Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 89

Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 89
 Þjóðmál VETUR 2008 87 Bókadómar _____________ Hrunadans auðræðis Guðmundur Magnússon: Nýja Ísland – Listin að týna sjálfum sér. JPV útgáfa, Reykjavík 2008, 221 bls. Eftir Björn Bjarnason Nýja Ísland, heiti bókar Guðmundar Magn-ússonar, vísar til breytinga á íslensku þjóð félagi síðustu áratugi, breytinga, sem voru of örar og hafa nú leitt þjóðina inn í svo stóra fjár málakrísu, að hún er óviðráðanleg án hjálpar annarra . Guðmundur hlýtur að hafa velt því fyrir sér, þegar hann var að leggja lokahönd á bók sína, hvort hann ætti að gefa hana út á þessu hausti eða bíða til að geta náð betur utan um fjármálakrísuna og áhrif hennar á Ísland . Að mínu mati var rétt ákvörðun hjá Guðmundi að láta slag standa og senda bókina frá sér . Honum gafst ráðrúm til að tengja textann inn í hina öru atburðarás frá því í byrjun október 2008, en formáli bókarinnar er ritaður hinn 10 . október . Þar segir meðal annars: „Margir telja að við séum vitni að fjör brot um Nýja Íslands, sem ég kalla svo og lýsi á þessum blöðum og ber saman við fyrri tíð; þess þjóð- félags auðsældar og auðræðis sem hér hefur orðið til á síðustu fimmtán eða tuttugu árum . Tíminn einn leiðir í ljós hvort það er rétt . Og hvert leið okkar mun liggja .“ Ef Guðmundur hefði kosið að bíða og skrifa bók sína í ljósi þess, sem nú er að gerast, hefði lýsing hans atburðunum orðið svo yfirþyrmandi, að hitt, sem hann segir hefði allt fallið í skuggann . Raunar má segja, að bókin Nýja Ísland komi út á hárréttu augnabliki til að ná að lýsa andrúmslofti í aðdraganda hrunsins – listinni að týna sjálfum sér, verður ekki líkt við annað en hrunadans, það er gálaust athæfi, sem leiðir til glötunar, svo að vitnað sé beint í orðabókina . Sagan, sem Guðmundur segir, snýst um, að í stað þjóðfélags samkenndar og jafnaðar hafi orðið til þjóðfélag græðgi og ójafnaðar . Bókin Nýja Ísland er vel úr garði gerð . Ríku- lega myndskreytt og umbrotið frjálslegt með innskotum . Ég saknaði nafnaskrár en tilvísana- skrá er vönduð auk myndaskrár . Bók in skiptist í níu kafla sem heita: Lánsama ey land; Andleg jafn að ar stefna; Úr fátækt í álnir; Alveg milljón; Hin nýja stétt; Auður, völd og áhrif; Bilið breikk- ar; Landið og þjóðin; Markaður og samfélag . Helsta aðfinnsla mín er, að bókin snýst meira um einkenni þjóðfélagsbreytinga en undirrót þeirra . Baksviðinu mætti lýsa betur . Rétt er hjá Guðmundi, að auðsæld hefur verið hampað meira en fátækt . Auðmenn hafa ekki hikað við að flagga ríkidæmi sínu . Á hinn bóginn hefur verið deilt um útbreiðslu fátæktar og hún orðið að pólitísku bitbeini . Þeim deilum hefði mátt gera betri skil . Árið 1995 sendu þeir Trausti Valsson, próf- essor, og Albert Jónsson, núverandi sendi herra í Washintgon, frá sér bókina Við alda hvörf – staða Íslands í breyttum heimi . Þeir taka mið af hruni Sovétríkjanna, að- ild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og alþjóðavæðingunni, án þess að láta sér til hugar koma, að Ísland geti orðið alþjóðlegt fjármálaveldi eða orkurisi á alþjóðavísu, en sá boðskapur hefur verið drifkraftur í auðsókn síðustu ára . Þeir félagar hvetja þvert á móti til varúðar með þessum orðum: „Hafa þarf varann á þegar upp koma tísku- orð eins og nýsköpun og útflutningur hugvits . Þau geta orðið ný villuljós nema helst ef þau tengjast sjávarútvegi eða grein um sem við höfum sérþekkingu á . Undantekn ing frá því er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.