Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 52
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201548
og samfélagsbreytinga. Upprunalega samdi Search
Institute í Bandaríkjunum spurningalistann í tengslum við
kynfræðsluefnið Kynfræðsla: Lífsgildi og ákvarðanir. Safnað
var gögnum um bakgrunn þátttakenda, umræður við foreldra
um kynheilbrigðismál, þekkingu, viðhorf og kynhegðun.
Bakgrunnsspurningar voru sjö og fjölluðu um aldur, kyn, búsetu,
menntun móður, menntun föður, áætlaða skólagöngu og
einkunnir. Umræðuspurningar voru þrjár og lutu að því hversu
oft unglingar ræddu við foreldra, hver voru umræðuefnin og
gæði samtalanna. Þekking var skoðuð með ellefu spurningum
sem hægt var að svara ýmist rétt eða rangt. Dæmi: „Hægt er
að vera með kynsjúkdóm án þess að hafa einkenni.“ Fimmtán
fullyrðingar snerust um viðhorf og voru þær á fimm bila Likert
kvarða frá „mjög sammála“ til „mjög ósammála“. Spurningar
um kynhegðun voru alls átta en unnið var úr fimm þeirra þar
sem fáir voru byrjaðir að stunda kynlíf. Þessar fimm spurningar
voru um það hvort nemandinn hefði verið á föstu, væri nú á
föstu, væri byrjaður að stunda kynlíf, fjöldi vina sem byrjaðir
væru að stunda kynlíf og aldur við fyrstu kynmök.
Framkvæmd rannsóknar
Áður en rannsóknin var framkvæmd var sótt um leyfi hjá
Menntasviði Reykjavíkurborgar, hjá Vísindasiðanefnd
(VSNb2010080006/03.7) og rannsóknin var tilkynnt
til Persónuverndar (S4941/2010). Þá var fengið leyfi hjá
viðkomandi skólastjóra og foreldrum. Allir foreldrar og
nemendur fengu sent kynningarbréf þar sem rannsóknin
og framkvæmd hennar var kynnt. Óskað var eftir samþykki
foreldra um þátttöku þeirra unglings í upphafi og í lok
rannsóknar. Í þeim tilvikum, þar sem ekki barst svar frá foreldri,
var hringt og beiðni um þátttöku fylgt eftir. Þeir nemendur, sem
fengu leyfi, voru 126 eða 89% af öllum nemendafjöldanum.
Af þessum 126 svaraði 101 nemandi báðum könnununum.
Afföllin voru einkum vegna þess að nemendur mættu ekki í
skólann þegar könnunin var lögð fyrir. Kynningarfundur var
haldinn um rannsóknina og kynfræðsluefnið fyrir stjórnendur,
kennara, námsráðgjafa og hjúkrunarfræðing. Fyrri könnunin
(Fyrirlögn I, FI) var lögð fyrir þátttakendur 12. október 2010,
viku áður en kynfræðslan hófst. Þeir sem sáu um kennsluna
voru annars vegar kennari og meistaranemi í lýðheilsuvísindum
og hins vegar ljósmæðranemar við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands. Áður en íhlutun hófst tóku kennararnir þátt
í undirbúningsnámskeiði um kennslu kynfræðsluefnisins. Nýja
námsefnið var kennt í lífsleiknitímum og voru lífsleiknikennarar
skólans að jafnaði viðstaddir. Kennnslan fór ýmist fram fjórum
sinnum með tveggja kennslustunda fræðslu eða átta sinnum
með einni kennslustund í senn. Síðari könnunin (Fyrirlögn II, FII)
fór fram viku eftir að kynfræðslunni lauk, þann 10. desember
2010.
Gagnagreining
Gögnin voru skráð og greind með hjálp forritsins SPSS fyrir
Windows, útgáfu 17,0. Tíðnitöflur voru notaðar við lýsandi
greiningu. Í þekkingarhluta gagnanna var reiknuð út „einkunn“
nemenda í tugabrotum sem auðvelt var að yfirfæra í hlutfall af
hundraði. Gögnum var breytt þannig að fyrir rétt svar fengu
nemendur 1 en fyrir rangt svar fengu þeir 0. Til að mæla hvort
marktækur munur væri á meðaleinkunn fyrir og eftir fræðslu
var reiknað út líkindahlutfall og öryggisbil fyrir hverja spurningu.
Meðaleinkunn úr þekkingarspurningunum 11 var síðan reiknuð
saman í eina breytu í FI og í aðra breytu í FII í þeim tilgangi
að greina mun á þekkingu eftir kynjum, menntun foreldra
og áætlaðri skólagöngu. Til þess að mæla marktækan mun
í þeim hluta var notað ANOVApróf endurtekinna mælinga.
Svarmöguleikar í viðhorfahluta spurningalistans voru fimm.
Þeim var fækkað í úrvinnslu í þrjá þannig að svörin „sammála“
og „mjög sammála“ voru tekin saman í einn flokk og „ósammála“
og „mjög ósammála“ sömuleiðis en svör við svarmöguleikanum
„hlutlaus“ héldust óbreytt. Í viðhorfahlutanum var Wilcoxon
próf notað til að kanna mun á fyrirlögnum og jafnframt í
greiningu á kynhegðunarhluta gagnanna. Í gagnagreiningunni
voru marktektarmörkin miðuð við p<0,05.
NIÐURSTÖÐUR
Nemendur, sem svöruðu báðum könnununum (FI og FII), voru
samtals 101 (um 80% svarhlutfall), stúlkur voru 52 (51%) og
drengir 49 (49%). Flestir bjuggu hjá báðum blóðforeldrum
(79%). Meirihluti foreldra hafði lokið háskólanámi (80% mæðra
og 62% feðra). Flestir af nemendunum sögðust venjulega fá
einkunnina 8 eða meira í skólanum (79%) og höfðu langflestir
framtíðaráform um að stunda háskólanám (72%).
Þekking á kynheilbrigðismálum
Réttum svörum allra þátttakenda fjölgaði marktækt (p<0,001)
milli kannana (68% FI; 79% FII) og reyndist þekkingin vera óháð
kyni, menntun foreldra og lengd áætlaðrar skólagöngu (tafla
1). Þekking nemenda í heild jókst marktækt eftir kynfræðsluna
hvað varðar líkur á þungun (OR:1,56, CI:1,022,39 og OR:3,83,
CI:2,505,89), ófrjósemi (OR:1,59, CI:1,202,11) en einnig um
kynsjúkdóma (OR:1,47, CI:1,101,98) og kynsjúkdómaáhættu
(OR:1,76, CI:1,352,30) (tafla 2). Þegar litið var til kynjamunar
kom í ljós að hlutfall réttra svara var oftar hærra hjá stúlkum
en drengjum í báðum fyrirlögnum. Stúlkur voru að meðaltali
með um 70% rétt svör í upphafi en um 81% eftir kynfræðsluna
Drengir voru að meðaltali með 65% rétt svör í byrjun en höfðu
aukið hlutfallið í 75% eftir kynfræðsluna. Þekking stúlkna
jókst marktækt í sambandi við líkur á þungun og ófrjósemi en
jafnframt um kynsjúkdóma og þekking drengja jókst marktækt
um líkur á þungun og kynsjúkdóma. Mestur kynjamunur var á
spurningunni „Stúlka getur orðið ólétt áður en hún fær fyrstu
blæðingar“ (OR:3,83, CI:2,505,89). Stúlkur voru rúmlega
þrisvar sinnum líklegri í FII til að svara spurningunni rétt
(OR:3,20, CI:1,955,27) og drengir liðlega fimm sinnum líklegri
(OR:5,56, CI:2,4212,79). Þegar nemendur voru spurðir að
því hvar þeir hefðu lært mest um kynlíf kom í ljós að í efstu
þremur sætunum voru skólinn (43% FI; 53% FII), næst voru
vinir (20% FI; 19% FII) og í þriðja sæti voru foreldrar (14% FI;
10% FII). Reyndist veraldarvefurinn í neðsta sæti með 7% í FI
og 10% í FII.
Viðhorf til kynheilbrigðis
Þegar viðhorf nemenda voru skoðuð í heild var marktæk
breyting á viðhorfum til ábyrgs kynlífs (p=0,034) og til fordóma