Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík
582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
Tölvur og fylgihlutir
Toshiba Canvio vasaflakkari
Tvær flottar fartölvur
Samsung Laser prentari
M2022W
WiFi
König net yfir rafmagn
500Mbps, 2 stk
Genius þráðlaus mús,
Nano
móttakari
Kingston SSD diskar
König USB klippikort Asus 28 tommu skjár 2xHDMI Intel NUC smátölva 8GB,
120GB
SSD
Verð 79.900
• 15,6 tommu HD skjár
• Intel Core i3-4030U
• 4GB minni, max 16GB
• 1TB diskur
• Intel HD Graphics, HDMI+VGA
• Rafhlaða endist allt að 4 klst
• WiFi-N, BT4.0, USB3, LAN, DVD
• Win 8.1, Windows 10 upgrade
Lenovo G50 i3
Verð 119.900
• 15,6 tommu HD skjár
• Intel Core i5-5200U
• 8GB minni, max 16GB
• 1TB diskur
• Radeon 330M+Intel HD, VGA+HDMI
• Rafhlaða endist allt að 4 klst
• WiFi-N, BT4.0, USB3, LAN, DVD
• Win 8.1, Windows 10 upgrade
Lenovo G50 i5
2 TB Verð 17.990
1 TB Verð 11.990
Verð 8.900 Verð 46.900 Verð 59.900
Verð 16.990 Verð 9.990 Verð 1.990 240GB Verð 17.900
120GB Verð 9.900
frá málinu og hefur bandaríska
dómsmálaráðuneytið hafið rannsókn
á meintum svikum framleiðandans
og í fyrradag var Merkel farin að
þrýsta á fyrirtækið að taka á málinu.
Þýsk yfirvöld hafa einnig hafið könn-
un á hvort hefja eigi rannsókn og
sömu sögu er að segja í Frakklandi.
Svo virðist sem hin meintu svik
hafi hafist fyrir sex árum. Volkswa-
gen hefur viðurkennt að hafa búið
um 482 þúsund bíla í Bandaríkjunum
hugbúnaðinum. Allt að 11 milljónir
bíla um allan heim gætu verið með
búnaðinn. Fyrirtækið tilkynnti að
rúmlega sex milljarðar dollara hefðu
verið lagðir til hliðar til að mæta
þessu áfalli, en í fréttum hefur komið
fram að sektir gætu orðið rúmlega
18 milljarðar dollara.
„Þekki hverja einustu skrúfu“
Winterkorn hefur orð á sér fyrir
að vera með fullkomnunaráráttu.
Hann er 68 ára og á morgun hafði
verið ráðgert að hann myndi undir-
rita nýjan starfssamning til þriggja
ára. „Ég þekki hverja einustu skrúfu
í bílunum okkar,“ sagði hann eitt
sinn í viðtali.
Winterkorn kom fyrst til starfa
hjá Volkswagen 1981 og vann þá við
gæðaeftirlit AUDI. Hann varð
stjórnandi tæknilegrar þróunar VW
1996. Hann varð forstjóri þess hluta
fyrirtækisins, sem framleiðir AUDI
2003. 2007 varð hann forstjóri alls
fyrirtækisins, sem framleiðir alls sjö
tegundir bíla.
Frami hans var undir handleiðslu
Ferdinands Piëchs og í fyrra náði
fyrirtækið methagnaði. Ákveðnir
veikleikar í rekstrinum leiddu hins
vegar til ágreinings á milli Winter-
korns og Piëchs í apríl. Mun ágrein-
ingurinn fyrst og fremst hafa snúist
um að VW reiddi sig um of á kín-
verska markaðinn, sem hefði veikst
verulega undanfarið, og hefði mis-
tekist að hasla sér völl í Bandaríkj-
unum. Pëch var stjórnarformaður og
hafði áður verið forstjóri VW. Hann
varð undir í rimmunni við Winter-
korn, sem fékk stjórn fyrirtækisins
með sér, og Piëch sagði af sér stjórn-
arformennsku.
Búist er við að fram komi á morg-
un hver verði eftirmaður Winter-
korns. Þetta hneyksli gæti dregið
dilk á eftir sér fyrir Volkswagen og í
fjölmiðlum í Þýskalandi og víðar er
fjallað um að þetta hneyksli sé ekki
aðeins álitshnekkir fyrir fyrirtækið
heldur þýska framleiðslu.
Forstjóri VW segir af sér
Byrjuðu að nota hugbúnað til að villa fyrir um mengun í útblæstri dísilbíla fyrir sex árum
Martin Winterkorn segir óskiljanlegt að svo umfangsmikil mistök hafi verið gerð hjá fyrirtækinu
AFP
Hættur Martin Winterkorn sýnir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, nýjan bíl frá Volkswagen á bílasýningunni
Frankfurt 15. september. Winterkorn sagði af sér sem forstjóri VW í gær vegna hneykslis, sem skekur fyrirtækið.
Blekking VW
» Settur var hugbúnaður í dís-
ilbíla Volkswagen, sem gerði að
verkum að búnaður, sem
hreinsar mengun úr útblæstri
fór í gang þegar átti að mæla
hann á verkstæði.
» Hreinsibúnaðurinn mun
hafa verið gangsettur þegar
bílnum var gefið inn án þess að
stýrið hreyfðist.
» Í venjulegri umferð er út-
blástur eiturefna því allt að 40
sinnum umfram staðla, að
sögn Umhverfisstofnunar
Bandaríkjanna.
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Martin Winterkorn, forstjóri þýska
fyrirtækisins Volkswagen, sagði í
gær af sér vegna uppljóstrana um að
sérstakur hugbúnaður hefði vísvit-
andi verið settur í dísilbíla framleið-
andans til að villa fyrir um raunveru-
legan útblástur þeirra. Málið hefur
valdið miklu fári og hafa hlutabréf í
fyrirtækinu lækkað um þriðjung, en
hækkuðu þó að örlítið í verði í gær.
Marka þarf „nýtt upphaf“
Winterkorn sagði í gær að hann
stigi til hliðar því að marka þyrfti
Volkswagen „nýtt upphaf“. „Ég er
miður mín yfir því, sem gerst hefur
undanfarna daga,“ sagði í yfirlýs-
ingu frá forstjóranum fráfarandi.
„Fyrst og fremst er mér óskiljanlegt
að svo umfangsmikil mistök hafi ver-
ið möguleg hjá Volkswagen-fyrir-
tækinu.“ Hann bætti við að hann sæi
ekki að hann hefði gert nein mistök.
Volkswagen hefur verið í mikilli
sókn undanfarin ár. Winterkorn
stefndi að því að VW yrði stærsti
bílaframleiðandi heims og færi fram
úr Toyota árið 2018. Það takmark
náðist á fyrri hluta þessa árs.
Í liðinni viku kynnti Winterkorn
nýjustu framleiðslu VW fyrir Angelu
Merkel, kanslara Þýskalands, á bíla-
sýningunni í Frankfurt og allt virtist
leika í lyndi.
Í lok vikunnar greindi umhverfis-
stofnun Bandaríkjanna hins vegar