Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 4. S E P T E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 224. tölublað 103. árgangur
MATARÆÐI
BARNA ÞARF AÐ
GEFA GAUM
TÆKIFÆRI
Í FISKTÆKNI-
SKÓLANUM
NÝTING
ÍSLENSKRA
ORKUAUÐLINDA
VIÐSKIPTI ORKA OG IÐNAÐUR 24 SÍÐURMATUR 58-67
Haustjafndægur voru í gær. Þá var sólin yfir miðbaug jarðar.
Tveir ferðalangar í Landmannalaugum tylltu sér niður í
mildu haustveðrinu, í þessari íslensku náttúruperlu, og nutu
blíðunnar. Þegar hausta tekur fækkar ferðamönnum hratt á
hálendinu, þar sem rútuferðum fækkar, færð versnar og veð-
ur geta orðið válynd.
Kyrrð færist yfir í Landmannalaugum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Eldi á framandi tegundum eins
og kóngakrabba er varhugavert og
vandmeðfarið; sama hversu vel
menn vanda sig
þá er alltaf
hætta á slysum
og því vara ég
hiklaust við
því,“ segir
Sindri Gíslason, forstöðumaður
Náttúrustofu Suðvesturlands.
Nýlega var greint frá áformum
einstaklinga á Hauganesi um að
hefja þar eldi á kóngakrabba.
Sindri varar eindregið við slíku,
hvort sem um væri að ræða eldi í
sjó eða á landi. »38-39
Varar við eldi
á kóngakrabba
Launakostnaður er orðinn mjög
þungur baggi í rekstri sveitarfé-
laga og fer vaxandi. Halldór Hall-
dórsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, segir að þau
séu nú að sjá hlutfallshækkanir
launa sem ekki hafi sést síðan á
tíma óðaverðbólgu á Íslandi. „Við
erum einhvern veginn búin að
missa tökin,“ segir hann.
Fjallað verður um þessi mál á
fjármálaráðstefnu Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem hefst í
dag. Kröfur eru uppi um að sveit-
arfélögin fái auknar tekjur frá rík-
inu. »2
Laun þungur baggi
á sveitarfélögum
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þegar Alþingi samþykkti lög um
stöðugleikaskatt á slitabú föllnu
bankanna var einnig samþykkt
bráðabirgðaákvæði sem þrengdi
kröfulýsingarfrest þeirra til muna
sem telja sig eiga búskröfu í slita-
búin. Fram að lagasetningunni var
hægt að lýsa kröfum að atkvæða-
greiðslu um nauðasamning en eftir
breytinguna var frestur veittur til
15. ágúst síðastliðins. Lögin voru
birt 18. júlí og því veitti löggjafinn
aðeins 29 daga frest til handa þeim
sem töldu sig eiga kröfur á búin en
höfðu ekki lýst kröfu fram að þeim
tíma. Hróbjartur Jónatansson,
hæstaréttarlögmaður, gerir athuga-
semdir við þessi vinnubrögð og
bendir meðal annars á að slitabúin
hafi í engu auglýst hinn stytta frest
og þá hafi lögin ekki verið þýdd á
ensku, þrátt fyrir umfangsmikil um-
svif slitabúanna erlendis.
Áreiðanlegar heimildir Morgun-
blaðsins herma að Kaupþing hafi
beitt sér fyrir því gagnvart Alþingi
að kröfulýsingarfresturinn yrði
styttur með þeim hætti sem raun
varð á, ekki síst af ótta við aðgerðir
fjárfestisins Vincents Tchenguiz
sem staðið hefur í málaferlum við
slitabúið á síðustu árum og haldið
fram hundraða milljarða fjárkröfum
á hendur því og endurskoðunarfyr-
irtækinu Grant Thornton fyrir
breskum dómstólum.
Hróbjartur telur hættu á að þeir
aðilar sem ekki náðu að lýsa kröfum
í búið, en telja sig hafa ástæðu til
þess, muni mögulega leita réttar
síns fyrir dómstólum.
Kallar mögulega á málaferli
„Í ljósi þess hversu umfangsmikil
starfsemi slitabúanna hefur verið á
undanförnum árum má gera ráð
fyrir því að mörg dæmi séu um
ágreining varðandi þá starfsemi.
Þeir aðilar sem eiga í ágreiningi við
slitabúin vegna þessarar starfsemi
eru nú í þrengri stöðu en þeir voru
áður en lögin voru samþykkt þar
sem löggjafinn hefur með þeim tak-
markað möguleika þeirra til að lýsa
kröfum sínum. Það er augljóst í
mínum huga hvað slitastjórn Kaup-
þings gekk til þegar tillagan að
þessum stutta fresti var lögð fram.
Þar var stjórnin einfaldlega að
koma í veg fyrir að aðilar gætu lýst
kröfum á hendur búinu,“ segir Hró-
bjartur.
Kaupþing beitti sér
fyrir lagasetningu
Kröfulýsingarfrestur að líkindum styttur vegna Tchenguiz
MViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Ómar
Bandaríska ferðaþjónustufyrirtækið
Eleven Experience stefnir að því að
opna næsta vor lúxusgistihús á
Deplum í Fljótum í Skagafirði. Tug-
ir iðnaðarmanna hafa verið þar að
störfum síðustu vikur og mánuði og
er gistihúsið farið að taka á sig mynd
að utan. Þar verða 11 herbergi og
ýmis þægindi í boði, m.a. úti- og inni-
sundlaug, gufubað, heitir pottar,
nuddpottar og vínkjallari.
Samkvæmt verðskrá fyrirtæk-
isins kostar sex daga dvöl á Deplum
um 2 milljónir kr. á mann að vetri til.
Innifalið er gisting, matur og drykk-
ir, þyrluflug, skíðaferðir o.fl.
Sömu fjárfestar eiga jarðirnar
Knappstaði og Stóru-Brekku í Fljót-
um og hafa sýnt mikinn áhuga á að
kaupa fleiri. »18-19
Deplar Gistihúsið er farið að taka á
sig mynd. Ekkert er þar til sparað.
Fjárfest
í Fljótum
Gistihús á Deplum
opnað næsta vor