Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 26
24 Þjóðmál VETUR 2008
út í hött að tala um hann sem arftaka Kjarvals .
Að minnsta kosti hefur hann tekið við einum
hluta arfs hans: Að beina augum okkar ofan í
jörðina, að hinu smáa og lífseiga .“43
Í Lesbók Morgunblaðsins sagði Anna Jó hanns-
dóttir að uppsetning verkanna væri óað finn an leg
og að Eggert hefði hér stigið fram á sjónarsvið-
ið „sem málari sem náð hefur meistaratökum
á viðfangsefni sínu – og þar gegna handverkið
og fagurfræðin lykilhlutverki ekki síður en
hugmyndaleg framsækni – og þannig skapað
sér algjöra sérstöðu og skipað sér í hóp með
fremstu málurum samtímans“ .44
Þegar myndlistargagnrýnendur Morgun-
blaðsins gerðu upp árið völdu þeir sýningu
Eggerts sem myndlistarsýningu ársins .45
19 . Selt á einum degi
Aðeins fimm dögum eftir opnun yfirlitssýningarinnar á Kjarvalsstöðum
var opnuð önnur stór sýning í i8 galleríi í
Reykja vík . Hún stóð frá 13 . september til 27 .
október 2007 .
Þetta voru eitt hundrað málverk . Í kynningu
sagði: „50 ferningslaga myndir hanga innan
rétthyrnings, þar sem lesa má tíma sumarsins
frá vori til hausts í línum niður eftir veggnum
eftir blómgunartíma plantnanna, líkt og
að lesa blaðsíðu í bók . 50 rétthyrningslaga
myndir hanga í einni línu andspænis á hinum
þremur veggjum salarins og aftur má lesa tíma
sumarsins eftir línunni frá vinstri til hægri .“
Meðan á sýningunni stóð var prentað „bókverk
sem birtir myndir sýningarinnar í raunstærð, í
heild eða að hluta“ .46
Skemmst er frá því að segja að myndirnar seld-
ust allar á fyrsta degi, sem talið var einsdæmi .47
20 . Gróður á Berjadögum
Dagana 16 .–18 . ágúst 2008 sýndi Eggert fimmtán vatnslitaskissur í Listhúsi í
Ólafsfirði, í tengslum við tónlistarhátíðina
Berjadaga . Sýningin var nefnd Gróður . Þetta
var afrakstur sumardvalar í Skagafirði, en
Eggert hafði verið í listamannsíbúð í Bæ á
Höfðaströnd í júlímánuði .
Blómin lifa
Þessar tuttugu einkasýningar Eggerts Pét-urs sonar eru að mörgu leyti ólíkar hver
annarri . Á sumum þeirra var eitt verk til sýnis
og hundrað verk á einni . Tvær stóðu í tvær
klukku stundir og ein í rúmar átta vikur . En
blóm in hafa sótt á eftir því sem árin hafa liðið .
Í útvarpsþætti sem fluttur var í desember
2007 var Eggert spurður um stöðu sína . „Það
er langt frá því að ég sé búinn að tæma þetta
verkefni,“ sagði listamaðurinn . „Blómin munu
halda áfram að lifa í mínum verkum .“48
Tilvísanir og heimildir
1 Teiknisamkeppni skólabarna um fegrun borgarinnar . Morgunblaðið, 31 . maí
1969 . 2 Verðlaunaafhending í teiknimyndasamkeppni . Þjóðviljinn, 31 . maí
1969 . 3 Árni Johnsen: Hreint og fínt eða dót og drasl . Morgunblaðið, 21 . júní
1969 . 4 Sýningarskrá, janúar 1980 . 5 Hannes Lárusson: Taóísk náttúruspeki .
Vísir, 11 . janúar 1980 . 6 Bragi Ásgeirsson: Blómapressuþrykk . Morgunblaðið,
15 . janúar 1980 . 7 Aðalsteinn Ingólfsson: Blómin tala . Dagblaðið, 11 . janúar
1980 . 8 Halldór Björn Runólfsson: Nýlist heima og heiman . Þjóðviljinn, 11 .
janúar 1980 . 9 Sýning í bókasafninu . Morgunblaðið, 26 . júlí 1980 . 10 Sýn ir eitt
verk . Morgunblaðið, 28 . febrúar 1982 . 11 Ingólfur Arnarsson: List Eggerts
Péturssonar . Eggert Pétursson 10 . október – 3 . nóvember 1996 . (Sýningarskrá .)
12 Eggert sýnir í Rauða húsinu . Dagur, 17 . ágúst 1982 . 13 Eggert Pétursson
sýnir skreyti . Morgunblaðið, 18 . mars 1983 . 14 Sýn ingarsalir . Helgarpósturinn,
18 . mars 1983 . 15 Halldór Björn Runólfsson: Skapað í tómið . Þjóðviljinn,
1 . desember 1984 . 16 Bragi Ásgeirsson: Sýning Eggerts Péturssonar .
Morgunblaðið, 4 . desember 1984 . 17 Bragi Ásgeirsson: Ný sjónarhorn .
Morgunblaðið, 24 . janúar 1987 . 18 Aðalsteinn Ingólfsson: Á lágu nótunum .
DV, 24 . janúar 1987 . 19 Eggett Pétursson . Persónulegar upplýsingar, október
2008 . 20 Bragi Ásgeirsson: Notalegt sjónarhorn . Morgunblaðið, 6 . september
1989 . 21 Aðalsteinn Ingólfsson: Takmarkalaus málverk . DV, 19 . apríl 1991 .
22 Bragi Ásgeirsson: Brotabrot . Morgunblaðið, 20 . apríl 1991 . 23 Eiríkur
Þorláksson: Örveröld gróðursins . Morgunblaðið, 28 . september 1994 . 24 Egg-
ert Pétursson . Sýning . Gallerí Sævars Karls 16 .9 .–6 .10 . 1994 . (Sýningarskrá .)
25 Blóm í brennidepli . Morgunblaðið, 10 . október 1996 . 26 Ingólfur Arnars-
son: List Eggerts Péturssonar . Eggert Pétursson 10 . október – 3 . nóvember
1996 . (Sýningarskrá .) 27 Bragi Ásgeirsson: Einsleit brigði . Morgunblaðið, 29 .
okt óber 1996 . 28 Ólafur Gíslason: Smávinir fagrir . DV, október 1996 . 29 Egg-
ert Pétursson listamaður opnar sýningu . Hver mynd tvö ár á trönunum . DV,
21 . júní 2001 . 30 Galleri i8 við Klapparstíg . Nálægð og fjarlægð . Fréttablaðið,
21 . júní 2001 . 31 Heiða Jóhannsdóttir: Lesið í blómin . Lesbók Morgunblaðsins,
30 . júní 2001 . 32 Aðalsteinn Ingólfsson: Foldarskart . DV, 9 . júlí 2001 .
33 Hall dór Björn Runólfsson: Að fanga óreiðuna . Morgunblaðið, 13 . júlí 2001 .
34 Nota fleiri liti og mála fleiri tegundir af blómum . Morgunblaðið, 8 . maí 2003 .
35 Jón B . K . Ransu: Gott málverk er gott . Lesbók Morgunblaðsins, 17 . maí
2003 . 36 Aðalsteinn Ingólfsson: Liljur vallarins . DV, 20 . maí 2003 . 37 Blóm-
róf, minningar og heimildasöfn . Morgunblaðið, 8 . nóvember 2003 . 38 Þór-
oddur Bjarnason: Akureyri . Lesbók Morgunblaðsins, 29 . nóvember 2003 .
39 Egg ert Pétursson . Sýning á nýju verki 3 . 8 . - 5 . 9 . 2004 . Safn.is . 40 Kurr -
inn vegna samnings míns við borgina kom mér ekki á óvart . DV, 3 . ágúst 2004 .
41 Eggett Pétursson . Persónulegar upplýsingar, október 2008 . 42 Ólafur
Ragnar Grímsson: Eggert Pétursson . Yfirlitssýning . Forseti.is, 8 . september
2008 . 43 Silja Aðalsteinsdóttir: Menning . Viðskiptablaðið, 14 . september
2007 . 44 Anna Jóhannsdóttir: Meistaratök . Lesbók Morgunblaðsins, 22 .
september 2007 . 45 Myndlistarsýningar ársins . Morgunblaðið, 31 . desember
2007 . 46 Eggert Pétursson og Hanna Cristel í i8 . Sim.is, 12 . september 2007 .
47 Seldi eitt hundrað myndir á einum degi . Fréttablaðið, 26 . september
2007 . 48 Ragnar Jónasson og Jónas Ragnarsson: Smávinir fagrir, foldarskart .
Ríkisútvarpið, Rás 1, 29 . desember 2007 .