Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 7
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 3
Formannspistill
Samninga viðræður eru hafnar þó svo að
þær séu ekki langt komnar en viðræður
munu nú fara á fullt á næstu vikum.
Það er ljóst að það stefnir í átök á
vinnumarkaði hérlendis í vetur. Miklar
launa hækkanir ákveðinna stétta hafa sett
tóninn fyrir komandi baráttu. Launamenn
krefjast ákveðinna leiðréttinga á kjörum
sínum og eru hjúkrunarfræðingar þar ekki
undanskildir.
Ljóst er, af tölum fjármálaráðuneytisins,
að laun hjúkrunarfræðinga eru ekki
sambærileg við laun annarra háskóla
menntaðra stétta. Í nokkurn tíma hefur
Fíh talað um ráðuneytabundinn launamun
stétta. Svo virðist sem stéttir, sem sýsla
með peninga og tæki, séu verðmætari í
þjóðfélaginu heldur en stéttir sem vinna
með líf og heilsu fólks í höndunum eða
vinna að því að mennta þjóðina. Sú
forgangsröðun er með öllu óviðunandi.
Það er algert grunnatriði að störf líkt og
hjúkrun séu samkeppnishæf í launum við
önnur störf í þjóðfélaginu. Hjúkrunarnám
verður að verða raunhæfur kostur fyrir
ungt fólk sem nú stendur frammi fyrir að
velja sér framtíðarstarf og horfir á hvers
virði námið er að því loknu.
Hjúkrunarfræðingar eru nú í auknum
mæli að leita í önnur störf og menntun
utan hjúkrunar. Kjarakönnun, sem Fíh
framkvæmdi í október 2014, sýnir okkur
að hlutfall þeirra sem eru að mennta
sig út úr hjúkrunarstarfinu fer stækkandi.
Þetta er mikið áhyggjuefni, sérstaklega
í ljósi þess að sama könnun sýnir að
hjúkrunarfræðingar íhuga af alvöru að
yfirgefa landið til hjúkrunarstarfa á erlendri
grundu. Um þriðjungur hjúkrunarfræðinga
er nú í þessum hugleiðingum og í
aldursflokknum 2434 ára horfa um 64%
svarenda út fyrir landsteinana og 40%
þeirra sem eru í aldursflokknum 3544
ára. Þessar tölur eru sláandi og mikið
áhyggjuefni fyrir okkar stétt. Við þurfum á
Síðustu daga og vikur hef ég ásamt
sviðstjóra kjara og réttindasviðs
farið hringferð um landið og hitt
hjúkrunarfræðinga. Þessi ferð hefur verið
mjög skemmtileg og fræðandi. Gaman er
að sjá hvað hjúkrunarfræðingar eru að gera
á landsbyggðinni og sjá vinnuumhverfi
þeirra og heimabyggð. Við eigum víðs
vegar um landið mikið af flottum og
frambærilegum hjúkrunarfræðingum
sem eiga ríkan þátt í að halda uppi
heilbrigðisþjónustu, oft og tíðum við
erfiðar aðstæður og lítinn stuðning. Vel
var mætt á þá fundi sem við héldum og
greinilegt að hjúkrunarfræðingar eru fullir
af eldmóði og tilbúnir til þess að láta til
sín taka á fjölbreyttum vettvangi.
Markmið okkar með þessu ferðalagi var að
heyra hvað það er sem hjúkrunarfræðingar
telja mikilvægt að leggja áherslu á í
komandi kjarasamningum. Tilgangurinn
var einnig sá að þjappa stéttinni saman og
efla samstöðu okkar á milli. Samstaðan
er lykilatriði í allri hagsmunabaráttu
stéttarinnar.
Kjarasamningar Félags íslenskra
hjúkrunar fræðinga renna sitt skeið á
enda 30. apríl 2015 að undan skildum
samningi félagsins við sveitarfélögin
en hann rennur út í lok ágúst mánaðar.
þessum einstaklingum að halda í íslensku
heilbrigðiskerfi.
Stórt skref hefur verið stigið til eflingar
heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Aukin fjár
framlög til stofnana og viljayfirlýsing um
uppbyggingu kerfisins hafa litið dagsins
ljós og er ekkert nema gott um það
að segja. Vinnuaðstæður okkar hafa
mikið að segja um líðan okkar við störf,
starfsánægju og hversu vel okkur tekst
að inna verk okkar af hendi. Það er þó
ljóst að það dugir ekki eitt og sér til að
halda hjúkrunarfræðingum í starfi eða til
að efla nýliðun stéttarinnar. Leiðrétting á
kjörum okkar er orðin löngu tímabær og
nauðsynleg fyrir framtíð stéttarinnar.
Skilaboð félagsmanna til mín á þessu
ferðalagi um landið eru skýr. Hjúkrunar
fræðingar sætta sig ekki lengur við þau
kjör sem í boði eru og vilja fá leiðréttingu
launa sinna. Ég heyri þau skilaboð hátt og
skýrt og ég heyri líka að stéttin er tilbúin
að gera það sem þarf til að knýja fram
þá leiðréttingu sem þörf er á. Hjúkrun
er nauðsynleg íslensku samfélagi, námið
er langt og strangt, ábyrgðin er mikil
og álagið gríðarlegt. Þekking okkar er
heilbrigðiskerfinu nauðsynleg. Horfa
verður til þessara þátta þegar samið er
um okkar kjör.
Við vonum öll að ekki þurfi að koma
til aðgerða af hálfu hjúkrunarfræðinga
í komandi kjarasamningum en biðlund
hjúkrunarfræðinga er þrotin. Samstaðan
er til staðar, krafturinn er til staðar og nú
er að duga eða drepast. Útsölu á launum
hjúkrunarfræðinga er hér með lokið!
ÚTSÖLUNNI ER LOKIÐ!
Ólafur Guðbjörn Skúlason.
Allt sem þú þarft í vinnuna
H E I L S A
Eirberg Heilsa • Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Æfingateygjur
– endalausir möguleikar
AWC vinnuskór
– öryggi og þægindi í fyrirrúmi
Pennaljós, vinnuúr og vasaskæri
– þegar smáatriðin skipta máli
Mettunarnemar
– hljóðlátir og nettir
MDF hlustunarpípur
– margir litir og lífstíðarábyrgð
Vinnusokkar
– fjölbreytt úrval, margir litir