Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015 Meðan við þreyjum þorrann og góuna í misjöfnum veðrum og vindum er gott að ylja sér við tilhugsun um ferðalög og gönguferðir á sumri komanda. Það léttir lundina að hafa eitthvað að hlakka til og þótt við höfum flest vitað það fyrir, þá hefur nú verið fundin sönnun þess að útivist og fjallgöngur gera okkur heilbrigðari og sælli á sál og líkama. Ferska loftið og náttúran eru heilsulindir. Ferðafélagið Norðurslóð skipu- leggur gönguferðir minnst einu sinni í mánuði en félagið starfar á svæðinu frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð. Fyrsta ganga ársins var farin um Rauðanes í Þistilfirði um miðjan janúar í sólskini og fegursta vetrarveðri. Þá var gönguskíðaferð á Hólaheiði í febrúar, ganga við Lund í Öxarfirði og aðalfundur í mars. Á föstudaginn langa var gengin kirknaganga frá Presthólum og í maí var gengið í kringum Skjálftavatn í Kelduhverfi en það er í stöðugri hættu vegna ágangs Bakkahlaups. Þannig rekur áætlunin sig áfram út árið. Sumarleyfisgöngur félagsins verða tvær og báðar farnar í júlí. Sumarleyfisferðir eru lengri ferðir þar sem gengið er í nokkra daga samfellt. Þetta eru bækistöðvarferðir, gist er á farfuglaheimilum og gengið út frá þeim. Hvað er Langanesið langt? Í ferðinni Langanes-Fontur er gengið um friðsæla byggð sem er að mestu leyti horfin, komið í eyðiþorp með mikla sögu og út á ysta odda Langaness. Gist er í fjórar nætur á Farfuglaheimilinu Ytra-Lóni. Ferðin hefst sunnudagskvöldið 5. júlí með fundi og fræðsluerindi um þorpið sem var á Skálum á Langanesi. Eftir sameiginlegan morgunverð daginn eftir er gengið um svokallaðan eyðibýlahring og fræðst um sögu bæjanna og byggðarinnar, um gróðurinn, fuglana og fjöllin. Hringurinn er um 14 km og í lok dags bíður heitur pottur og kvöldmatur á Ytra-Lóni. Daginn eftir er gengið með sjónum frá Sauðanesósi út að Heiðarhöfn, um Heiðarnesið og til baka eftir Messumelnum. Rekaviður og fallegar fjörur, fullar af lífi. Þessi dagleið er um 15 km. Á fjórða degi er ekið upp á Heiðarfjall og ummerki ratsjárstöðvar varnarliðsins skoðaðar. Síðan niður í Hrolllaugsstaði en þaðan er gengið um Kumblavík og Skálabjarg að eyðiþorpinu Skálum um 12 km. Á Skálum bíður bíllinn og þaðan er ekið út á Font þar sem vitinn stendur á landsins enda. Á leiðinni heim er komið við á Skoruvíkurbjargi sem iðar af fugli, farið út á pallinn góða og litið á súlubyggðina í Stóra-Karli. Ekið til baka að Ytra-Lóni þar sem kvöldmaturinn og heiti potturinn bíða. Fimmti og síðasti dagurinn er léttur, en þá er gengið frá Sauðanesi út í Grenjanesvita, um 8 km alls. Á leiðinni eru ýmis mannvirki og menningarminjar, m.a. Hið mikla íslenska sögunarfélag, gamall flugvöllur, flugvél, beitarhús og hjallur. Ferðin endar í kaffi í Sauðaneshúsi. Gangan stendur yfir dagana 5.–9. júlí og er tveggja skóa samkvæmt skilgreiningu ferðafélaganna; miðlungs erfið ferð. Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 6. júní. Skráning og allar nánari upplýsingar hjá ffnordurslod@ simnet.is. Um núpa, gil og gljúfur Í júlí er einnig boðið upp á fjögurra daga bækistöðvarferð frá Kópaskeri, Öxarfjörður út og suður þar sem gist er á farfuglaheimili. Gengið frá fjöru til fjalla, um núpa, gil og gljúfur í þeirri gullfallegu sveit Öxarfirði. Á fyrsta degi er gengið út að Snartastaðanúp, yfir Núpinn og ofan í Hvalvík með fjölbreyttar klettamyndir og gatkletta. Síðan ekið að Núpskötlu og gengið á Rauðanúp á Melrakkasléttu. Menningar- og fræðslurölt á Kópaskeri og næsta nágrenni er verkefni næsta dags. Farin er söguganga um þorpið, Skjálftasetur og Byggðasafnið á Snartarstöðum eru heimsótt og gengið um Kópaskersmisgengið með tilheyrandi fræðslu um jarðfræði. Næsta dag er gengið um Valþjófsstaðafjöru að Naustárfossi, upp með Naustá, um skógi vaxnar hlíðar upp á Öxarnúp og litið yfir Öxarfjörðinn allan. Þá er gengið í Kleifargerði og fræðst um hið merka kuml sem fannst þar í grenndinni árið 1956. Síðan gengið um Svelting í Buðlungahöfn. Lokadaginn er stefnan tekin í Jökulsárgljúfur en byrjað á heimsókn í Grettisbæli undir Öxarnúpi. Síðar er gengið upp með Jökulsá að austan, um Borgirnar upp að Gloppu, sem er sérstakt náttúrufyrirbæri. Þar er farið ofan í gljúfrin í sannkallaða undraveröld. Þetta eru fáfarnar slóðir í ævintýralegu umhverfi Jökulsárgljúfra. Ferðin stendur yfir 14.–17. júlí. Þetta er líka tveggja skóa ferð, þó gengið sé á núpana í Núpasveitinni eru þeir ekki háir og farið rólega yfir. Skráning í ferðina er í síðasta lagi 13. júní, hjá ffnordurslod@simnet.is. Norðausturhorn landsins er hjá mörgu göngufólki ókannað land. En þar eru fjölbreyttar og spennandi gönguleiðir og margt sem gaman er að sjá og kemur á óvart. Ferðafélagið Norðurslóð býður göngufólk velkomið á norðausturhornið, þar sem ævintýrin bíða við hvert fótmál. Ferðafélagið Norðurslóð: Sæl og glöð í gönguferð Kátir göngufélagar á Öxarnúpi. Mynd / Árni Ólafsson Á leið upp úr Gloppu. Mynd / Ingibjörg Eggertsdóttir. Séð af Snartarstaðanúpi ofan í Hvalvík og alla leið norður á Rauðanúp. Mynd / Sesselja Guðmundsdóttir. Í Sveltingi. Mynd / Sesselja Guðmundsdóttir. Gengið um Öxarnúp. Mynd / Sesselja Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.