Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 43
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 39
175 hjúkrunarkonur eru félagar í FÍH, af þeim eru 59 giftar,
þar af 7 erlendis, 6 giftar hjúkrunarkonur eru við störf eins
og stendur. Af þessum 116 eru 11 erlendis, 5 eru frá störfum
sökum elli eða veikinda. Við störf eru því 106 hjúkrunarkonur.
Af þeim starfa:
• 80 við sjúkrahús.
• 19 við heilsuvernd.
• 3 við einkahjúkrun.
• 4 við önnur störf er heyra undir þjóð félags mál.
• Um 810 stöður eru óskipaðar, eins og stendur, ef ekki fleiri.
Það má búast við allt að því 5 nýjum stöðum árlega. T.d.
mynduðust 8 nýjar stöður frá því síðari hluta ársins 1941 til
þessa tíma, er hafa verið skipaðar.
Síðastliðin 10 ár hafa útskrifast 99 hjúkrunarkonur úr Hjúkrunar
kvennaskóla Íslands og eru það 10 á ári að meðaltali. Af
þessum 99 konum eru 37 giftar og 2 dánar.
Af þessu verður séð að langflestar hjúkrunarkonur hætta
störfum vegna giftinga og gefa flestar þeirra ekki kost á sér
til starfa eftir það. Þessi og önnur ófyrirsjáanleg fráföll lærðra
hjúkrunarkvenna hafa ekki verið bætt upp. En aftur á móti
hefir hingað til, vegna góðrar aðsóknar að skólanum, verið
hægt að gera fyrir fráföllum á nemunum, en þau verða alltaf
nokkur, einkanlega í byrjun námstímans, með því að taka fleiri
nema í forskóla Hjúkrunarkvennaskólans sem grípa má til
ef þörf gerist. Þetta gerir það að verkum að skólinn er alltaf
fullskipaður á öllum tímum.
Námstímabilið er 3 ár eins og kunnugt er, en það er ekki alltaf
athugað að árið eftir að hjúkrunarkonurnar útskrifast stunda
þær 6 mánaða framhaldsnám á geðveikrahælinu á Kleppi og
margar 4 mánaða framhaldsnám á skurðstofu Landspítalans.
Þær koma því ekki til greina sem fullgildur vinnukraftur fyrr en
eftir tæplega 4 ár frá því þær byrja námið. Fyrir stríðið dvöldu
ávallt margar hjúkrunarkonur við framhaldsnám erlendis, og
er sjálfsagt að gera ráð fyrir að eftir stríð sæki í sama horfið.
Sú breyting var gerð á fyrirkomulagi skólans síðastliðið ár að
nemarnir eru nú teknir inn haust og vor. Þetta gerir það að
verkum að dreifing vinnukraftarins verður jafnari yfir árið.
Nú munu margir spyrja: Hvers vegna er ekki nemum
hjúkrunarkvennaskólans fjölgað? Það er eðlilegt að svona sé
spurt því það ætti að vera sú einfalda lausn málsins að bæta við
nemum. En allir sem til þekkja vita að það er óframkvæmanlegt
að fjölga nemum af þeim ástæðum sem nú skal greina.
Í fyrsta lagi, ef fleiri nemar væru teknir myndi hlutfallið milli
þeirra og lærðra hjúkrunarkvenna á spítalanum raskast um of.
Í öðru lagi er það algerlega útilokað meðan skólinn fær ekki
eigið húsnæði að bæta við fleiri nemum. Aftur á móti, ef byggt
yrði yfir skólann og þriðja hæð sjúkrahússins yrði tekin til afnota
fyrir sjúklinga, eins og upphaflega var fyrirhugað, myndi lærðum
hjúkrunarkonum fjölga og yrði þá strax hægt að bæta við nemum
og myndi sú aukning nema allt að því 56 nemum árlega.
Það er ekki hægt að véfengja þá staðreynd að skortur
hjúkrunarkvenna í landinu hlýtur innan skamms að draga úr eðlilegri
þróun heilbrigðismála þjóðarinnar. Hjúkrunarkonan er virkur aðili
í framkvæmdum þessara mála og án hennar getur rekstur
sjúkrahúsa eða fullkomlega skipulögð heilsuverndarstarfsemi ekki
þrifist. Fyrir utan það að ef til hernaðaraðgerða kæmi hér á landi
á næstunni og óbreyttir borgarar yrði fyrir slysum myndi skortur á
hjúkrunarkonum hljóta að hafa mjög alvarlegar afleiðingar.
Svona standa nú sakirnar í þessu máli og er það augljóst að
þetta er ekki vandamál hjúkrunarstéttarinnar einnar og verður
því ekki leyst af henni, heldur þjóðfélagslegt vandamál sem allir
borgarar eiga rétt á að verði tekið til úrlausnar án frekari tafa.
Greinin birtist upphaflega í 1. tölublaði Hjúkrunarkvennablaðsins
1942. Höfundur greinar (S.B.) er að öllum líkindum Sigríður Bachmann
en hún var þá ritari í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarkvenna. Á
þessum tíma starfaði hún á Akureyri en sjö árum síðar var hún ráðin
skólastjóri við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands.
LEIÐBEININGAR UM RITRÝNDAR
GREINAR UPPFÆRÐAR
Fræðiritnefnd hefur nú gefið út uppfærðar leiðbeiningar til
höfunda ritrýndra greina ásamt leiðbeiningum til ritrýna.
Einnig hafa verið gerðir nýir gátlistar. Skjölin má finna á
vef tímaritsins.
Handrit send inn eftir 1. mars 2015 með beiðni um ritrýni
þurfa að vera frágengin samkvæmt nýjum leiðbeiningum.
Höfundar annarra greina, þar sem vitnað er í heimildir,
eru einnig hvattir til þess að kynna sér heimildareglurnar.