Bændablaðið - 28.05.2015, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Áhrifarík sárameðferð
- Bakteríueyðandi plástur -
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Fyrirbyggir og eyðir sýklum í sári
á náttúrulegan hátt án sýkladrepandi efna.
Virkar á alla helstu sárasýkla, m.a. MOSA og VRE.
Sorbact® - Græn sáralækning
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast sárasýklar við umbúðirnar,
verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkladrepandi
efna. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun á allar
tegundir sára. Dregur úr sársauka. Engar aukaverkanir.
Vatnsheldur og ofnæmisfrír límflötur.
Þolir íþróttir, leiki,
sturtuböð og sund.
Krumpast ekki á köntum.
00314 - Boston
Litir: Svart/-
Hvítt
Str. 36-48
Verð 12.900
25290 - Parma
Litir: Svart, hvítt,
blátt og rautt
Str. 36-42
Verð 12.600
Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878
Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00. Lokað laugard.
til vinnu
og frístundaSkór
Praxis.is
Pantið vörulista
25240
Litir: Svartur/hvítur
Str. 36-42
Verð 9.900,-
53802
Litir: Svartur, lilla,
lime, bleikt, blátt
og hvítt
Str. 36-44
Verð 10.500,-
Teg. 25090
Litir: Svart/Hvítt/Blátt
Str. 36-42
Verð 14.990,-
Mikið úrval af klossum
í öllum stærðum, gerðum og litum
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggis- og
hlífðarfatnaður
Dynjandi býður upp á hlífðar-
og öryggis fatnað sem uppfyllir
ströngustu kröfur markaðarins.
Hafðu samband og við aðstoðum!
Lesendabás
Góð fóðuráætlun krefst góðra heysýna
Á síðastliðnum árum hefur
Lífland aukið þjónustu við
kúabændur, einkum á sviði
ráðgjafar um fóðrun. Lífland
hefur um árabil boðið upp á
heysýnatöku og greiningu þeirra, í
samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið
BLGG AgroXpertus í Hollandi.
Ráðgjafar Líflands koma og taka
sýnin úr fullverkuðum heyjum, með
þar til gerðum heysýnabor, sem
síðan eru send út með hraðpósti.
Niðurstöður greiningar berast svo
7-14 dögum eftir að sýnin eru send
út, sem tryggir skjóta og góða
þjónustu við bændur.
Nú fer senn að líða að heyskap
þó víða vori seint. Mikilvægt er
að gera sér snemma grein fyrir
líklegum þverskurði af komandi
heyforða, þ.e. gera sér grein fyrir
út frá túngrösum og aldri spildna
hvaða fóður verði líklega nýtt í
mjólkurkýr, hvaða fóður verði
nýtt í kálfa og hvað í geldkýr. Út
frá þessum hugmyndum má síðan
gera sér grein fyrir því magni af
heysýnum sem þörf er á að taka í
haust til að varpa sem bestu ljósi á
gæði heyforða.
Heysýni gefa upplýsingar um
ástand og gæði gróffóðursins,
sem er undirstaða fóðrunar á
hverju búi. Margvísleg gildi eru
mæld, m.a. þurrefnisinnihald,
prótein, tréni, meltanleiki, sykur,
gildi sem gefa vísbendingar um
verkun og lystugleika (ammoníak
og smjörsýra), AAT og PBV gildi
auk stein- og snefilefna svo nokkur
lykilatriði séu nefnd. Niðurstöðurnar
einar og sér geta gefið vísbendingar
um hvert þarf að stefna með
heildarfóðrun gripanna, þá með
tilliti til kjarnfóðurs og annarra
fóðurefna sem gefin eru með
heyjum. Auk þess gagnast heysýni
vel við gerð áburðaráætlunar til að
meta áburðarþörf spildna.
Heysýni eru nauðsynlegur þáttur
þegar kemur að gerð fóðuráætlunar.
Fóðuráætlanir ganga út á það að finna
heppilegustu nálgun á heildarfóðrun
mjólkurkúa miðað við þau fóðurefni
sem í boði eru, aðstæður og
samsetningu hjarðarinnar, afurðir
og síðast en ekki síst, lífeðlisfræði
gripanna. Lífland býður upp á
fóðuráætlunargerð í NutriOpt
kerfinu sem er í eigu hollenska
þekkingarfyrirtækisins Nutreco.
Í því er skoðað hver af hinum
fjölmörgu kjarnfóðurblöndum og
bætiefnum Líflands hentar best með
því fóðri sem aflað er á hverjum
bæ. Reynsla bænda af þessum
fóðuráætlunum er almennt mjög
jákvæð og hefur hjálpað bændum
mikið við að ná settum markmiðum.
Fóðuráætlanir og heysýni eru
gott verkfæri til að nálgast fóðrun
á skilvirkari og nákvæmari hátt, en
hvoru tveggja er þeim annmörkum
háð að vera nálgun á raunverulegar
aðstæður. Því er eftirfylgni
mikilvægur þáttur. Nauðsynlegt
getur verið að endurskoða
fóðuráætlun reglulega, sér í lagi
ef breyting verður á gróffóðri sem
gefið er. Slík vinnubrögð geta verið
fljót að borga sig ef í ljós kemur að
breyta þurfi um kjarnfóðurtegund
eða bætiefni til að uppfylla þarfir
gripa sem best. Þannig má stuðla
að betra heilsufari gripa, meiri
nyt og auknum verðefnum. Því
er afar mikilvægt að til séu góðar
heysýnagreiningar sem endurspegla
allt það fóður sem á að gefa yfir
veturinn. Þannig er mun auðveldara
að endurskoða fóðuráætlun
reglulega, finna út hvaða fóður
hentar best hverju sinni og hvaða
fóðurtegundir passi saman.
Ráðgjafar Líflands heimsækja
bú sé þess óskað og geta tekið út
aðstæður og aðbúnað. Einnig býður
Lífland bændum að fylgjast með
niðurstöðum tank- og kýrsýna,
hvort sem slíkt er sent reglulega til
ráðgjafa fyrirtækisins eða með því
að veita þeim aðgang að vefsvæði
Auðhumlu þar sem nálgast má
ítarlegri upplýsingar um framleiðslu
hvers bús. Einnig eru ráðgjafar
fyrirtækisins ávallt tilbúnir til skrafs
og ráðagerða.
Við mælum með að huga snemma
að skipulagi á heysýnatöku.
Ráðgjafar Líflands veita nánari
upplýsingar í s. 540-1100 eða