Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Nýtt starf sameiginlegs deildarstjóra fyrir hjúkr-
unarheimilið Eyri á Ísafirði og Hjúkrunarheimili
Bolungarvíkur, sem bæði eru rekin af Heilbrigð-
isstofnun Vestfjarða – HVEST, var auglýst áður
en Huldu Karlsdóttur, deild-
arstjóra hjúkrunardeildar-
innar í Bolungarvík, var sagt
að leggja ætti niður stöðu
hennar. Hulda, sem hefur
starfað í tæp 40 ár sem hjúkr-
unarfræðingur, þar af 28 ár á
Bolungarvík og sex ár sem
deildarstjóri, segist slegin
vegna þessarar framkvæmdar
og hyggst ekki halda áfram
störfum hjá stofnuninni.
Starfsfólk heilbrigðisstofn-
unarinnar hefur mótmælt
framkomunni við Huldu.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar
hjá HVEST segir að um mis-
skilning sé að ræða og hefur
beðist afsökunar á fram-
kvæmdinni.
Ísafjarðarbær og Bolungar-
víkurkaupstaður hafa hvor um
sig byggt ný hjúkrunarheimili
sem verða tilbúin til notkunar
innan skamms. Þau verða sjálf-
stæðar rekstrareiningar sem verða reknar undir
stjórn HVEST. Einn deildarstjóri verður yfir
báðum deildunum og er það staðan sem auglýst
var á dögunum.
„Framkvæmdastjóri hjúkrunar hringdi í mig
þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni á föstu-
degi, 11. september, og sagði mér að staðan mín
hefði verið lögð niður, en mér var ekki sagt hve-
nær það yrði. Þá hafði auglýsingin um nýja deild-
arstjórastarfið birst í blöðum um morguninn, en
ég vissi ekki af henni,“ segir Hulda. „Ég hafði
samband á mánudeginum og kvartaði yfir þessum
vinnubrögðum og þá var mér sagt að starfið mitt
yrði lagt niður frá og með 1. október, tæpum
þremur vikum síðar. Daginn eftir var mér fært
bréf sem staðfesti þetta og að mér byðust biðlaun
á eitt ár frá og með þessum tíma.“
Starfsmenn mótmæltu
Sameining starfsemi þessara tveggja hjúkr-
unarheimila hefur staðið til um skeið, en er enn
ekki orðin og segist Hulda hafa talið að skipulags-
breytingarnar myndu ganga í gegn þegar af sam-
einingunni yrði. Svo hafi verið um flesta aðra og
því hafi þessi ákvörðun komið mörgum í opna
skjöldu. Í yfirlýsingu, sem 18 starfsmenn HVEST
í Bolungarvík skrifuðu undir og birt var í Bæjar-
ins besta á Ísafirði, mótmæla þeir framkomu for-
stjóra við Huldu harðlega og segja hana stofn-
uninni til háborinnar skammar og að ófaglega sé
að málinu staðið. „Það verða að teljast slæleg
vinnubrögð að auglýsa stöðuna áður en búið er að
tilkynna deildarstjóra,“ segir í yfirlýsingunni.
Síðan Huldu voru tilkynntar breytingarnar hef-
ur hún ekki farið í vinnuna. Hún segir framkomu
stjórnenda hafa valdið sér mikilli vanlíðan og
hyggst ekki snúa aftur til starfa á HVEST. Spurð
hvaða ástæða gæti verið fyrir þessari framkvæmd
segir hún að aldrei hafi verið kvartað yfir störfum
hennar og hún hafi átt einstaklega farsælan
starfsferil. „Þar fyrir utan er mjög erfitt að fá
hjúkrunarfræðinga hér á Vestfirðina og ég hélt að
það væri mikilvægt að halda í fagfólkið. En ég hef
varið rétt Bolvíkinga þegar aðrir hafa talað um að
það sé óhagstætt að vera með sérstaka rekstrar-
einingu á Bolungarvík og réttast væri að öll þjón-
ustan væri á Ísafirði. Kannski hefur það einhver
áhrif.“
Erfitt að fá starfsfólk
Hörður Högnason, framkvæmdastjóri hjúkr-
unar hjá HVEST, segir að um um mistök hafi ver-
ið að ræða varðandi auglýsingu starfsins. Beðinn
um að útskýra það nánar segir Hörður að auglýs-
ingin hafi átt að birtast nokkrum dögum síðar, eft-
ir að búið væri að segja Huldu að starf hennar
hefði verið lagt niður. „Annars hefði það ekki átt
að koma neinum á óvart. Þessar breytingar hafa
verið lengi í umræðunni.“
Hörður segist hafa beðið Huldu afsökunar á
þessum mistökum. Að sjálfsögðu sé henni frjálst,
rétt eins og öllum öðrum áhugasömum, að sækja
um starfið. Hann segir erfitt að segja til um hvort
einhver eftirmál verði af málinu, stjórnendur
sjúkrahússins hafi þegar útskýrt sinn þátt í því.
Erfitt sé að sjá á bak reyndum hjúkrunar-
fræðingi, því undanfarið hafi verið erfitt að fá
menntað heilbrigðisstarfsfólk á Vestfjörðum.
Að sögn Harðar verða nýju hjúkrunarheimilin á
Ísafirði og Bolungarvík líklega opnuð fyrir ára-
mót.
Lagt niður eftir auglýsingu
Deildarstjórastarf var lagt niður eftir að nýtt starf hafði verið auglýst
Framkvæmdastjóri segir auglýsingu hafa birst of snemma fyrir misgáning
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bolungarvík Þar verður nýtt hjúkrunarheimili
Hulda
Karlsdóttir
Hörður
Högnason
Fjórtán ein-
staklingar sóttu
um störf geisla-
fræðinga á Land-
spítalanum sem
auglýst voru fyrr
í mánuðinum en
frestur til að
sækja um rann út
á mánudaginn. 1.
september sl.
hættu sautján
geislafræðingar störfum á sjúkra-
húsinu, sem störfuðu í fjórtán stöðu-
gildum. Óskar Reykdalsson, fram-
kvæmdastjóri rannsóknarsviðs,
segir að umsóknirnar hafi bæði kom-
ið frá íslenskum og erlendum geisla-
fræðingum.
„Við fengum fjórtán umsóknir en
það er ekki þar með sagt að við ráð-
um þá alla. Sumir sem sækja um
ákveða til dæmis að taka ekki starf-
inu. Við ákváðum að leggja inn aðra
auglýsingu í dag og rennur umsókn-
arfresturinn út eftir tvær vikur,“
sagði Óskar í samtali við mbl.is í
gær. Hann sagði töluverða vinnu
fólgna í því að ráða inn geislafræð-
inga frá útlöndum. „Það er auðvitað
allt annað ferli en ef við tökum ein-
hvern sem hefur verið í vinnu hjá
okkur áður. Þegar fólk kemur frá út-
löndum þurfum við að taka á móti
fólkinu og skrá það í landinu og
vinna töluvert með því. Það þarf að
tryggja réttindi þess á Íslandi og
m.a. hafa samráð við landlækn-
isembættið. Það er töluverð vinna
fólgin í því.“ »40
Erfiðara
að ráða
útlending
Óskar
Reykdalsson