Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Qupperneq 20
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201516
„7 góð ráð“ við hjúkrun
Parkinsonsjúklinga
Í eftirfandi köflum verður fjallað um sjö
góð ráð til þess að auka gæði þjónustu
við Parkinsonsjúklinga. Fyrir yfirlit yfir
þessi ráð, sjá mynd 1.
Ráð 1: Gefið alltaf lyfin á réttum tíma
Lyfjameðferð er lífsnauðsynleg við með
höndlun Parkinsonveiki. Fyrstu árin eftir
greiningu er hægt að gleyma stöku
lyfjaskammti án þess að það valdi
breytingu á hreyfifærni. Með árunum þarf
að fjölga lyfjaskömmtum og bæta við
lyfjum (Henriksen o.fl., 2012). Sumir taka
lyf allt að 89 sinnum á dag og þurfa lyfin
á ákveðnum tímum til þess að koma í veg
fyrir skyndistirðleika, kyngingartregðu og
byltur. Hefðbundnir tímar lyfjagjafar á
stofnunum eiga því ekki við. Við móttöku
Parkinsonsjúklinga þarf þess vegna að:
• útvega Parkinsonlyf strax, það má ekki
bíða til næsta dags,
• tryggja að lyf séu rétt skráð,
• merkja lyfjabakka með skærgulum
Parkinsonlyfjamiða „Get it on time“
eða nota aðra áminningu,
• ekki láta sjúkling hætta skyndilega á
Parkinson lyfjum, til dæmis ef hann þarf
að fasta, getur ekki borðað með eðli
legum hætti eða þarf að fara í rannsóknir.
Þurfi sjúklingur að fasta vegna aðgerðar
eða rannsóknar er mikilvægt að laga
lyfjagjöfina að föstunni vegna hættu á
Parkinsonkreppu sem er lífshættulegt
ástand. Sjá töflu 3 fyrir yfirlit yfir helstu
einkenni, orsakir og meðferð við
Tafla 2. Skilgreining á einkennum sem fylgja Parkinsonveiki og meðferð hans.
Einkenni Skilgreining
Hvíldarskjálfti (e. rest tremor)
Einkennist af rykkjóttum kippum sem hverfa eða minnka við hreyfingu. Undir þetta flokkast einnig svokallað
„töflunudd“ (e. pillrolling) sem er hvíldarskjálfti sem aðallega sést í höndum og fingrum – lítur út eins og sjúklingur
sé að nudda töflu á milli vísifingurs og þumalfingurs. Streita og kvíði geta magnað upp skjálftann.
Ofhreyfingar (e. dyskinesia) Einkennast af hringlaga (e. choreatiskum) ósjálfráðum hreyfingum sem geta komið fram í öllum líkamanum.
Hreyfingarnar eru aukaverkanir af lyfjum sem innihalda levódópa.
„Onoff“sveiflur
Lýsir skyndilegum sveiflum í hreyfigetu sem ekki samræmast tíma lyfjagjafar eða verkun lyfja.
Þegar einstaklngur er „on“ getur hann hreyft sig. „Off“einkenni eru kröftug einkenni sem hamla hreyfingum
sjúklings töluvert eða alveg. Þessi einkenni koma skyndilega og endast oftast frá 1/2 klukkustund upp í margar
klukkustundir. „On“ og „Off“ má líkja við að það sé kveikt eða slökkt á ljósarofa.
Parkinsonkreppa
Lífshættulegt ástand sem skapast annaðhvort þegar lyfjagjöf er skyndilega hætt eða vegna aukaverkana af róandi
lyfjum og geðrofslyfjum. Einkennin eru mikill vöðvastirðleiki, skert meðvitund, hiti > 38,5° C, mikill sviti, óstöðugur
blóðþrýstingur og hraður hjartsláttur.
Skynditregða á hreyfigetu (e. frost)
Er tímabundinn missir á hæfileikanum til að hefja eða viðhalda hreyfingu. Getur varað í nokkrar sekúndur eða í
sumum tilfellum í nokkrar mínútur. Þetta gerist skyndilega, sérstaklega þegar sjúklingur er á göngu, og lýsir sér
þannig að fæturnir „límast“ við gólfið. Samfara þessu skerðist geta hans til þess að tala, skrifa og jafnvel að depla
augunum.
„Wearing off“
Áhrif síðustu lyfjagjafar dvína og aukin hreyfieinkenni koma fram áður en næsti lyfjaskammtur byrjar að virka.
Heimildir: Danmodis (2011); Marianne E. Klinke (2006); Matusch o.fl. (2009).
Tafla 3. Parkinsonkreppa: Einkenni, orsakir og meðferð.
Einkenni Orsakir Meðferð
Aðaleinkenni eru:
Mikill vöðvastirðleiki
Minnkuð meðvitund
Hiti > 38,5 °C
Mikill sviti
Óstöðugur blóðþrýstingur
Hraður hjartsláttur
Stirðleikinn getur leitt til hækkunar á kreatín
fosfókínasa. Einnig sést oft fjölgun á hvítum
blóðkornum.
• Parkinsonlyfjagjöf er
skyndilega hætt.
• Notkun geðrofslyfja/
róandi lyfja (e. neuroleptics)
sem geta truflað starfsemi
dópamíns. Einkenni koma
þá fram 215 dögum síðar.
Líklega þarf sjúklingurinn á gjörgæslueftirliti að halda; meðhöndla
blóðrásar og öndunartruflanir.
Fyrsta meðferð:
• Setja aftur inn levódópalyf í sömu skömmtum og áður. Ef sjúklingurinn
er ófær um að kyngja töflum má gefa lyfin í gegnum magaslöngu.
• Hætta geðrofslyfjum.
Framhaldsmeðferð:
Tryggja vökvajafnvægi og leiðrétta saltbúskap.
Hitalækkandi meðferð.
Tryggja næga næringu, fyrirbyggja blóðtappa, legusár, lungnabólgu
og svo framvegis.
Heimild: Matusch o.fl. (2009).