Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 62
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsældir „Það er alltaf líf og fjör hjá okkur í hádeginu, enda er núðlusúpa ekki þung í maga og hentar því vel sem
hádegismatur,“ segir Sigurður Jónas. Margir gera sér ferð úr öðrum bæjarfélögum til að fá sér skál af núðlum.
Anna Sigríður Einarsdóttir
aseinars@gmail.com
„Þetta var gömul hugmynd sem
var búin að gerjast með mér frá því
að ég var skiptinemi úti í Taílandi
1991-92,“ segir Sigurður um tilurð
þess að hann opnaði veitingastaðinn
Núðluskálina á Skólavörðustíg
ásamt manni sínum Kristjáni árið
2009. „Ég bjó svo einnig um tíma úti
í Hong Kong 1995 og núðlusúpur
eru víða vinsæll matur úti í Asíu.
Þetta er matur sem fer vel í maga
og ég saknaði þess að geta ekki
keypt mér núðlusúpu eftir heim-
komuna.“
Hvorki Sigurður né Kristján eru
lærðir matreiðslumenn, Kristján
starfaði hjá Íbúðalánasjóði er þetta
var og Sigurður, sem er með BSc. í
sálfræði hafði verið að vinna hjá
Capacent. „Ég var að vinna sem
ráðgjafi hjá Capacent árið 2008 þeg-
ar Guð blessaði Ísland og þá voru
bara góð ráð dýr,“ segir hann og
hlær. „Stærsti kúnnahópurinn voru
bankarnir og tölvufyrirtækin þannig
að maður þurfti einfaldlega bara að
finna sér eitthvað annað að gera.“
Gamla hugmyndin um núðlustað-
inn fékk byr undir báða vængi við
hrunið. „Kristján var lengi búinn að
láta sig dreyma um að stofna fyrir-
tæki og ég hafði áður talað um að
það væri best að opna fyrirtæki á
samdráttartímum. Þegar þetta var,
þá var ég þegar búin að tala um að
stofna staðinn í gegnum tvenna sam-
dráttartíma og nú var bara að láta
verða af því.“
2009 reyndist hárétti tíminn fyrir
Núðluskálina og er Sigurður sáttur
með að hafa beðið svo lengi. „Þó að
hugmyndin að núðlustaðnum hafi
fyrst fæðst 1995 þá hefði ekki verið
næg eftirspurn eftir þessari gerð
eldamennsku fyrr en núna á síðustu
árum.“
Reksturinn, sem er búinn að vera
í sama húsi á Skólavörðustíg frá
upphafi, byrjaði smátt. Veitingasal-
urinn var ekki stór, en með sívax-
andi vinsældum hefur staðnum verið
breytt og veitingasalurinn stækk-
aður. Nú standa enn á ný yfir breyt-
ingar, en til stendur að opna einnig
veitingasal á annarri hæðinni og
mun staðurinn þá rúma um 34 gesti í
sæti.
Núðluskálin á sér líka stóran hóp
fastra viðskiptavina. „Við eigum
stóran og traustan hóp fastakúnna,
sem þó tekur alltaf einhverjum
breytingum.“ Að sögn Sigurðar eru
um 80% viðskiptavina þeirra fólk
sem ýmist starfar eða býr niðri í
miðbæ. „Sumir koma þó lengra að,
því við eigum alveg líka okkar fasta-
kúnna sem gera sér til dæmis ferð
úr Garðabænum eða úr Mos-
fellsbæ.“ Viðskiptavinahópurinn
tekur síðan þónokkrum breytingum
yfir sumartímann þegar ferðamönn-
um fjölgar í bænum, enda kunna
margir túristar vel að meta létta
núðlurétti þegar þeir eru á röltinu.
Það er jafnan mikið að gera í há-
deginu á Núðluskálinni enda segir
Sigurður staðinn alveg frá upphafi
hafa verið hugsaðan sem hádeg-
isstað. „Þetta er þó búið að vera
breytast nokkuð og ég reikna alveg
með að þegar við opnum veitinga-
salinn uppi að þá verði kvöldsalan
meiri. Það verður samt alltaf líf og
fjör hjá okkur í hádeginu, enda er
núðlusúpa ekki þung í maga og
hentar því vel sem hádegismatur.“
Galdurinn felst í góðu hráefni
Þó að hugmyndin að núðlustaðn-
um eigi rætur sínar austur í Asíu er
einnig að finna á matseðlinum
núðlurétti undir til að mynda mexí-
kóskum og ítölskum áhrifum. Sig-
urður segir það alltaf hafa verið ætl-
unina. „Þetta er „íslenskur“
núðlustaður og við vorum alveg frá
upphafi ákveðnir í að við myndum
ekki sérhæfa okkur í hreinrækt-
uðum asískum réttum, heldur bjóða
upp á eins konar bræðing – eða „fu-
sion“ núðlurétti.
Galdurinn á bak við góða núðlu-
súpu, hvaðan sem súpan er ættuð,
segir hann alltaf felast í góðu hrá-
efni. „Góð núðlusúpa byggist á því
að hráefnið sé ferskt. Við búum til
dæmis til okkar eggjanúðlur sjálfir,
sem er ekki algengt og eins gerum
við mikið af því að nota ferskt krydd
og ferskt grænmeti. Þá erum við
líka með góðar sósur sem við blönd-
um út í og þar er ekkert til sparað.“
Þeir Kristján vinna báðir ásamt
fleira starfsfólki í Núðluskálinni og
hafa nóg að gera. „Við erum báðir
búnir að vera að vinna hérna frá því
um það bil ári eftir að við opnuðum.
Kristján hætti þá hjá Íbúðalánasjóði
og síðan þá er þetta búin að vera
full vinna fyrir okkur báða og rúm-
lega það.“
Saknaði þess að geta
ekki keypt sér núðlusúpu
Það var í miðri kreppu sem þeir Sigurður Jónas Eysteinsson og
Kristján Jörgen Hannesson ákváðu að láta gamlan draum rætast
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
krakka acidophilus
bre iðv i rk b landa fyr i r melt inguna
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og matvöruverslunum.www.gulimidinn.is Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall
Omega 3 fitusýra
Meiri virkni
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Læknar mæla
með selaolíunni
Selaolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Selaolía Meiri virkniEinstök olía
Óblönduð
– meiri virkni
MATUR
600 g lambakjöt/súpukjöt
2-3 gulrætur
1 stilkur sellerí
1 hvítlauksrif
svartur pipar
1 rófa
1 msk. fiskisósa eða salt eftir smekk
1½ msk. tamari-sojasósa
Meðlæti:
1-3 rautt chili fræhreinsað og fínsaxað
3 þumlar af engifer, fínt saxað
steinselja, taílenskt basil og/eða kórí-
ander eftir smekk
límónusneiðar
1 pakki hrísnúðlur, útvatnaðar í köldu
vatni yfir nótt, gjarnan í kæli.
Lýsing: Setið kjötið í vatn og lát-
ið suðuna koma hægt upp og fleyt-
ið alla froðu ofan af nokkrum sinn-
um þangað til froðan er að mestu
hætt að myndast. Eða hafið sama
hátt á og þið eruð vön við kjötsúpu-
gerð.
Bætið svo niðurskornum gulrót-
um, selleríi, fínt söxuðum hvítlauk,
svörtum pipar og örlitlu salti út í
og látið malla í 30-40 mínútur. Setj-
ið rétt nóg salt til að draga fram
bragðið af kjötinu en varist að salta
of mikið þar sem sósurnar sem
blandað er út í í lokin innhalda
einnig salt.
Setjið rófurnar út í og sjóðið í
u.þ.b. korter í viðbót eða þar til
grænmetið er orðið mjúkt.
Á meðan er gott að koma upp
suðunni á vatni til að sjóða í útvötn-
uðu hrísnúðlurnar.
Þegar súpan er að fullu elduð má
setja út í 1½ msk. tamari-sojasósu,
1 msk af fiskisósu eftir smekk (ef
fólk er ekki gefið fyrir fiskisósu má
setja aðeins meira af tamari og
salta eftir smekk). Varist að sjóða
súpuna lengi eftir að tamari-
sojasósan er komin út í þar sem
hún verður beiskari við eldun.
Fullútvatnaðar hrísnúðlur eiga
að taka innan við mínútu í suðu
þannig að best er að sjóða þær rétt
áður en súpan er borin fram. Skol-
ið síðan sterkjuna snögglega af
núðlunum með köldu vatni og velt-
ið þeim upp úr örlítilli matarolíu og
berið síðan fram í skál til hliðar.
Súpan er borin fram með skálum
af fínt söxuðum chili, engifer, gras-
lauk/vorlauk, ferska kryddinu og
límónusneiðum svo allir geti full-
komnað súpuna eftir eigin smekk.
Nauðsynlegt er að kreista
límónusneiðina yfir til að ljá súp-
unni enn ferskari blæ.
Ef japanskt spíral-mandólín er til
á heimilinu getur verið gaman að
gera núðlur úr rófum og bera fram
í stað hrísnúðla.
Íslensk kjöt-núðlusúpa
með asískum hitabeltisblæ
Morgunblaðið/Árni Sæberg