Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015 sorghum eða milo á ensku, jola á indversku. Nafnið dúrra er komið úr egypsku. Hita- og þurrkþolin Plantan getur ná fullum þroska á 90 dögum við góð skilyrði og gefið uppskeru þrisvar á ári. Plantan er einstaklega hita- og þurrkþolin en á sama tíma stendur hún af sér úrhellisrigningu og vatnssósa jarðveg tímabundið. Dúrra gerir litlar kröfur til jarðvegs aðrar en að hann hafi náð 17° á Celsíus fyrir sáningu og plantan þolir að talsvert af salti sé í jarðveginum. Dúrra er yfirleitt ræktuð af fræ og þurfa fræin um mánaðar dvalartíma frá því þeim er safnað af axinu þar til þau spíra. Einnig er hægt að fjölga plöntunni með stöngulgræðlingum við góðar aðstæður. Kjörhitastig er 30° C og æskileg úrkoma á ári 500 til 600 millimetrar. Verulega dregur úr vexti plöntunnar fari hitastig niður fyrir 17° og hún drepst fari hitinn niður að frostmarki. Villt dúrra blómstrar við daglengd undir tólf klukkustundum en tegundir í ræktun eru ekki eins viðkvæmar fyrir daglengd. Plantan þrífst í jarðvegi með sýrustig á bilinu pH 5,0 til 8,5. Dúrra þykir jarðvegsbætandi og oft fyrsta plantan sem er sáð í jarðveg sem er verið að brjóta til ræktunar. Ástæða þess er meðal annars að plantan gefur frá sér efni sem er vaxtarhamlandi fyrir annan gróður og nýtist henni í samkeppninni um vaxtarrými og næringarefni. Efnið veldur því einnig að dúrra er ekki góð til samplöntunar. Efnið fælir einnig frá skordýr en sjúkdómar af völdum sveppa og vírusa geta valdið umtalsverðu uppskerutjóni. Hundruð yrkja og staðbrigða Til ættkvíslarinnar Sorghum teljast um 30 tegundir og hundruð yrkja og staðbrigða sem geta frjóvgast innbyrðis og gera greiningu í tegundir því erfiða. Villt dúrra er kölluð S. arundinaceum til aðgreiningar frá ræktunartegundinni. Til að einfalda flokkunina er dúrru í ræktun skipt í fjóra undirflokka. Korndúrru sem er aðallega mulin í mjöl, grasdúrru sem er notuð í skeppnufóður, sætdúrru í sýrópsgerð og sópdúrru sem eins og nafnið gefur til kynna er notuð í kústa og sópa. Vegna fjölbreytileikans innan tegundarinnar vex dúrra víða í heita- og heittempraða beltinu, milli fertugstu breiddargráðu norður og suður. Mannamatur og dýrafóður Í Afríku og Asíu er dúrra aðallega nýtt sem hráefni í mjölgrauta, flatbrauð og til að brugga úr en í Bandaríkjunum sem fóður fyrir nautgripi og hænsni. Áður fyrr var unnið sýróp í stöngli plöntunnar í suðurríkjum Bandaríkjanna en slíkt er fáséð í dag. Ómalað korn er notað til brauðgerðar, í kúskús og súpur í Arabalöndunum. Í Mið- og Suður Ameríku er bakað tortillabrauð í dúrrumjöli. Einn af kostum dúrrukorns er að það er laust við glúten og því vænlegur kostur fyrir þá sem eru með glútenofnæmi. Hægt er að poppa dúrrukorn líkt og maís. Víðast þar sem dúrra er ræktuð eru bruggaðir áfengir drykkir úr plöntunni. Algengasti drykkurinn er dökkur bjór sem er 3 til 8% af styrkleika. Í Kína er bruggað rótsterkt eldvatn sem logar sé borinn að því eldur og kallast mao- tai og til siðs að skála í drykknum við hátíðleg tækifæri. Þegar Nixon Bandaríkjaforseti heimsótti Kína var honum ráðlagt af ráðgjöfum sínum að sleppa drykknum. Nixon lét ráðlegginguna sem vind um eyru þjóta og skálaði við hvern þann kínverska ráðamann sem lyfti glasi í átt að honum í hátíðarkvöldverði. Sagan segir að forsetinn hafi verið orðinn ansi þvoglumæltur og reikull í spori þegar hann yfirgaf samsætið. Í annarri sögu af Nixon og dúrruspíra segir að eftir að heim var komið hafi hann kallað dóttur sína inn í eldhús í Hvíta húsinu og ætlað að sýna henni hvernig vökvinn logaði. Nixon hellti áfenginu í skál og kveikti í en ekki vildi betur til en að skálinn sprakk og spírinn rann logandi yfir eldhúsborðið þannig að brunavarnakerfið fór í gang. Sagan hefur aldrei fengist staðfest. Plantan er sögð rík af B-vítamínum og ýmsum steinefnum. Byggingarefni og eldiviður Stönglar og blöð plöntunnar eru notuð sem byggingarefni í hús, eldivið, sópa, girðingarefni og til að vefa úr mottur, körfur og ílát og búa til skrautmuni. Dúrru er getið sem lækningajurtar í íslömskum miðaldatexta. Rannsóknir benda til að nýta megi plöntuna til framleiðslu á lífdísil. Náttúrulegur uppruni og útbreiðsla Uppruni plöntunnar er á reiki enda ekki mikið um fornminjar sem sýna fram á ræktun hennar. Flest bendir til að plantan hafi breiðst út frá svæðum í Norðaustur-Afríku þar sem í dag eru Súdan og Eþíópía með úlfaldalestum Araba. Fjöldi afbrigða og staðbrigða er mestur í Afríku og það bendir til að plantan hafi verið lengi í ræktun þar. Talið er að nytjar á dúrru nái allt aftur til ársins 6000 fyrir Krist. Elstu minjar um nytjar á dúrru eru frá um 2000 fyrir Krist og koma frá Indlandi. Á leiðinni frá Afríku til Indland skaut dúrra rótum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku þar sem Rómverjar ræktuðu plöntuna fyrir heimsveldi sitt. Frá Indlandi barst plantan til Kína og annarra landa í Asíu. Til Vesturheims barst dúrra með þrælum frá Afríku. Hægt er að poppa dúrrukorn líkt og maís. Víðast þar sem dúrra er ræktuð eru bruggaðir áfengir drykkir úr plöntunni. Algengasti drykkurinn er dökkur bjór sem er 3 til 8% af styrkleika. kjarni fræjanna er hvítur. Úrval garðtraktora ÞÓR HF Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 -18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.