Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Garðar Cortes, óperusöngvari og stofnandi Íslensku óperunnar,skólastjóri og stofnandi Söngskólans í Reykjavík, er 75 ára ídag. „Skólinn er rétt að komast af stað á þessari önn og það er
allt við það sama þar. Við útskrifum einsöngvara og söngkennara og er-
um með alla aldursflokka í skólanum, allt frá tíu ára aldri. Nú eru rúm-
lega hundrað manns í námi í skólanum.“
Garðar er einnig stjórnandi Óperukórsins í Reykjavík og Karlakórs
Kópavogs. „Við í Óperukórnum verðum með okkar árlegu Mozart
Requiem-tónleika sem verða haldnir eftir miðnótt 5. desember nk. Svo
eru strákarnir í Karlakór Kópavogs á fullu að æfa fyrir Kötlumótið í
Reykjanesbæ, en þar verða átta hundruð karlar að syngja. Þá eru þeir
einnig að undirbúa heilmikið ævintýri í Borgarleikhúsinu milli jóla og
nýárs.“
Spurður um áhugamál segir Garðar þau vera tónlistina fyrst og
fremst. „Mér finnst gaman að garfa í gamalli íslenskri músík sem var
samin fyrir stóra kóra og hljómsveit snemma á síðustu öld. Ég hef mik-
inn áhuga fyrir Kalla Run., Emil Toroddsen og dr. Hallgrími Helgasyni.
Þeir eru allir algjörlega afskiptir en sérstakir og vel þess virði að kom-
ast á tónleikaskrá.“
Garðar segist ekki ætla að halda sérstaklega upp á afmælið, en tekur
á móti samstarfsfólki, vinum og ættingjum milli klukkan fimm og sjö.
Eiginkona Garðars er Krysztyna Cortes píanóleikari. Börn Garðars
eru Sigrún Björk kennari, Nanna María sem er fastráðinn söngvari við
óperuna í Noregi, Garðar Thór óperusöngvari og Aron Axel sem er að
klára mastersnám í óperusöng við Mozarteum í Salzburg.
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnandinn Garðar við æfingar á La traviata eftir Verdi en hann
stjórnaði hljómsveit og kór við uppsetningu óperunnar í Hörpu í fyrra.
Garfar í gamalli
íslenskri kórtónlist
Garðar Cortes er 75 ára í dag
A
uður fæddist í Reykjavík
24.9. 1965. Á æskuár-
unum bjó hún einnig tvö
ár í Bolungarvík og eitt
ár í London með for-
eldrum sínum og systur. Hún byrjaði
í Ísaksskóla sex ára, var síðan í
Hvassaleitisskóla og stundaði nám
við Kvennaskólann í Reykjavík. Sam-
hliða grunnskólanámi lærði Auður á
fiðlu í Barnamúsíkskólanum og fór
síðar í Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þaðan lauk hún einleikaraprófi í fiðlu-
leik árið 1983, aðeins 17 ára. Eftir ein-
leikarapróf fór Auður til Bandaríkj-
anna, þar sem hún stundaði nám um
átta ára skeið. Hún lauk BM-gráðu
með hæstu einkunn frá New England
Conservatory í Boston árið 1987 og
Master of Music-gráðu hjá hinum
virtu Almitu og Roland Vamos árið
1991 frá University of Minnesota.
Auður hefur sett svip á íslenskt
tónlistarlíf sem einleikari, kennari og
kammerleikari. Hún hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn.
Árið 1985 fékk hún C.D. Jackson-
verðlaunin sem framúrskarandi
strengjaleikari á hinni alþjóðlegu tón-
listarhátíð í Tanglewood þar sem hún
lék m.a. undir stjórn Leonards Bern-
steins og Seijis Osawa. Árið 1988
hlaut hún fyrstu verðlaun í The Schu-
bert Competition. Hún var valin
borgarlistamaður Reykjavíkur-
borgar 1991 og bæjarlistamaður Sel-
tjarnarness 2005.
Á námsárunum var Auður með-
limur í NEC Honors Quartet og
NEC Modern Music Ensemble. Hún
var jafnframt konsertmeistari
Minnesota Opera 1989-90.
Auður hefur komið víða fram sem
einleikari og í kammermúsík á alþjóð-
legum vettvangi, m.a. í Bandaríkj-
unum, Kanada, Japan, Kína og víða í
Evrópu. Hún hefur tekið þátt í tón-
listarhátíðum hérlendis og erlendis,
var einn af stofnendum píanótríósins
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari – 50 ára
Fjölskyldan Stefán Jón, Auður, Anna Katrín, Hafsteinn Atli, Lilja Hrund og María Björk með hundinn Líf.
Fiðluleikari á heimsvísu
Með nemendum Auður kennir á Tónlistarhátíð unga fólksins sumarið 2014.
Hinrik Dagur Gunnarsson og Þórhildur Vala Sigurðardóttir héldu tombólu fyrir
utan Nóatún í Austurveri. Þau söfnuðu 10.254 krónum sem þau gáfu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er
Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu
af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði
og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu
ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili.
Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450
zenus@zenus.is • zenus.is
Augljós kostur
5 ára
ábyrgð