Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 10

Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 10
8 Þjóðmál VETUR 2008 vitnað sé í markmið EES-samningsins . Til að ná þessum markmiðum skyldi innleiða hér hið svonefnda fjórfrelsi, það er frjálsa vöru flutninga, frjálsa fólksflutninga, frjálsa þjónustu starf semi og frjálsa fjármagnsflutninga . Í krafti þessa sóttu íslensk fyrirtæki fram á evrópskum markaði . Þeim varð svo mikið um frelsið, að helst minnti á, þegar kúm er að vori hleypt úr fjósi, að lokinni langri vetrarbið eftir birtu og frelsi sumarsins . Kúasmölum tekst ekki að hafa neinn hemil á þeim, þótt þeir gjarnan vildu . Eftir bankahrunið hefur enginn lagt til, að EES-samningnum verði sagt upp, til að setja íslensk fyrirtæki á sinn gamla bás . Þvert á móti verður þess helst vart, að gengið skuli lengra á sömu braut og framselt meira vald til sameiginlegrar ákvörðunar með Evrópuríkjum, það er með inngöngu í Evrópu- sambandið (ESB) . Í þeirri afstöðu felst ekki neitt hugmyndafræðilegt uppgjör eða fráhvarf frá markaðshyggju . Ég hef áður hér á þessum stað rætt þann vanda, sem að íslensku fjármálakerfi steðjar vegna gjaldmiðilsins . Í Þjóðmálum hafa einnig birst greinar fræðimanna til stuðnings því, að krónunni yrði skipt út fyrir annan gjaldmiðil . Síðastliðið sumar benti ég á þá staðreynd, að ESB hefur heimild til að semja við þriðju ríki um samstarf í gjaldmiðilsmálum . Vegna þeirrar ábendingar var ég meðal annars kallaður fyrir þá Evrópunefnd, sem nú starfar fyrir ríkisstjórnina . Þar lýsti ég þeirri skoðun, að mótuðu íslensk stjórnvöld ekki nýja gjaldmiðilsstefnu gerðist ekkert . Ef ákvörðun yrði á hinn bóginn tekin um einhliða upptöku annars gjaldmiðils eða viðræður við ESB um gjaldmiðilsmál, væri um pólitískt viðfangsefni að ræða . Að mínu viti væri það til marks um lítið álit á íslenskum bönkum og fjármálafyrirtækjum í Evrópu, ef ekki yrði unnt að finna sameiginlega lausn á þessu máli með ESB . Evrópunefndin fór skömmu síðar til Brussel og sagði valdamenn þar ekki vilja hlusta á neitt svona tal! Fyrir því má færa gild rök, að aðild Íslands að EES án samstarfs við ESB í gjaldmiðilsmál- um hafi ráðið miklu um getuleysi íslenska fjár- málakerfisins andspænis ofvexti bank anna . Á hinn bóginn hefur verið blásið á öll rök fyrir einhliða upptöku annars gjaldmiðils eða fyrir viðræðum við ESB um gjaldmiðlasamstarf . Í sinni einföldustu mynd hefur svarið verið á þennan veg: Þeir vilja þetta ekki í Brussel! Percy Westerlund, sendiherra ESB á Íslandi með búsetu í Ósló, hefur verið fremstur í flokki þeirra, sem virðast jafnvel líta á það sem móðgun við ESB, að Íslendingum detti í hug að taka upp evru, án þess að vera í ESB . Honum hefur gengið það helst til að knýja Íslendinga til að sækja um ESB-aðild . Eftir bankahrunið á Íslandi flutti hann fyrirlestur í háskólanum í Ósló og taldi ekki óhugsandi, að Íslendingar sæktu um aðild að ESB fyrir jól 2008 og yrðu komnir inn árið 2010 . Ísland þyrfti að ná efnahagslegum stöðugleika, hann fengist með evrunni að mati sendiherrans, og evran krefðist ESB-aðildar . Þessi lýsing á afstöðu ESB-sendiherrans birt- ist hinn 20 . nóvember, 2008, í norska blaðinu Aftenposten grein eftir Janne Haaland Matlary, prófessor í stjórnmálafræði við háskólann í Ósló, undir fyrirsögninni: Hvað þýðir það fyrir Noreg ef Ísland gengur í ESB? Prófessorinn segir, að mótmælt sé í þágu ESB-aðildar í Reykjavík, 70% þjóðarinnar vilji í ESB, Geir H . Haarde forsætisráðherra hafi skipað nefnd, sem ljúka eigi störfum á skömmum tíma, svo að stjórnmálamenn geti fótað sig á nýrri stefnu, ríkisstjórnin sé svo óvinsæl, að hún eigi sér fátt til bjargar, og ESB sé neyðarhöfn í ofviðrinu . Í greininni er spurt, hvað leiða muni af ís - lenskri aðildarumsókn . Rætt verði um fisk í samningaviðræðunum og ESB verði með skýrar kröfur af sinni hálfu, sem muni fljótt hafa áhrif á norska fiskveiðihagsmuni . Íslend- ingar muni semja frá „dödens posisjon“, hvorki meira né minna, af því að þeir séu í raun gjaldþrota . Samningsniðurstaðan muni endurspegla þetta, jafnvel þótt Íslendingar njóti mikillar samúðar í Brussel . Fljúgðu í gegnum námið með ThinkPad Fislétt, öflug og hagkvæm NÝHERJI hf. sími 569 7700 www.nyherji.is ThinkPad fartölva er frábær kostur fyrir skólafólk. Hún er nett, létt og ótrúlega öflug. Allt að 5 klukkustunda rafhlöðuending, skarpur skjár og vefmyndavél. Góð afköst á frábærum kjörum. ThinkPad fartölvur eru hugsaðar fyrir kröfuharða notendur. Yfirburðatækni, gæði, lág bilanatíðni og öryggi eru í fyrirrúmi. ThinkPad fartölvur hafa unnið til 1200 verðlauna á heimsvísu fyrir hönnun og virkni. Skoðaðu ThinkPad í verslun Nýherja, Borgartúni 37, og hjá söluaðilum um land allt. LENGRI RAFHLÖÐUENDINGFALLVÖRN GAGNABJÖRGUN MEÐ EINUM TAKKA VÖKVAÞOLIÐ OG UPPLÝST LYKLABORÐ INNBYGGÐ VEFMYNDAVÉL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.