Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Qupperneq 30
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201526
Síðastliðið haust var í fyrsta sinn boðið
upp á meistaranámskeið um sálræn áföll,
ofbeldi og áfallastreitu við heilbrigðis
vísindasvið Háskólans á Akureyri (HA).
Námskeiðið var haldið í samstarfi
við hug og félagsvísindasvið HA og
Jafnréttis stofu. Meistara námskeiðið sátu
meistaranemar og fagfólk úr ýmsum
áttum, allt frá Vestmannaeyjum til
Ísafjarðar og Þórshafnar, og var greini
lega mikil þörf fyrir námskeiðið því það
sátu 56 manns. Námskeiðinu lauk með
málþingi þar sem nemendum gafst
kostur á að kynna verkefni sín. Áherslan
á málþinginu, sem var öllum opið, var:
Einelti í allri sinni mynd. Yfir hundrað
manns sóttu málþingið og komu margir
úr skólakerfinu. Flestir þátttakendur voru
hjúkrunarfræðingar og því mikilvægt að
ná til annarra stétta þegar námskeiðið
verður haldið næst svo tryggja megi að
þekkingin dreifist sem víðast.
Námskeiðið, sem er til 5 eða 10
eininga, byggist á þverfaglegri sýn á
sviði heilbrigðisvísinda, félagsvísinda,
menntavísinda og laga. Með því að
samþætta þekkingu og reynslu margra
fagstétta og vísindasviða öðlast
nemendur þekkingu á heildrænni
og þverfaglegri sýn. Áhersla er lögð
á forvarnir, einkenni, afleiðingar og
meðferðarúrræði. Fjallað er um helstu
skilgreiningar, forvarnir, einkenni sem
geta komið fram, líkamlegar, sálrænar og
félagslegar afleiðingar og þær leiðir sem
einstaklingar geta valið til úrvinnslu og í
meðferð. Fjallað er um ofbeldi og sálræn
áföll með tilliti til viðbragða í skólakerfinu
og einnig í tengslum við mannréttindi og
lagaumhverfi.
Að námskeiðinu loknu skal nemandi:
• geta gert grein fyrir einkennum og
afleiðingum sálrænna áfalla, ofbeldis og
áfallastreitu og hvaða meðferðarúrræði
eru í boði
• geta fjallað um skammvinnar og
langvinnar afleiðingar sálrænna áfalla
og ofbeldis fyrir líkama, sál, félagslegt
umhverfi og samfélagið í heild sinni
Sigrún Sigurðardóttir, sigrunsig@unak.is
• kunna skil á einkennum áfallastreitu
og þeim mismunandi aðferðum sem
beitt er og leiðum sem notaðar eru
til úrvinnslu og til að stuðla að virkri
þátttöku einstaklingsins
• þekkja helstu leiðir í þverfaglegri
samvinnu mismunandi fagstétta frá
sjónarhorni skjólstæðinga, fagfólks og
samfélagsins
• geta rætt um hvaða áhrif og afleiðingar
sálræn áföll og ofbeldi geta haft á
heilsufar og líðan og hvert skal vísa
einstaklingum með slíka reynslu til
markvissrar úrvinnslu
• þekkja helstu leiðir til forvarna og
mikilvægi þeirra fyrir samfélagið
• þekkja þau úrræði og leiðir sem eru
til og sem hugsanlegar eru innan
menntastofnana og annarra stofnana
innan sveitarfélaga
• þekkja hvernig lagakerfið verkar
fyrir þolendur ofbeldis, helstu dóma
sem hafa fallið á því sviði og hvernig
stjórnsýslukerfið starfar.
Námskeiðið er kennt í lotum, einn og
hálfan dag einu sinni í mánuði í fjóra
mánuði, og hentar því vel fyrir fólk sem
er á vinnumarkaðnum eða býr ekki á
Akureyri. Allir fyrirlestrar eru teknir upp
og hafa nemendur aðgang að þeim á
kennsluvef námskeiðsins. Engin próf eru
í framhaldsnáminu en nemendur vinna
verkefni á milli lota. Fjöldi kennsluslustunda
í námskeiðinu er 48, nemendur geta valið
um að taka tvær eða fjórar lotur til 5 eða
10 eininga og gert verkefni samkvæmt því.
Í fjórum lotum námskeiðsins er eftirfarandi
tekið fyrir: Sálræn áföll og ofbeldi,
heimilisofbeldi, einkenni og afleiðingar,
áfallastreita, að vinna með þolendum
áfalla og ofbeldis, hlutverk fagaðila, helstu
aðgerðir gegn ofbeldi, ofbeldi og einelti
í framhaldsskólum og grunnskólum,
ofbeldi og lög, mannréttindi, löggjöf
og forvarnargildi, ofbeldi og fjölmiðlar,
þolendur ofbeldis í undirheimum,
mansal, úrvinnsla og meðferðarúrræði
við áfallastreitu og ofbeldi á meðgöngu.
Verkefni námskeiðsins byggjast á því
að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda
og að hugsa út fyrir rammann um það
hvað hægt sé að gera til að bregðast við
vandamálum í þjóðfélaginu.
Umsjón með námskeiðinu hafa Sigrún
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur
og lektor við heilbrigðisvísindasvið
HA, Bergljót Þrastardóttir, kennari og
sérfræðingur á Jafnréttisstofu, og Ágúst
Þór Árnason, dósent við lagadeild
HA. Nánari upplýsingar veitir Sigrún
Sigurðardóttir. Til stendur að halda
námskeiðið aftur á vormisseri 2016.
NÁMSKEIÐ UM SÁLRÆN ÁFÖLL,
OFBELDI OG ÁFALLASTREITU