Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 51
löndum myntbandalagsins – vegna þess að
evran sé nefnilega djúpt pólitískt verk efni.
Fráfarandi seðlabankastjóri Danmerkur,
Erik Hoffmeyer, [gegndi embættinu í 30
ár] sagði fyrir nokkrum árum það sama, og
einnig að evran myndi ekki færa okkur neina
efnahagslega kosti sem tæki að nefna á nafn,
því evran væri fyrst og fremst pólitískt verkefni.
Uffe Ellemann og Solbes segja ennfremur að
ef við segjum já við evru séum við komin inn
í samband sem sé að verða meira og meira
pólitískt fremur en efnahagslegt. Hoffmeyer
seðlabankastjóri hefur einnig, fyrir minna en
tveim árum, sagt opinberlega að það séu engir
sérstakir efnahagslegir kostir við að taka upp
evru og að leggja niður okkar eigin gjaldmiðil,
því það séu fyrst og fremst pólitísku atriðin
sem séu mikilvæg. Getur ráðherrann staðfest
að þetta sé svona?“
Hoffmeyer sagði einnig í umræddu viðtali
að efnahagslegri sameiningu ESB væri lokið
með tilkomu hins innri markaðar og það sem
á eftir kæmi væri pólitískur samruni Evrópu.
Svarið frá efnahagsmálaráðherranum var á
þá leið að hún vildi óska að menn litu ekki
svona ferkantað og svart/hvítt á hlutina,
því það væru fleiri fletir á myntmálunum.
Vissulega væri sameiginleg mynt pólitískt
verkefni en það væri fyrst og fremst
efnahagslegt verkefni.
*
Hinn 25. febrúar 2003 varaði Bodil Nyboe Andersen, seðlabankastjóri
Dan merkur, við húsnæðislánum lánastofnana
sem báru breytilega vexti. Um var að ræða
svo kölluð „flexlán“ þar sem samið er um
vexti til 1–5 ára í senn. „Á nýrri tímum hafa
vextir til styttri tíma verið verulega lægri en
vextir til lengri tíma. Það er því mikilvægt að
lántakendur geri sér ljóst þegar þeir taka á sig
svona lán að vextir til lengri tíma litið munu
hækka“.
*
Snemma árs 2003 gagnrýndi danski seðlabankinn ríkisstjórnina harðlega í fyrstu
ársfjórðungsskýrslu ársins. Efnahagsstjórn
ríkisstjórnarinnar væri of slöpp og ríkisstjórnin
hefði ekki stjórn á útgjöldum ríkisins.
Laun hækkuðu of mikið. Launakostnaður í
framleiðslugeiranum væri 166 kr. á tímann en
á evrusvæðinu væri hann einungis 155 kr. á
tímann að meðaltali.
*
Hinn 1. desember 2004 gagnrýndi Bodil Nyboe Andersen, seðlabankastjóri
Danmerkur, viðskiptabankana fyrir að blanda
saman sölustarfsemi og ráðgjöf. Slík blanda af
sölu og ráðgjöf væri ekki í þágu viðskiptavina
bankanna. „Það er ekki endilega mín skoðun
að fjármálageirinn eigi við vandamál að glíma
hér og nú, en það er ekki hægt að skapa vöxt
í atvinnugreininni til lengri tíma ef maður
hagar sér ekki vel og sýnir ábyrgð,“ sagði hún
í ræðu á ársfundi samtaka fjármálastofnana í
Danmörku.
*
Sumarið 2008 sagði Nils Bernstein, seðla-bankastjóri, í viðtali í danska ríkis út varp-
inu að Danmörk þyrfti á fleiri at vinnuleys-
ingjum að halda ef bjarga ætti land inu frá
efnahagslegri niðursveiflu. Í Dan mörku
eru skráðir atvinnuleysingjar aðeins um
50.000 eða um 1,8% af vinnuaflinu. Seðla-
bankastjórinn sagði að ef atvinnuleysi ykist
ekki í landinu myndi það koma til landsins frá
útlandinu á hinn harða máta í formi tapaðrar
samkeppnishæfni miðað við umheiminn.
Hér ber að hafa í huga að það er mikið
dulið atvinnuleysi í Danmörku, eins og fyrr
er vikið að. Ef atvinnuþátttaka væri jafnmikil
í Danmörku og á Íslandi væru 350–450 þús.
fleiri Danir við störf. Jafnframt hefði allt
vinnandi fólk í Danmörku þurft að vinna um
300 fleiri klukkustundir á ári. Engu að síður er
atvinnuþátttaka í Danmörku núna mjög mikil