Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 47
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
skattur.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa
ekki staðið skil á skattframtali 2015
ásamt ársreikningi, eru hvattir til að
annast skil hið allra fyrsta.
Skráður lögaðili skal ætíð skila
skattframtali vegna undangengins
reikningsárs þrátt fyrir að engin
eiginleg starfsemi eða rekstur hafi
átt sér stað á reikningsárinu.
Félög eiga jafnframt að skila
ársreikningi til Ársreikningaskrár.
Skattframtali og ársreikningi er unnt
að skila rafrænt á skattur.is.
Álagning opinberra gjalda 2015
á lögaðila vegna rekstrarársins 2014
fer fram í október nk.
Framtalsfrestur
lögaðila er liðinn
Til forráðamanna hlutafélaga,
einkahlutafélaga og annarra skattskyldra
lögaðila um skil á skattframtali 2015
Frans páfi nýtur mikilla vinsælda
í Bandaríkjunum og talið var að
Obama myndi notfæra sér heim-
sóknina til að vekja athygli á því
að mikill samhljómur hefur verið
milli þeirra tveggja í mörgum
málefnum, m.a. loftslagsmálum
og innflytjendamálum.
Seinna bað páfi með bandarísk-
um biskupum og söng messu í
stærstu kaþólsku kirkjunni í
Norður-Ameríku. Páfi ávarpar
Bandaríkjaþing í dag og
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna á morgun.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, tók á móti Frans páfa í
Hvíta húsinu í Washington í gær,
á öðrum degi fyrstu heimsóknar
páfans til Bandaríkjanna. Páfi
ávarpaði þúsundir manna, sem
söfnuðust saman í garði Hvíta
hússins, og fór meðal annars lof-
samlegum orðum um baráttu
Obama forseta fyrir aðgerðum til
að stemma stigu við loftslags-
breytingum í heiminum. Obama
þakkaði páfa fyrir þátt hans í því
að greiða fyrir bættum sam-
skiptum Kúbu og Bandaríkjanna.
Frans páfi fékk hlýjar
móttökur í Hvíta húsinu
AFP
Artur Mas, for-
seti Katalóníu,
segir að ekki
þurfi að efna til
þjóðaratkvæða-
greiðslu um
sjálfstæði sjálf-
stjórnar-
héraðsins ef
flokkar sjálf-
stæðissinna fá meirihluta atkvæða
í kosningum sem fram fara á
sunnudaginn kemur. Mas hefur
beitt sér fyrir því að Katalón-
íumenn fari að dæmi Skota og efni
til þjóðaratkvæðis um sjálfstæði en
spænska stjórnin hefur hafnað
þeim möguleika. Mas sagði að ef
stjórnin í Madríd héldi þessari af-
stöðu sinni til streitu myndu flokk-
ar sjálfstæðissinna lýsa yfir sjálf-
stæði innan tveggja ára fengju
þeir meirihluta atkvæðanna. Fái
þeir meirihluta sætanna á kata-
lónska þinginu en ekki meirihluta
atkvæðanna ætla þeir að halda
áfram baráttunni fyrir þjóðar-
atkvæði.
KATALÓNÍA
Lýsa yfir sjálfstæði
ef meirihluti kýs þá
Talið er að inúítar hafi að minnsta
kosti fimmtíu orð yfir snjó en orðin
sem Skotar geta notað yfir þetta
fyrirbæri eru þó miklu fleiri, að
sögn skoskra fræðimanna. Alls er
til 421 orð yfir snjó og snjókomu á
skosku, að sögn fræðimanna við
Glasgow-háskóla sem eru að skrá
öll orð sem notuð hafa verið í
skosku síðustu aldirnar. Á meðal
orðanna eru „snaw“ (snjór), „skelf“
(stór snjókorn), „spitters“ (lítil snjó-
korn í vindi) og „flindrikin“ (él).
Talið er að um 1,6 milljónir manna
tali skosku sem er vesturgermanskt
tungumál, en sumir telja hana vera
mállýsku úr ensku.
SKOTLAND
Hafa 421 orð yfir
snjó og snjókomu
Vladímír
Pútín, for-
seti Rúss-
lands, opn-
aði eina af
stærstu
moskum
Evrópu í
Moskvu í
gær og
sagði að hún myndi gegna mikil-
vægu hlutverki í því að „breiða út
hugmyndir mannvina og sönn gildi
íslams“. Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, og Mahmoud
Abbas, forseti heimastjórnar Pal-
estínumanna, voru heiðursgestir
við opnunina. Moskan er 20.000 fer-
metrar að stærð og getur tekið allt
að 10.000 manns. Hún var reist á tíu
árum og kostaði jafnvirði 22 millj-
arða króna. Um 20 milljónir músl-
íma búa í Rússlandi.
RÚSSLAND
Pútín opnar stóra
mosku í Moskvu