Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 17

Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 17
 Þjóðmál VETUR 2008 15 Róbert Marshall fréttamaður á Stöð 2 og formaður Blaðamannafélagsins skrifaði tölvupóst 14 . maí til blaðamanna og sagði fjölmiðlafrumvarpið „fantafrumvarp“ . Hann bað blaðamennina að safna undirskriftum til að mótmæla frumvarpinu: „Við höfum tíma á meðan stjórnarandstaðan heldur uppi mál- þófi . Sendið tölvupóst á ALLA sem þið þekkið, hringið í fjarskylda ættingja úti á landi sem þið hafið ekki heyrt í í sjö ár . Nú er tíminn til að endurnýja kynnin . Fáið fólk til að skrifa nafn og kennitölu á askorun .is . Sé fólk fylgjandi frum varpinu, fáið það samt til að skrifa undir sem persónulegan greiða við ykkur . Mætið í vinn una á morgun og á sunnu dag eða sitjið við tölvuna heima við, hring ið, djöflist, látið öllum illum látum, söfn um þessum undirskrift um, fáum þessum ólög um hrundið . . . “ Móðursýkin sem Róbert og félagar hans á Baugs miðlum pískuðu upp í samfélaginu greip þá sjálfa heljartökum . Orð Róberts um að blaða menn ættu að fá fólk til að breyta gegn betri vitund sýnir hversu langt var seilst og að engu skyldi eirt í baráttunni fyrir hagsmunum Baugs . Eins og fram kemur í tölvupósti Róberts var náin samvinna með stjórnarandstöðunni og Baugsmiðlum í andófinu gegn fjöl miðla- frumvarpinu . Stjórnarandstaðan sá sér leik á borði og vildi tryggja sér velvild öflugasta fjölmiðlafyrirtækis landsins . Í kaupbæti var hægt að gera sér vonir um að ríkisstjórnin yrði felld . Með samræmdum málflutningi Baugs- miðla og stjórnarandstöðu tókst að draga upp þá mynd að frumvarpið væri einkamál Davíðs Odds sonar forsætisráðherra . Það hrikti í stjórn- ar sam starfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks, m .a . vegna þess að Kristinn H . Gunn- ars son þingmaður Framsóknarflokksins notaði málið til að skapa sér sérstöðu í þing flokkn um . Baugsmiðlar launuðu Kristni greiðann með viðhafnarviðtölum . Hamfarir Baugsmiðla voru í engu samræmi við tilefnið enda átti Baugur eðlilega áfrýjun- armöguleika fyrir dómstólum stæðist frum- varpið ekki stjórnarskrána eins og talsmenn Baugs héldu fram . Ef ekki væri fyrir viðbrögð stjórnar- andstöðunnar á Alþingi hefðu ýfingar Baugs- miðla verið stormur í vatnsglasi . Þing flokkar Samfylkingar og Vinstri grænna höfðu báðir gefið til kynna að þeir væru hlynntir lagasetningu til að bregðast við valda- samþjöppun á fjölmiðlamarkaði . Þegar á hólm inn var komið kusu flokkarnir að fylkja sér að baki Baugsmiðlum . Vinstriflokkarnir á þingi gáfu hagsmunabaráttu nýauðvaldsins lögmæti og pólitíska þyngd sem það annars hefði ekki haft . Stjórnarandstaðan lyfti Baugi á stall . Fjölmiðlar eru bráðnauðsynlegir milliliðir fyrir stjórnmálamenn til að ná sambandi við kjósendur . Engin starfsstétt í þjóðfélaginu er jafn háð fjölmiðlum og stjórnmálamenn . Þingflokkar stjórnarandstöðunnar féllu í þá freistni að fylgja Baugslínunni af tveim ástæðum . Í fyrsta lagi vildu þingmenn eignast bandamann í öflugustu fjölmiðlasamsteypu landsins og í öðru lagi þóttist stjórnarandstaðan sjá möguleika á að fella ríkisstjórnina . Stjórnarandstaðan magnaði upp draug sem óx samanlögðu ríkisvaldinu yfir höfuð með skelfilegum afleiðingum . Þrátt fyrir hatramma andstöðu var frum- varpið samþykkt á Alþingi . Þá kom Baugi til aðstoðar Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýð- veldisins sem 2 . júní 2004 tilkynnti að hann myndi ekki staðfesta fjölmiðlafrumvarpið . Eitt stærsta viðskiptaveldi landsins, Baugur, hafði í náinni samvinnu við stjórnarandstöðuna og forseta lýðveldisins lagt meirihluta Alþingis og ríkisvaldið að velli . Baugsmiðlar kættust og til varð vanheilagt bandalag fjölmiðla og auðmanna . Rúmu ári eftir að ríkisstjórnin var gerð afturreka með fjölmiðlafrumvarpið skrifaði sigri hrósandi Jón Kaldal aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins leiðara 7 . október 2005 sem hljómar eins og leiðari fyrir alla íslenska fjölmiðla:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.