Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 11
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 7
Í íslenskri rannsókn meðal almennings
sögðust 40% þátttakenda hafa fundið
fyrir verkjum undanfarna viku og 31%
hafði haft verki í þrjá mánuði eða lengur
(Gunnarsdottir o.fl., 2010). Erlendar
rannsóknir sýna að 4888% sjúklinga
á sjúkrahúsum finna fyrir verkjum og
um þriðjungur þeirra upplifir mikla verki
(Maier o.fl., 2010; Vallano o.fl., 2006).
Svipaðar niðurstöður hafa fengist á
Landspítala. Í rannsókn á 23 legudeildum
á skurð og lyflækningasviðum Land
spítala reyndist tíðni verkja vera 83%,
meðalstyrkur verstu verkja var 4,6 á
kvarðanum 010 og 35% þátttakenda
hafði fundið fyrir miklum verkjum (≥7 á
kvarðanum 010) undanfarinn sólarhring
þegar spurt var (Zoëga o.fl., í prentunb).
Á skurðlækningasviði Landspítala
reyndist 81% þátttakenda hafa haft verki
undan farinn sólar hring og var styrkur
þeirra að jafnaði 4,0 á kvarðanum 010
(Lára B. Ásmundsdóttir o.fl., 2010). Hjá
krabba meinssjúklingum á Land spítala
reyndust verkir vera þriðja sterkasta
einkenni þátt takenda þrátt fyrir meðferð
með sterkum verkja lyfjum (Zoëga o.fl.,
2013). Þá virðist mati á verkjum og
skráningu vera ábótavant á Landspítala.
Í rannsókn Zoëga o.fl. (í prentuna) kom í
ljós að mat á verkjum var skráð hjá 57%
þátt takenda en viðurkenndir kvarðar voru
einungis notaðir í 27% tilvika. Þetta
er athyglisvert í ljósi þess að í sömu
rannsókn kom fram að notkun kvarða
var tengd meira viðeigandi verkjameðferð
en hjá þeim sem ekki voru metnir með
kvörðum.
Mat á bráðum verkjum
Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðasamtaka
um verkjarannsóknir, International
Association for the Study of Pain, er
verkur óþægileg skynjun og tilfinningaleg
reynsla af völdum raunverulegs eða
hugsanlegs vefjaskaða, eða er lýst sem
slíkum (IASP Task Force on Taxonomy,
1994). McCaffery (1968) (í Herr o.fl.,
2011) segir á hinn bóginn að verkur sé
það sem einstaklingur segir að sé verkur
og er til staðar þegar hann segir svo
vera. Þessar skilgreiningar sýna að verkir
eru huglægir og því er eigið mat sjúklings
forsenda áreiðanlegs mats á verkjum.
Mikilvægt er að gefa sjúklingum færi
á að vera virkir þátttakendur í verkja
meðferðinni þar sem það getur stuðlað
að betri árangri hennar (Zoëga o.fl., í
prentunb). Þetta á ekki síst við um mat
á verkjum þar sem sjúklingurinn einn
getur raunverulega sagt til um hvernig
og hversu miklir verkirnir eru. Fyrsta
skrefið við mat er að skima fyrir verkjum
með því að spyrja einstaklinginn um
hvort hann hafi verki. Skima þarf fyrir
verkjum þegar sjúklingur leggst inn á
sjúkrastofnun, við komu á heilsugæslu
eða vitjun í heimahús, ef breyting verður
á heilbrigðisástandi og við hvers konar
meðferð eða inngrip sem framkallað getur
verki. Hjá inniliggjandi sjúklingum skal
skima reglulega fyrir verkjum en hversu
oft fer eftir starfsemi stofnunar, veittri
meðferð og ástandi sjúklings (Registered
Nurses Association of Ontario, 2013).
Hafa þarf í huga að sjúklingar láta ekki
alltaf vita af verkjum að fyrra bragði og
því er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk
spyrji um þá.
Hafi sjúklingur verki þarf að framkvæma
nánara mat. Í upphafi meðferðar þarf
að fá greinargóðar upplýsingar um
verkina. Spyrja þarf um upphaf verkja,
staðsetningu, styrk, eðli, hvernig verkirnir
haga sér, hvað dragi úr verkjum eða auki
þá, hvaða meðferð hefur verið reynd,
hvað hefur virkað og hvað ekki (Anna
Tafla 1. Grunnatriði mats á bráðum verkjum.
Matsþættir
Við/fyrir innlögn á sjúkrahús Fyrri saga
Langvinnir verkir fyrir aðgerð
Kvíði
Skimun
ertu með verki, já eða nei?
Við innlögn á sjúkrahús/komu til heilbrigðisstarfmanns
Þegar breyting verður á ástandi
Við hvers konar inngrip sem getur framkallað verki
Reglubundið hjá legusjúklingum
Mat
ef sjúklingur er með verki
Staðsetning verkja
Styrkur verkja
Verkir í hvíld, við hreyfingu/hósta/djúpöndun
Mat á árangri Styrkur verkja
Virkni sjúklings
Aukaverkanir meðferðar
Mynd 1. Láréttur tölukvarði (NRS).
10984 73 62 510
Engir
verkir
Verstu
mögulegu
verkir
Mynd 2. Lóðréttur tölukvarði (NRS)
með orðakvarða.
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
Gríðalegir
verkir
Miklir
verkir
Miðlungs
verkir
Vægir
verkir
Engir
verkir