Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 28.05.2015, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015 Áhrifarík sárameðferð - Bakteríueyðandi plástur - Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is Fyrirbyggir og eyðir sýklum í sári á náttúrulegan hátt án sýkladrepandi efna. Virkar á alla helstu sárasýkla, m.a. MOSA og VRE. Sorbact® - Græn sáralækning Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast sárasýklar við umbúðirnar, verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkladrepandi efna. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun á allar tegundir sára. Dregur úr sársauka. Engar aukaverkanir. Vatnsheldur og ofnæmisfrír límflötur. Þolir íþróttir, leiki, sturtuböð og sund. Krumpast ekki á köntum. 00314 - Boston Litir: Svart/- Hvítt Str. 36-48 Verð 12.900 25290 - Parma Litir: Svart, hvítt, blátt og rautt Str. 36-42 Verð 12.600 Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878 Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00. Lokað laugard. til vinnu og frístundaSkór Praxis.is Pantið vörulista 25240 Litir: Svartur/hvítur Str. 36-42 Verð 9.900,- 53802 Litir: Svartur, lilla, lime, bleikt, blátt og hvítt Str. 36-44 Verð 10.500,- Teg. 25090 Litir: Svart/Hvítt/Blátt Str. 36-42 Verð 14.990,- Mikið úrval af klossum í öllum stærðum, gerðum og litum Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Öryggis- og hlífðarfatnaður Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggis fatnað sem uppfyllir ströngustu kröfur markaðarins. Hafðu samband og við aðstoðum! Lesendabás Góð fóðuráætlun krefst góðra heysýna Á síðastliðnum árum hefur Lífland aukið þjónustu við kúabændur, einkum á sviði ráðgjafar um fóðrun. Lífland hefur um árabil boðið upp á heysýnatöku og greiningu þeirra, í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið BLGG AgroXpertus í Hollandi. Ráðgjafar Líflands koma og taka sýnin úr fullverkuðum heyjum, með þar til gerðum heysýnabor, sem síðan eru send út með hraðpósti. Niðurstöður greiningar berast svo 7-14 dögum eftir að sýnin eru send út, sem tryggir skjóta og góða þjónustu við bændur. Nú fer senn að líða að heyskap þó víða vori seint. Mikilvægt er að gera sér snemma grein fyrir líklegum þverskurði af komandi heyforða, þ.e. gera sér grein fyrir út frá túngrösum og aldri spildna hvaða fóður verði líklega nýtt í mjólkurkýr, hvaða fóður verði nýtt í kálfa og hvað í geldkýr. Út frá þessum hugmyndum má síðan gera sér grein fyrir því magni af heysýnum sem þörf er á að taka í haust til að varpa sem bestu ljósi á gæði heyforða. Heysýni gefa upplýsingar um ástand og gæði gróffóðursins, sem er undirstaða fóðrunar á hverju búi. Margvísleg gildi eru mæld, m.a. þurrefnisinnihald, prótein, tréni, meltanleiki, sykur, gildi sem gefa vísbendingar um verkun og lystugleika (ammoníak og smjörsýra), AAT og PBV gildi auk stein- og snefilefna svo nokkur lykilatriði séu nefnd. Niðurstöðurnar einar og sér geta gefið vísbendingar um hvert þarf að stefna með heildarfóðrun gripanna, þá með tilliti til kjarnfóðurs og annarra fóðurefna sem gefin eru með heyjum. Auk þess gagnast heysýni vel við gerð áburðaráætlunar til að meta áburðarþörf spildna. Heysýni eru nauðsynlegur þáttur þegar kemur að gerð fóðuráætlunar. Fóðuráætlanir ganga út á það að finna heppilegustu nálgun á heildarfóðrun mjólkurkúa miðað við þau fóðurefni sem í boði eru, aðstæður og samsetningu hjarðarinnar, afurðir og síðast en ekki síst, lífeðlisfræði gripanna. Lífland býður upp á fóðuráætlunargerð í NutriOpt kerfinu sem er í eigu hollenska þekkingarfyrirtækisins Nutreco. Í því er skoðað hver af hinum fjölmörgu kjarnfóðurblöndum og bætiefnum Líflands hentar best með því fóðri sem aflað er á hverjum bæ. Reynsla bænda af þessum fóðuráætlunum er almennt mjög jákvæð og hefur hjálpað bændum mikið við að ná settum markmiðum. Fóðuráætlanir og heysýni eru gott verkfæri til að nálgast fóðrun á skilvirkari og nákvæmari hátt, en hvoru tveggja er þeim annmörkum háð að vera nálgun á raunverulegar aðstæður. Því er eftirfylgni mikilvægur þáttur. Nauðsynlegt getur verið að endurskoða fóðuráætlun reglulega, sér í lagi ef breyting verður á gróffóðri sem gefið er. Slík vinnubrögð geta verið fljót að borga sig ef í ljós kemur að breyta þurfi um kjarnfóðurtegund eða bætiefni til að uppfylla þarfir gripa sem best. Þannig má stuðla að betra heilsufari gripa, meiri nyt og auknum verðefnum. Því er afar mikilvægt að til séu góðar heysýnagreiningar sem endurspegla allt það fóður sem á að gefa yfir veturinn. Þannig er mun auðveldara að endurskoða fóðuráætlun reglulega, finna út hvaða fóður hentar best hverju sinni og hvaða fóðurtegundir passi saman. Ráðgjafar Líflands heimsækja bú sé þess óskað og geta tekið út aðstæður og aðbúnað. Einnig býður Lífland bændum að fylgjast með niðurstöðum tank- og kýrsýna, hvort sem slíkt er sent reglulega til ráðgjafa fyrirtækisins eða með því að veita þeim aðgang að vefsvæði Auðhumlu þar sem nálgast má ítarlegri upplýsingar um framleiðslu hvers bús. Einnig eru ráðgjafar fyrirtækisins ávallt tilbúnir til skrafs og ráðagerða. Við mælum með að huga snemma að skipulagi á heysýnatöku. Ráðgjafar Líflands veita nánari upplýsingar í s. 540-1100 eða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.