Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Meðal þeirra sem sóttu Íslend-
ingahátíðina í Spanish Fork var
Jeannie Dayton. Hún er af
fjórðu kynslóð Íslendinga í
þessum litla bæ í Utah og
frændgarður hennar þar er
stór.
„Nei, þessi tengsl við Ísland
eru nokkuð sem ég vissi óljóst
um en hafði ekkert kynnt mér.
En svo var áhuginn vakinn og
mér hefur fundist gaman að
setja mig inn í þetta,“ segir
Jeannie, sem með aðstoð Kára
Bjarnasonar hefur látið útbúa
sitt myndskreytta ættartré og
auðvitað eru rætur þess á Ís-
landi. Og þangað stefnir hug-
urinn, því á næsta ári stefna
þau Cliff Dayton, eiginmaður
hennar, á að heimsækja Ísland
í tilefni af fjörutíu ára brúð-
kaupsafmæli sínu.
Rætur
á Íslandi
JEANNIE DAYTON ÁNÆGÐ
MEÐ ÆTTARTRÉÐ
Ættrækni Jeannie Dayton með ætt-
artréð. Þau Cliff Dayton, eiginmaður
hennar, ætla til Íslands á næsta ári.
Fulltrúi íslenskra stjórnvalda á Ís-
lendingadeginum í Spanish Fork
var Stefán Haukur Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu. Slíkt mátti teljast vel við
hæfi, því hann er Vestmanna-
eyingur og ekki er langt síðan í
ljós kom að hann átti skyldmenni í
Utah. Þeirra á meðal var Arlene
Flickinger Valgardsson, en þau
Stefán eru skyld í fjórða lið.
„Langafasystir mín, Jóhanna Jóns-
dóttir, fann sig í mormónatrúnni
eftir að hafa misst eiginmann sinn
og sjö börn. Hér skapaði hún sér
nýja framtíð og eignaðist afkom-
endur og Arlene er meðal þeirra,“
segir Stefán Haukur.
Einkennin voru máð út
Arlene er ömmubarn Jóhönnu
Jónsdóttur og kom hingað til lands
síðasta haust þegar í Vestmanna-
eyjum var haldin ráðstefna um líf
og sögu þessarar formóður henn-
ar. Þau Arlene og Ed maður henn-
ar gerðu sér ferð um langan veg
frá Albertafylki í Kanada á hátíð-
ina í Spanish Fork til að afhenda
Vestmannaeyjabæ fjórar stórar
myndir af öfum sínum og ömmum
sem öll eru fædd og uppalin á Ís-
landi. Og þar hittust þau Stefán
Haukur og ræddu hinar sameig-
inlegur rætur sínar.
„Það eru fá ár síðan ég fór eitt-
hvað að velta uppruna mínum fyrir
mér. Móðir mín, Hildur Árnadóttir,
dóttir Jóhönnu Jónsdóttur, fluttist
til Kanada sem ung kona og settist
að í Alberta. Hún gerði lítið með
hinar íslensku rætur okkar. Það
var raunar í samræmi við tíðar-
andann, því kanadísk stjórnvöld
voru áfram um að má út einkenni
þjóðarbrotanna sem settust að í
landinu. En það er gaman að kynn-
ast þessu núna,“ segir Arlene.
Í Utah, eins og víða í veröldinni,
er ræðismaður Íslands og því emb-
ætti gegnir Brent Haymond, sem
er af íslenskum ættum. „Ræð-
ismenn sem við höfum um allan
heim eru allir ólaunaðir og tengsl
þeirra við Ísland auðvitað mjög
misjöfn. En auðvitað skipta blóð-
tengsl við Ísland alltaf nokkru máli
og að fólk hafi raunverulegan
áhuga á starfinu. Fulltrúar gamla
landsins sinna verkefninu af meiri
dýpt en væri kannski ella,“ segir
Stefán Haukur.
Eyjamaður úr utanríkisþjónustunni á ættmenni vestra
Tengslin skipta alltaf máli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tengsl Hjónin frá Albertafylki í Kanada þau Ed og Arlen Flickinger og
frændi hennar, Stefán Haukur Jóhannesson ráðuneytisstjóri utanríkismála.
Þegar mormónatrú hafði náð þroska fóru út-
sendarar kirkjunnar á sálnaveiðar vítt og
breitt um veröldina. Til Íslands komu þeir
fljótlega upp úr 1850 en voru sjaldnast aufúsu-
gestir. Víða mætti þeim hreinn fjandskapur.
Eyjar voru undantekningin. Þar var jarðveg-
urinn frjór og margir völdu að skírast til
mormónatrúar og halda til nýrra heimkynna.
Ástæður þess eru ekki að fullu ljósar, en nefnt
er að hörð lífsbarátta og mannskaðar vegna
sjósóknar hafi gert fólk leitandi í trúarafstöðu.
„Síðari hluti 18. aldarinnar var umbrotatími
á Íslandi. Nýir menningarstraumar komu inn í
þjóðlífið og sjóndeildarhringur fólks víkkaði.
Landnám Íslendinga í Utah er hluti af miklum
breytingum á samfélagsgerðinni sem þarna
átti sér stað,“ sagði Guðmundur Hálfdan-
arson, prófessor við Háskóla Íslands, á ráð-
stefnunni í Salt Lake City þar sem fjallað var
um sögu Íslendinga á staðnum.
Steinar frá nýjum vinkli
Á ráðstefnunni lögðu einnig orð í belg þau
Markús Þórhallsson og Inga Lára Baldvins-
dóttir. Sömuleiðis Halldór Guðmundsson bók-
menntafræðingur sem fjallaði um Para-
dísarheimt Halldórs Laxness. Rauði þráðurinn
í þeirri sögu er mormónskan, Utah og Steinar
bóndi í Steinum undir Steinahlíðum, sem Hall-
dór fjallaði um frá nýjum vinkli.
Hluti af samfélagsbreytingum
Fræðimenn fjölluðu um ferðirnar til Utah
Fræðimenn Frá vinstri talið, Dr. Fred Woods, Halldór
Guðmundsson, Markús Þórhallsson, Inga Lára Baldvins-
dóttir, Kári Bjarnason og Guðmundur Hálfdanarson.