunn: 8,63 Bygging: 8,87 Hæfileikar: 8,47 My nd : G ab rie le Bo ise lle Frá Auðsholtshjáleigu IS1998187054 Kristall Aðaleinkunn: 8,31 Bygging: 8,40 Hæfileikar: 8,24 My nd : K ris tb jö rg E yv in ds dó tti r Frá Auðsholtshjáleigu IS2001187053 Toppur Aðaleinkunn: 8,49 Bygging: 8,48 Hæfileikar: 8,50 My nd : K ris tb jö rg E yv in ds dó tti r Frá Auðsholtshjáleigu IS2007187018 Gígjar Aðaleinkunn: 8,46 Bygging: 7,98 Hæfileikar: 8,78 Frá Auðsholtshjáleigu IS2000187051 Sproti Aðaleinkunn: 8,31 Bygging: 8,50 Hæfileikar: 8,18 My nd : J en s E in ar ss on Frá Enni IS2008158455 Vals Aðaleinkunn: 8,38 Bygging: 8,29 Hæfileikar: 8,44 My nd : K ris tb jö rg E yv in ds dó tti r Frá Auðsholtshjáleigu IS2009187015 Stóðhestarnir okkar eru farnir að taka á móti hryssum! Frábærir stóðhestar sem margir hverjir hafa sannað sig sem úrvals ræktunargripir. Nánari upplýsingar um notkun þeirra má nálgast á www.horseexport.is, í síma 8920344 / 5573788 eða e-mail: gunnara@simnet.is Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Dreift í 32 þúsund eintökum á 395 dreifingarstaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.