Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 19
Eigandi Eleven hefur einnig sýnt
áhuga á að kaupa fleiri jarðir í Fljót-
um og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hafa verið þreif-
ingar um að kaupa Lund, sem skáld-
konan Guðrún er kennd við, og
Helgustaði í Austari-Fljótum. Hluti
Depla fylgdi ekki með í kaupunum á
sínum tíma, eða skiki þar sem er
íbúðarhús og gamalt fjárhús, og hafa
fjárfestarnir viljað kaupa þann hluta.
Þá hafa þeir sýnt áhuga á kaupum á
gömlu húsunum í Haganesvík. Þessi
viðskipti hafa ekki náð fram að ganga
en fleiri jarðir í Fljótum hafa verið
nefndar til sögunnar. Til viðbótar er
veiðifélag á vegum Orra leigjandi að
jörðinni Berglandi í Fljótum, vegna
veiðiréttinda í Fljótaá.
Aðspurð um áhuga á fleiri jörðum í
Fljótum segir Jeffery það hafa vissu-
lega verið til skoðunar, með það í
huga að byggja þar upp sjálfbæran
landbúnað, eins og sauðfjár- og naut-
griparækt, þar sem gestir geti komið
og skoðað sig um og bragðað síðan á
þeim afurðum sem framleiddar eru.
Skiptar skoðanir
Nái öll áform fyrirtækisins fram
að ganga er ljóst að Fljótin munu
taka á sig breytta mynd. Um fátt er
annað talað í sveitinni en þessar
framkvæmdir og sýnist sitt hverjum.
Á meðan sumir fagna umsvifunum,
sem hafi orðið til að bjarga deyjandi
byggð, eru aðrir sem óttast að er-
lendir fjárfestar og ferðamenn muni
með tíð og tíma yfirtaka Fljótin, með
tilheyrandi röskun fyrir þá heima-
menn og sumarbústaðareigendur
sem eftir verða. Um fámenna, frið-
sæla og að sumu leyti afskekkta sveit
er að ræða, þar sem um 60 manns
eiga lögheimili. Yfir sumartímann
tvöfaldast sá fjöldi að jafnaði þar sem
margir sumarbústaðir eru þar.
Stóra-Brekka Starfsmannaaðstaða.
Framkvæmdir Heimild er til byggingar á alls 3.000 fermetrum á Deplum.
Áætlað er að opna gistihúsið fyrir gesti í byrjun apríl á næsta ári.
Haganesvík Verslunarhúsið og
sláturhúsið hafa verið til sölu.
Knappstaðir Fjárfestarnir hafa ekki ákveðið hvað gert verður á jörðinni en
í bakgrunni er Knappstaðakirkja. Keiluhöll er ein margra hugmynda.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Orri Vigfússon komst í kynni við
bandaríska auðmanninn Chad
R. Pike, sem er mikill áhuga-
maður um laxveiði og hefur set-
ið í stjórn NASF, Verndarsjóðs
villtra laxastofna, sem Orri kom
á fót á sínum tíma. Pike er hátt-
settur yfirmaður fjárfestinga-
sjóðsins Blackstone í Evrópu og
stofnaði fyrirtækið Eleven Ex-
perience fyrir fjórum árum.
Félagið Fljótabakki, sem Orri
og hollenskur aðili eru í forsvari
fyrir, er skráður eigandi Depla
og tveggja annarra jarða í Fljót-
um; Knappsstaða og Stóru-
Brekku. Fljótabakki er síðan í
100% eigu félagsins Blue Elver
hf. en samkvæmt fyrirtækja-
skrá er eigandi þess hollenskt
eignarhaldsfélag, Sun Ray
Shadow að nafni.
Í samstarfi
við auðmann
ORRI UPPHAFSMAÐURINN
Orri Vigfússon Chad R. Pike
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
VIÐ HÖNNUMOG TEIKNUM FYRIR ÞIG
Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
Opið:
Mánud. - föstud. kl. 9-18
Laugardaga kl. 11-15
ÞITT ER VALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
KR
EA
TI
V
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUMOGEININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐADANSKAR
15ÁRA
STOFNAÐ2000