Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 Helstu nytjaplöntur heimsins Kassavarót er líklega sú af helstu nytjaplöntum heims sem Íslendingar þekkja minnst nema helst sem tapíókamjöl sem meðal annars var vinsælt í búðingum á sjöunda áratug síðustu aldar. Engu að síður er kassava í fimmta sæti yfir mest nýttu plöntu í heimi. Árið 2013 nam heimsframleiðsla á kassava tæpum 277 milljónum tonna og hafði aukist um 21 milljón tonn frá árinu áður samkvæmt því sem segir á heimasíðu Alþjóðamatvælastofnunarinnar (FAO). Spár gera ráð fyrir að framleiðslan eigi eftir að aukast enn meira í framtíðinni. Ekki síst vegna aukins framboðs á erfðabreyttu kassava en til skamms tíma hafa rannsóknir og framræktun á plöntunni verið takmarkaðar. Mest ræktað í Afríku sunnan Sahara Þrátt fyrir að mikið sé ræktað af rótinni í Asíu og Suður-Ameríku er mest ræktað af kassava í Afríku sunnan Sahara. Framleiðsla í Nígeríu nam 53 milljónum tonna árið 2013, sama ár voru rúm 30 milljón tonn ræktuð í Taílandi, 24 milljón í Indónesíu og 21,5 í Brasilíu. Næst á eftir fylgja Afríkuríki eins og Kongó, Angóla, Gana og Mósambík með framleiðslu sem er milli 10 og 16 milljón tonn hvert. Mikilvægi kassava í ríkjum sunnan Afríku er slíkt að í Gana er plantan stærstur hluti af allri landbúnaðarframleiðslunni og yfir 30% af fæðu sem neytt er í landinu. Gana er jafnframt stærsti útflytjandi kassava í Afríku. Nafn plöntunnar á máli innfæddra þar er agbeli og þýðir það er líf. Meðaluppskera af kassava á hektara er nálægt 13 tonnum en á Indlandi hefur hún farið í 35 tonn. Taíland, Víetnam og Indónesía flytja mest út af kassava og afurðum sem unnar eru úr plöntunni en í Afríkulöndunum er mest af henni neytt heimafyrir enda gríðarlega mikilvæg matjurt og uppspretta næringarefna þar. Fátækrafæða Nafnið kassava er spænskt að uppruna en víða um heim gengur plantan undir heitunum manihot eða tapioka en á latínu kallast hún Manihot esculenta. Innan Manihot ættkvíslarinnar teljast tæplega hundrað tegundir sem eru smáplöntur, runnar og klifurjurtir og eiga allar það sameiginlegt að vaxa upp af stórum rótarhnúð. Staðbrigði kassavarótarinnar skipta þúsundum. Stór hluti ræktunar á rótinni fer fram á smábýlum og oftar en ekki sjá konur um ræktunina með frumstæðum verkfærum. Talið er að kassava sé undirstöðufæða tæplega eins milljarðs fólks á fátækustu hitabeltissvæðum heims. Plantan dafnar vel við margs konar skilyrði og gerir litlar kröfur til jarðvegs. Hún þrífst bæði í röku og þurru loftslagi en þolir ekki að hitinn fari niður fyrir frostmark. Kjöraðstæður fyrir plöntuna liggja yfir miðbaug milli 30. breiddargráðu suður og norður þar sem árúrkoma er um 50 millimetrar. Við slíkar aðstæður vex kassava vel allt frá fjöruborði og upp í 2000 metra hæð yfir sjávarmáli. Lengst af hefur verið litið á rótina sem fátækrafæðu en þar sem hún er harðgerð og þurrkþolin hefur hún oft komið í veg fyrir hungurdauða milljóna manna á þurrkatímabilum þar sem enga aðra fæðu hefur verið að fá. Útlit og ræktun Plantan er fjölær runni með trékenndum stöngli og nær fimm metra hæð. Blöðin heilrennd og fimm til níu fingruð og standa á Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Stór hluti ræktunar á rótinni fer fram á smábýlum og oftar en ekki sjá konur um ræktunina. Hitabeltisrótin Kassava
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.