Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 45
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 41
Meistaranám: Hjúkrun langveikra og
eldri borgara
Markmið meistaranáms í hjúkrun
langveikra og eldri borgara er að nemendur
tileinki sér þekkingu á eðli langvinnra
veikinda og erfiðleika sem tengjast áföllum
og breytingum sem verða á færni og
heilsufari samfara hækkandi aldri. Lögð
er áhersla á að efla færni í greiningu
afmarkaðra heilsufarsvandamála og
þróun meðferðar á vettvangi heilbrigðis
stofnana, heilsugæslu og heima hjúkrunar.
Nemendur geta valið ýmis nám skeið, bæði
þau sem hafa verið skipu lögð í tengslum
við diplómanám í öldrunarhjúkrun (sjá hér
að neðan) og eins námskeið innan og
utan deildar, t.d. í lýðheilsu.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Kristín Björnsdóttir,
kristbj@hi.is.
Diplómanám: Öldrunarhjúkrun
Í diplómanámi í öldrunarhjúkrun gefst
nemendum tækifæri til að dýpka þekkingu
sína á líkamlegum og sálfélagslegum
þáttum er tengjast öldrun, jafnframt því
að auka klíníska færni við skipulagningu
meðferðar, leiðsögn, stuðning og fræðslu
til skjólstæðinga, fjölskyldna þeirra og
samstarfsmanna. Mikilvægur þáttur
námsins er hagnýting gagnreyndrar
þekkingar og kenninga við hjúkrun og
skipulagningu þjónustu við aldraða.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Ingibjörg Hjaltadóttir,
ingihj@hi.is.
Meistaranám: Hjúkrun
aðgerðasjúklinga og sjúklinga með
bráð og alvarleg veikindi
Markmið meistaranáms í hjúkrun
aðgerða sjúklinga og sjúklinga með
Viltu vera virkur
þátttakandi í framþróun
hjúkrunar á Íslandi?
Kynntu þér framhaldsnám
í hjúkrunarfræði.
Umsóknarfrestur er til
15. apríl 2015.
bráð og alvarleg veikindi er að veita
hjúkrunar fræðingum tæki færi til að dýpka
þekkingu, skilning og færni við hjúkrun
fólks með bráð og alvarleg veikindi.
Að námi loknu hafa nemendur öðlast
sér hæfða þekkingu á ein kennum og
þörfum bráð veikra og alvar lega veikra
sjúklinga og geta veitt fjöl breytta og
yfirgrips mikla hjúkrun og metið árangur
hennar. Námið byggist á hug mynda fræði
klínískra sér fræðinga í hjúkrun (advanced
practice nursing) og felur í sér áherslu á
klíník, gagn reynda þekkingu, verk ferla og
vinnu lag, teymis vinnu og rann sóknir.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Herdís Sveinsdóttir,
herdis@hi.is.
Diplómanám: Skurðhjúkrun
Markmið diplómanáms í skurðhjúkrun
er að nemendur öðlist þekkingu og
færni í skurðhjúkrun og móti með sér
heildarmynd af starfsgreininni byggða á
hugmyndafræðilegum grunni hjúkrunar.
Að námi loknu geti þeir nýtt kenningar,
hugtök og rannsóknaniðurstöður við
úrlausnir sjálfstæðra hjúkrunarverkefna
í skurðhjúkrun. Námið dýpkar fræðilega
þekkingu nemenda og felur í sér
hvatningu til þeirra um að fylgjast með og
stunda rannsóknir, endur og símenntun
og stuðla þannig að þróun fagsins
innanlands og á alþjóðlegum vettvangi.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Helga Hallgrímsdóttir,
helgahal@landspitali.is.
Diplómanám: Svæfingahjúkrun
Diplómanám í svæfingahjúkrun byggist á
gæðastöðlum um nám í svæfingahjúkrun
sem samþykktir eru af alþjóðasamtökum
svæfingahjúkrunarfræðinga (IFNA).
Aðeins verður unnt að taka við tilteknum
fjölda vegna takmarkaðrar getu sjúkra
stofnana til að taka við nemendum í
klínískt nám.
Upplýsingar veita Margrét Gunnarsdóttir,
maggagu@hi.is, og Lára Borg Ásmunds
dóttir, laraasmu@landspitali.is.
Helga Bragadóttir er dósent við hjúkrunar
fræðideild HÍ og formaður rannsókna náms
nefndar.