Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 60
58 Þjóðmál VETUR 2008
Eitt af þeim málum sem upp komu fyrir nokkrum árum var „fjölmiðlamálið“ og
var það fyrirferðarmikið mál í umræðunni svo
mánuðum eða árum skipti . Í fjölmiðlamálinu
tóku margir fréttamenn afstöðu gegn fjöl-
miðlafrumvarpi þáverandi ríkisstjórnar sem
var undir forystu Davíðs Oddssonar . Þeir
sem töldu fjölmiðlafrumvarpið af hinu góða
voru umsvifalaust dæmdir úr leik með fúk-
og gífuryrðum eða hafðir að háði og spotti .
Þannig var nú lýðræðið og umburðarlyndið
gagn vart skoðunum manna á fréttastofunni .
Kannski er fjölmiðlamálið einn af horn-
stein um bankakreppunnar, ekki mátti setja
nein lög sem heftu frelsið, við það breyttist
frelsið í skrímsli sem tók að lifa sjálfstæðu
lífi utan við öll sjálfsögð lög og reglugerðir .
Í um ræð unni í kring um fjölmiðlalögin má
segja að hinir nýríku sniðugu peningastrákar
hafi séð sér leik lá borði, svifist einskis og heimtað
það að komast upp með allt . Með það að vopni
að mega allt hófu þeir síðan innreið sína inn í
bankakerfið og útrásin byrjaði inn og út um
gluggann . Menn fóru að selja hlutabréf í sólinni
sem gat ekki endað nema á einn veg, allt fuðraði
upp . Fjórða valdinu urðu á herfileg mistök að sjást
yfir mikil vægi þess að koma fjölmiðlalögunum á
og fréttamenn eiga hlutdeild í því hvernig komið
er nú fyrir banka kerfinu . Rétt væri að fjórða
valdið axlaði ábyrgð .
Tíminn hefur leitt það í ljós að rétt hefði
ver ið fyrir forsetann að samþykkja fjölmiðla-
frum varp ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar .
Leiða má að því líkur að mistök Ólafs Ragn ars
Gríms sonar forseta að skrifa ekki undir „fjöl-
miðla frumvarpið“ hafi átt sér rætur í þeirri for,
sem rithöfundar, frétta- og blaðamenn stóðu
sumir í, útataðir upp að öxlum . Þeir unnu jú
skít verkin fyrir Ólaf og gerðu honum kleift
að skrifa ekki undir lögin þegar Alþingi var
búið að samþykkja þau . Líkja má þessu við ef
knattspyrnuliði tækist að sannfæra dómarann
um að það ætti bara að dæma á hitt liðið .
Þegar átti að setja fjölmiðlafrumvarp í lög
er fram ganga Baugsmiðla umhugsunarefni .
Sjón varps stöð var látin senda út „réttar“
fréttir allan sólarhringinn og fengnir voru til
baráttu leigupennar slyngir og snúnir sem
sneru faðirvorinu upp á þann í neðra . Engar
leikreglur máttu vera í kringum fjölmiðla . Rit-
höfundar, frétta- og blaðamenn fóru í kross-
ferðir í nafni lýðræðis og réttlætis .
Svona til að skýra myndina af andrúms-lofti á fréttastofu með dæmi vil ég segja
frá eftir farandi atburði sem átti sér stund og
stað í venjulegu laugardagshádegi í fyrrasumar
yfir soðinni ýsu og grjónagraut með kanil .
Nokkrir fréttamenn sitja í matsalnum . Allir
sammála um að það sé frekar litlaust og grátt
yfir þjóðmálunum og lítið í fréttum . Ég segi:
„Það vantar Davíð Oddsson hann er brillíant,
það er alltaf líf í kringum hann .“ Fréttakona,
sem var þá hjá útvarpinu en er nú stundum
líka í fréttum sjónvarps, segir með tón: „,Ert
þú hrifinn af Davíð?“ Ég svara: „Davíð er
af burða maður .“ Fréttakonan segir þá með
vand lætingu og grettir sig með þeim svip sem
vinstri menn einir geta sett upp: „Ertu þá
ekki líka hrifinn af Adolf Hitler?“ Nú, jæja,
fréttakon an er ekki hæf til að segja rétt og satt
frá, hugs aði ég og svaraði engu .
Spyrja má: Er þessi fréttakona trúverðug þeg ar
hún flytur fréttir af Seðlabanka Ís lands og Davíð
Oddssyni? Þetta samtal yfir grjóna grautin um
með vinnufélögunum undir strikaði það að
nauð synlegt er að velja fréttamenn vel inn á
frétta stofur því þeir þurfa að axla ábyrgð á hverj-
um degi allan ársins hring . Fréttamenn þurfa að
vera sanngjarnir, heiðarlegir og réttsýnir .
Frá byrjun bankakreppunnar hef ég trúað
því að Seðlabankinn með Davíð í farar broddi
sé bæði fag- og málefnalegur og muni standa af
sér allar árásir vinstri manna . Samfylking ar fólk
með formann sinn fremsta í flokki hefur lagt til
Davíðs Oddssonar úr öllum áttum og reynt að
gera hann tortryggilegan fyrir þjóðinni . Nú er
mál að árásum á Davíð Oddsson linni og menn
skoði og skilgreini hvernig allt fór úr böndunum .
Líti í eigin barm og láti af upp hróp unum,
illmælgi og rógi . Þetta mál er einfalt, bankarnir
fóru á hausinn, svörin eru þar að finna .