Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 53
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 49
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
(p=0,002) (tafla 3). Viðhorf drengja breyttust meira milli
fyrirlagna en hjá stúlkum. Hjá þeim breyttust viðhorf marktækt
til sjálfsvirðingar, virðingarleysis gagnvart öðrum og ábyrgðar
í kynlífi (p=0,0120,046). Einungis eitt viðhorf hvað varðaði
fordóma breyttist marktækt hjá stúlkum en það var um
fullyrðinguna: „Ef stelpa er með smokka á sér er hún líklega til
í tuskið“. Stúlkur voru sammála fullyrðingunni í 35% tilfella í FI,
en 16% í FII (p=0,001). Við nánari skoðun á svörum nemenda
við fullyrðingum um viðhorf samkvæmt viðhorfaflokkun (dálkur
1 í töflu 3) komu fram þættir sem ýmist aðgreindu kynin eða
sýndu samhljóm þeirra á milli. Hvað varðar sjálfsvirðingu kom
fram að marktækt fleiri drengir í FII töldu það erfitt að ræða
við rekkjunaut, það væri erfitt að segja nei ef rekkjunautur vildi
hafa samfarir en maður sjálfur vildi það ekki og þeim fannst
þeir fullorðnast við það að byrja að stunda kynlíf. Flestum
nemendum af báðum kynjum í FI og FII (83%) fannst þeir
ekki (eða voru hlutlausir) öðlast vinsældir í hópnum með því
að stunda kynlíf. Langflestir af báðum kynjum (88% FI; 91%
FII) vildu virða rétt annarra til að segja nei gagnvart samförum.
Þegar viðhorf til ábyrgðar og ábyrgðarleysis voru skoðuð hjá
báðum kynjum kom fram að langflestum fannst framtíðaráform
drengja (94% FI; 86% FII) og stúlkna (FI 94%; FII 92%) mundu
breytast við það að eignast barn. Í báðum fyrirlögnum fannst
flestum að bæði væru ábyrg ef stúlkan yrði ófrísk en töluvert
fleiri stúlkur höfðu þessa skoðun (stúlkur 96% FII; drengir 80%
FII). Hvað varðar ábyrgðarleysi þá var meirihluti stúlkna (75%)
þeirrar skoðunar í FI og FII að það væri ekki léttvægt að fara í
fóstureyðingu ef ótímabær þungun yrði en aðeins 51% drengja
í báðum fyrirlögnum. Langflestir í FI og FII töldu það þess virði
að nota getnaðarvarnir þó þær hefðu aukaverkanir en mun
fleiri stúlkur en drengir voru hlynntar þessu (stúlkur 88% FII;
drengir 69% FII). Flestir þeirra (drengir 33% FII;stúlkur 42% FII),
sem tóku afstöðu til notkunar smokksins, hölluðust að þeirri
skoðun að hann drægi ekki úr rómantík augnabliksins. Einnig
voru skoðuð viðhorf er lutu að fordómum gagnvart kynlífi og
kynhegðun. Fram kom verulegur munur á viðhorfum kynjanna
til þess ef stúlka væri með smokk á sér þá væri hún til í tuskið.
Voru drengir mun oftar sammála þessu (stúlkur 16% FII;
drengir 57% FII). Langflestir af báðum kynjum í FI og FII töldu
drengi ekki endilega vera með kynsjúkdóm (79% FI; 80% FII)
eða vera samkynhneigðir (85% FI; 86% FII) ef þeir vildu ekki
stunda kynlíf.
Tafla 1. Þekking nemenda á kynferðismálum út frá kyni, menntun foreldra og áætlaðri skólagöngu.
FI (N=101) FII (N=101) Samanburður
Fjöldi (hlutfall réttra svara) Fjöldi (hlutfall réttra svara) FI og FII
n (%) n (%) pgildi*
Allir 94 (68) 99 (79)
0,001
Kyn
Stúlka 49 (70) 51 (82)
Drengur 45 (65) 48 (76)
0,579
Menntun móður
Framhaldsskólamenntun eða minna 15 (67) 16 (78)
Lokið háskólanámi 50 (66) 56 (77)
Stundað framhaldsnám eftir grunnnám í háskóla 25 (72) 24 (83)
0,998
Menntun föður
Framhaldsskólamenntun eða minna 30 (63) 34 (76)
Lokið háskólanámi 39 (68) 40 (78)
Stundað framhaldsnám eftir grunnnám í háskóla 21 (71) 21 (83)
0,735
Áætluð skólaganga
Fara í menntaskóla/fjölbrautaskóla 28 (62) 28 (71)
Fara í háskóla 40 (70) 43 (81)
Fara í framhaldsnám eftir grunnnám í háskóla 25 (71) 27 (84)
0,623
Breytingar á hlutfalli réttra svara (meðaleinkunn þátttakenda) um kynheilbrigðismál. Meðaleinkunn ekki tekin með í útreikninga ef svarað var færri en 8 spurningum af 11.
* Pgildi fundið með Repeated Measures ANOVAmælingu. P=<0,05.