Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 Stór hluti þeirrar verktækni sem breytt hefur búnaðarþekkingu í áþreifanlegar afurðir íslensks landbúnaðar er erlendur að uppruna. Handverkfæri, dráttarvélar, mjaltavélar, girðingaefni, tölvur o.fl. búnaður sem er hinn sami hvort búið er vestur í Dölum eða uppi í Dalarna í Svíþjóð eða vestur í Wisconsin. Þekking og tækni henni til hagnýtingar eiga sér sjaldnast landamæri. Talað er um „technological transfer“ – tækniflæði – sem eina helstu forsendu framleiðnivaxtar atvinnuveganna. Íslenskur landbúnaður á tækniflæði margt að þakka eins og sjá má þegar rölt er um hina nýju sýningu Landbúnaðarsafns. En Íslendingar hafa líka hugsað sitt: Bæði hafa landsmenn lagað erlenda verkþekkingu og erlend verkfæri að íslenskum aðstæðum en líka fundið upp áhöld og aðferðir. Í sumum tilvikum hafa lausnir verið staðbundnar, hafa gagnast einstökum búum, en í öðrum tilvikum hafa þær komið að almennum notum. Hvað snertir varðveislu og kynningu eldri verkhátta er íslensk hönnun áhalda, verkfæra og véla sérlega mikilvægt viðfangsefni. Eftir föngum hefur Landbúnaðarsafn reynt að gera því skil, en miklu meira þarf að gera, helst með „átaki“. Með þessari grein fylgja myndir til þess að minna á nokkur dæmi um það sem íslenskt hugvit, með reynslu og rannsóknum, hefur lagt til mótunar lausna á sviði landbúnaðar. Vitanlega reynir nokkuð á skilgreiningar og flokkun en látum það liggja á milli hluta um sinn. Hér er fyrst og fremst verið að vekja athygli á viðfangsefninu: Útihús tókum við snemma að laga að hérlendum aðstæðum. Sé aðeins litið til byltingartímans stóra – 20. aldar – ræður íslensk hönnun þar ríkjum. Þeim mikilvæga þætti í þróunarsögu þjóðarinnar hefur verið lítill gaumur gefinn. Ræktunarhætti kenndi reynsla okkur að laga þyrfti að íslenskum aðstæðum. Þúfurnar rændu vinnutíma verkafólks um aldir. Þegar stríðið við þær hófst fyrir alvöru var gripið til lausnar sem sennilega er séríslensk – þaksléttan. Sama á við um framræslu með vélgröfum. Þegar til urðu hin einkennandi framræslukerfi með skurðum, sem ýmislegt hefur verið sagt um en eru með sínum hætti gömlu beðaslétturnar að megingerð. Baráttan við sandfok og jarðvegseyðingu byggðist fljótlega á aðferðum sérstaklega löguðum að íslenskum aðstæðum að ég nú ekki gleymi matjurta- og blómarækt við jarðvarma . . . Áhöld og verkfæri hafa fjölmörg orðið til í höndum íslenskra hugvitsmanna. Ætli megi ekki telja undirristuspaðann í þeim flokki, taðkvörnina, grindarljáinn og síðar sjálfa súgþurrkunartæknina, sem að verulegu marki varð til árangurs hér á landi vegna aðlögunar erlendra frumhugmynda. Já, af nógu er að taka. En þróun sem þessi er ekki séríslensk, fjarri því. „Funi kveikist af funa“, segir í Hávamálum. Þá kallar tiltekin þörf gjarnan fram svipaðar lausnir á fleiri og ótengdum stöðum. Þess vegna má deila um það að hvaða marki hugmynd og hönnun telst vera íslensk. En öll eru þessi dæmi hluti af íslenskri þjóðmenningu og varðveisluverð af þeim sökum, brot af þróun samfélags og hugmyndaheims frá fábrotnu þjóðlífi við takmörkuð efni til okkar daga sem ættu að geta verið allsnægtadagar bæði að efni og anda. Bjarni Guðmundsson. Í tilefni þess að íslenska safnadaginn ber að þessu sinni upp á 17. maí, þjóðhátíðardag Norðmanna, verður aðaldagskrá safnsins tileinkuð norskum áhrifum á íslenskan landbúnað: 1. kl. 13.30 mun Bjarni Guðmundsson halda erindi í Landbúnaðarsafni um norsk áhrif á íslenskan landbúnað, einkum á 19. og 20. öld. Fjallað verður um hugmyndir, þekkingu, aðföng, áhöld og verkfæri sem bárust frá Noregi til Íslands og hvernig þau höfðu á framvindu íslensks landbúnaðar. 2. Að erindi Bjarna loknu verður stutt sögustund við Skerpiplóginn sem nú verður „afhjúpaður“ við safnið. Haukur Júlíusson og fleiri munu þar segja nokkrar Skerpiplógssögur. Aðrir fyrrverandi Skerpiplógsmenn eru sérstaklega velkomnir til stundarinnar. Landbúnaðarsafn verður opið kl. 13–16 og leiðsögn veitt eftir föngum. Ullarselið verður opið á sama tíma. Aðgangur að Landbúnaðar- safninu á Safnadegi er ókeypis en frjáls framlög þegin. Það er ótölulega margt sem íslenskur landbúnaður hefur sótt til Noregs. Í öndverðu fluttu landnámsmenn með sér búhætti og áhöld úr heimabyggðum sínum. Á 19. öld tóku Íslendingar að sækja búnaðarnám þar. Að námi loknu höfðu þeir gjarnan með sér heim áhöld og verkfæri sem þeir höfðu kynnst ytra, er urðu vel þekkt hérlendis, t.d. plóga, herfi og kerrur. Minna má á Noregssaltpéturinn og Eylandsljáina, en steininn tók fyrst úr er hingað tóku að berast Gnýblásarar (høykanon), vélkvíslar (silosvans) og vélvögur (høysvans), að ekki gleymist pökkunarvél fyrir rúllubagga. Íslenska „kynbótavélin“ fyrir búfé á sér sterkar norskar rætur, dýralækningar sömuleiðis og eitt og annað hafa Íslendingar sótt í norska landbúnaðarpólitík. Allt breytti þetta landbúnaðinum svo um munaði. Þá má minna á heitar umræður um norska nautgripi til kynbóta er áformað var að flytja til Íslands um síðustu aldamót. Um þetta og fleira mun Bjarni fjalla í erindi sínu. Skerpiplógurinn kom fram um miðja síðustu öld á Jaðrinum í Noregi, því mikla landbúnaðarhéraði. Hann vakti gríðarlega athygli og átti eftir að breyta miklu í landnámi og nýrækt þar í sveitum. Plógurinn barst til Íslands fyrir tilstilli Árna G. Eylands, og öðlaðist þegar miklar vinsældir ræktunarmanna sem þá stóðu í miklum stórræðum um allt land; voru að brjóta nýframræstar mýrar til landnáms með túnrækt. En atvikin höguðu því svo að Skerpiplógurinn hvarf úr ræktunarstarfinu svo skyndilega sem dögg víkur undan morgunsól. Hvanneyri 17. maí: Íslenski safnadagurinn í Landbúnaðarsafninu Landbúnaðarsafn Íslands - 3. grein: Íslenskt verksvit – Íslensk hönnun Fjárréttir, eins og Reynisrétt í Innri-Akraneshreppi hinum forna, eru dæmi um þjóðlegt verklag. Mynd / Skessuhorn Rafrokkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.