Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 44
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201540
Vakin er athygli hjúkrunarfræðinga á
fjölbreyttu framhaldsnámi í hjúkrunarfræði
við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Haustið 2015 verður boðið upp á fram
haldsnám í geðhjúkrun, hjúkrun langveikra
og eldri borgara, hjúkrun aðgerðasjúklinga
og sjúklinga með bráð og alvarleg
veikindi, öldrunarhjúkrun, skurðhjúkrun og
svæfingahjúkrun og er umsóknarfrestur
til 15. apríl nk. Eins og undanfarin ár
er áfram boðið upp á meistaranám þar
sem áhersla er lögð á hlutverk klínískra
sérfræðinga, hjúkrunarstjórnun eða
rannsóknir. Auk þess er í boði grunn
og meistaranám í ljósmóðurfræði og
þverfræðilegt diplómanám í kynfræði.
Áfram verður boðið upp á einstök
námskeið á meistarastigi í samstarfi við
Endurmenntun Háskóla Íslands.
Helga Bragadóttir, helgabra@hi.is, fyrir hönd rannsóknanámsnefndar
Sífellt fleiri sækja um doktors nám í hjúkr
unar fræði deild og eru hjúkrunar fræðingar
hvattir til að kynna sér umsóknar ferlið en
tekið er við umsóknum allt árið.
Metnaðarfullir hjúkrunarfræðingar eru
hvattir til að kynna sér námsframboðið
á heimasíðu deildarinnar. Frekari
upplýsingar má fá hjá verkefnastjóra
framhaldsnámsins, Margréti Gunnars
dóttur, maggagu@hi.is.
Meistara og diplómanám:
Geðhjúkrun
Markmið meistaranáms í geðhjúkrun er að
dýpka þekkingu nemenda á hugmynda
fræði geðhjúkrunar og að þjálfa nemendur
í að meta geðheilbrigði og áhættuþætti
geðheilbrigðis meðal einstaklinga, fjöl
skyldna og hópa. Jafnframt er lögð rík
áhersla á að nemendur öðlist færni í að
beita markvissri hjúkrunar meðferð, þróa
hana og prófa innan stofnana sem utan.
Nám skeið á sviði geðhjúkrunar eru: Geð
heilbrigði I; Greining, meðferð og úrræði
og Geðheil brigði II; Sérhæfð geðhjúkrun.
Diplóma námið er til 30 ECTSeininga.
Megin tilgangur þess er að efla færni og
þekkingu hjúkrunarfræðinga sem annast
um geðsjúka og fólk sem tekst á við
fjölbreytt geðræn vandamál, vinna að
forvörnum og starfa að framgangi geð
heilbrigðis mála almennt. Kennsla fer að
mestu fram samhliða meistaranámi í geð
hjúkrun.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Jóhanna Bernharðs
dóttir, johannab@hi.is.
FJÖLBREYTT FRAMHALDSNÁM Í
HJÚKRUNARFRÆÐI – LEIÐIN TIL FRAMTÍÐAR