Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 34
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201530
lega einn ánægjulegasti hluti starfsins.
Að kveðja nemendurna og horfa á eftir
þeim út í sjálft lífið er ótrúlega gefandi.“
Óvænt í pólitíkina
„Ég hafði aldrei skipt mér af pólitík og
hafði reyndar aldrei gefið upp mínar
skoðanir í stjórnmálum. Sem stjórnandi
á stórum vinnustað fannst mér það
ekki viðeigandi. Nokkru fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar komu fulltrúar
Samfylkingarinnar hérna á Akureyri að
máli við mig og vildu fá mig í framboð.
Eftir talsverða umhugsun ákvað ég að slá
til, sérstaklega vegna þess að ég taldi mig
hafa reynslu og þekkingu fram að færa
sem gæti gagnast samfélaginu. Til að
gera langa sögu stutta skipaði ég annað
sæti framboðslista flokksins sem fékk tvo
fulltrúa. Ég settist því í bæjarstjórn í vor
og er því enn að kynnast þessu nýja og
um margt ögrandi verkefni.“
Sigríður Huld segir að skilgreina
megi starf bæjarfulltrúans sem
þjónustuhlutverk. „Já, hiklaust. Ég tel
mig vera í vinnu fyrir mitt nærsamfélag
og gæta hagsmuna þess. Og ef við
líkjum störfum bæjarfulltrúanna við störf
hjúkrunarfræðinganna eru þau á margan
hátt af svipuðum toga. Bæjarfulltrúinn
hugsar um vellíðan bæjarins og
hjúkrunar fræðingurinn hugsar um vellíðan
sjúklingsins. Bæjarfulltrúinn vill að fólkinu
í bænum líði vel rétt eins og hjúkrunar
fræðingurinn vill að sjúklingnum líði sem
best. Þegar á öllu er botninn hvolft mættu
gjarnan vera fleiri hjúkrunarfræðingar í
pólitík!“
Sigríður Huld er formaður félagsmálaráðs
sem nýverið hefur ákveðið að endurskoða
stefnu bæjarins í velferðarmálum.
„Þetta er um margt krefjandi verkefni.
Þreyta í samfélaginu birtist víða
vegna niðurskurðar, átaka af ýmsum
toga og svo framvegis. Margt ungt
fólk getur ekki sinnt námi eða vinnu
vegna eiturlyfjanotkunar og geðrænna
sjúkdóma svo dæmi sé tekið. Ég vil
leggja mín lóð á vogarskálarnar, þess
vegna gaf ég kost á mér til bæjarstjórnar.
Vonandi tekst mér að verða samfélaginu
til gagns enda tók ég þetta verkefni að
mér með það fyrir augum.“
Auglýst eftir ágripum
Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica
dagana 8.-9. október 2015
Boðið verður upp á fyrirlestra, vinnusmiðjur
og veggspjaldakynningar.
Umsóknafrestur til að senda inn ágrip er til 30. apríl 2015
Sjá nánar undir fagsviði á www.hjukrun.is
HJÚKRUN 2015
Heilbrigðisþjónusta: fagmennska og framtíðarsýn
HJÚKRUN 2015 er vísindaráðstefna
haldin í samstarfi eftirfarandi aðila:
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarfræðideildar HÍ
Hjúkrunarfræðideildar HA
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Landspítala