Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 78
78 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú mátt ekki láta það henda þig að
geta ekki lokið við verkefni á tilskildum tíma.
Enginn er eyland og vertu því óhræddur við
að tjá öðrum hug þinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki er ósennilegt að þú hafir áhyggjur
af einhverju sem tengist vinnunni. En tvöfald-
ur efi gerir það ekki endilega að sannleika.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú gerir þér grein fyrir því í dag hve
miklum tökum vaninn hefur náð á þér.
Breyttu viðhorfi þínu til erfiðrar aðstöðu í
sambandinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Að stinga höfðinu í sandinn flækir
málin bara enn frekar þegar til lengri tíma er
litið. Reyndu að láta þér koma vel saman við
fólk án þess að hafna eigin sannleika.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er góður tími til að ræða fram-
tíðaráform þín við aðra. Að einhver þarfnist
þín er hið mesta mögulega hól.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú finnur sannarlega til góðmennsku í
garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna
mega sín. Reyndu að skipuleggja þig betur og
gefðu tómstundirnar ekki upp á bátinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er þér nauðsyn að fá útrás fyrir til-
finningar þínar. Komdu jafnvægi á þetta svo
þú getir komið einhverju í verk. Reyndu ekki
einu sinni að slá þessu á frest.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eyddu ekki tíma þínum eða orku
í að sannfæra aðra um að þú sért að gera
rétt. Afslöppun er góð fyrir hjartað og heilann
sem þarf að hreinsa út skipunina: vinna!
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú grípur til aðgerða, sérstaklega sem kosta
einhver fjárútlát. Taktu tillit til samferða-
manna þinna og þeir munu þá virða þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur lagt hart að þér og átt
svo sannarlega skilið að njóta launanna.
Notaðu ímyndunaraflið til að leita nýrra
lausna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú stefnir í að þú hittir fyrir þá
sem eru sama sinnis og þú og reiðubúnir til
þess að vinna málstað ykkar brautargengi.
Hristu af þér slenið, þú hefur líka þitt til mál-
anna að leggja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefðir gott af því að breyta til á
einhvern hátt, hvort sem er heima fyrir eða í
vinnunni. Reyndu frekar að vinna í þínum
eigin málum. Samræður í fjölskyldunni eru
þýðingarmiklar.
Fyrir hádegi á föstudaginn skrif-aði Fía á Sandi í leirinn:
Enn er þokan þung sem blý
þjáir landann óláns kvef.
Rétt er að finna ráð við því
reynum öll að taka í nef. :-)
Og um kvöldið varð Ágústi
Marinóssyni hugsað norður:
Í Aðaldalnum aftansól
engum veldur glýju
En eftilvill er alkóhól
í ísskápnum hjá Fíu :-)
Á þriðjudag var Fía í sólskins-
skapi enda sumarauki fyrir norðan:
Nú er sumar, nú er sól
nú er tími ljóða
og auðvitað er alkahol
eftir til að bjóða.
– aðeins út í kaffið trúi ég.
Á laugardaginn, sem var fimmti
dagur í þoku, hafði sr. Skírnir
Garðarsson skrifað þessa í Leirinn:
Þokuloftið þingeyskt er
þykkum hlaðið jónum.
Þar ákavíti og engifer
yljar Sandsins hjónum.
„Sumarauki enn“ skrifaði Fía á
Sandi:
Snjólaus eru flestöll fjöll
fossar stórir víða.
Lónin fyllast eflaust öll
enn er hiti og blíða.
Og svaraði sr. Skírni:
Þessi blíða einstök er
engan hrjáir bölið.
Komin eru krækiber
í krækiberjaölið.
Ólafur Stefánsson hafði skrifað í
Leirinn fyrir helgi:
„Það er kannski dálítið skrýtið,
en bara gott samt, að leirheimur
tekur sér venjulega frí um helgar.
Svona um rauðvínstímann, ca. 2
eftir hádegi, á föstudögum, færist
ró yfir Leirinn og það slokknar
smám saman á honum.
Í helgarfrí þeir fara’ á Leir,
fæðist naumast staka.
Lagaboðum lúta þeir,
leyfi á helgum taka.“
En Fía á Sandi lét engan eiga hjá
sér: „Það á ekki við um mig.
Eins og kannske á mér sést
oft ég kaupi bjóra
og yrki um helgar einna mest
er ég sit og þjóra.“
Ármann Þorgrímsson yrkir um
„átök í borgarpólitík í Reykjavík“
eftir Kastljós á mánudagskvöld:
Er að hefjast önnur lota
um ályktun sem fór úr böndum
Hafa má til heimanota
hörmungar í Austurlöndum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur um veðrið
Í klípu
„FLJÓTANDI EIGUR? ÞÚ MEINAR FYRIR
UTAN KAFFI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ VILT FÁ ENDURGREITT, SEGÐU ÞAÐ
HREINT ÚT! EKKI SEGJA MÉR EINHVERJA
LYGASÖGU UM AÐ HANN SÉ OF HÁVÆR.“
KVÖRTUNARDEILD
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem vekur upp
barnið í þér.
ÉG ÆTLA AÐ REYNA AÐ
VERA ÓSÝNILEGUR Í DAG
ÉG VEIT ALDREI HVAÐ
ÉG Á AÐ SEGJA Í
SVONA GLEÐSKAP
VÍSINDAMENN TELJA SIG HAFA FUNDIÐ LAGIÐ SEM LÆTUR FÓLKI
LÍÐA BETUR EN NOKKUÐ ANNAÐ. LAGIÐ ER EKKI NÝTT AF NÁLINNI
ÞVÍ ÞAÐ ER FRÁ ÁRINU 1978. LAGIÐ SEM UM RÆÐIR ER DON’T
STOP ME NOW MEÐ QUEEN EN TAKTURINN Í LAGINU ER HRAÐUR,
150 TAKTLÍNUR Á MÍNÚTU, OG TEXTINN FULLUR AF GLEÐI.
S J S G G S K
KK G KK Ý
ÞVÍ ÞA E F Á Á I U 1978. LAGI SE U I E O ’T
STOP E O E QUEE E TAKTU I Í LAGI U E A U ,
150 TAKTLÍ U Á Í ÚTU, OG TEXTI FULLU AF GLE I.
HEILSAÐU
BARA GEST-
GJAFANUM...
...OG TALAÐU UM
LITLA HLUTI!
ÉG HEF EKKI SÉÐ
ÞIG Í ALLAN DAG
TA-
DA!
Víkverji íhugar nú að láta rífa úrsér hálskirtlana. Læknirinn,
sem Víkverji treystir 110%, segir
nefnilega að við það muni ýmsir
kvillar, sem fylgt hafa Víkverja svo
lengi sem hann man eftir sér, mjög
líklega lagast. Hrotur, hálsbólga,
erfiðleikar við að kyngja, stöðugar
ræskingar og ýmislegt fleira er á
þeim lista. Það er nánast ótrúlegt að
Víkverja skuli ekki hafa komið til
hugar fyrr að láta gera þessa að-
gerð.
x x x
Einn er hins vegar galli á gjöfNjarðar. Víkverji er, eins og
hann hefur áður vikið að, nefnilega
af þeirri kynslóð sem ólst upp með
hinni merku bók Heimilislækninum.
Sú ágæta bók var þeirri náðargáfu
gædd að hún gat dagsljósi í dimmu
breytt. Minnsta nefrennsli varð eftir
lestur bókarinnar að ólæknandi
krabbameini og minnsti hósti ávísun
á holdsveiki. Sjálfur hefur Víkverji
verið á „grafarbakkanum“ oftar en
hann kærir sig um að muna, þökk sé
hinni ágætu bók.
x x x
Ekki bætir úr skák að Víkverji er íeðli sínu einstaklega forvitinn
maður. Hann var því vart búinn að
ákveða að hann ætti að láta slag
standa þegar hann ákvað að kíkja og
sjá hvað „Dr. Google“ hefði að segja
um málið. Víkverji hefði betur látið
það ógert; netið á það nefnilega til að
draga fram allar helstu öfgar mann-
legs lífs. Víkverji gat því lesið sér til
um allt það sem hafði farið úrskeiðis
við kirtlatökur; læknamistök, blæð-
ingar, að ekki sé minnst á sársauka.
Þegar Víkverji taldi að ekki væri
hægt að finna verri sögu kom ein-
hver annar með enn svakalegri lýs-
ingu á því hvernig tiltölulega einföld
aðgerð hefði breyst í martröð.
x x x
Eftir að hafa ráðfært sig við bestuvini sína innan heilbrigðisgeir-
ans hefur Víkverji þó sannfærst um
að sögur sem þessar séu undantekn-
ing frekar en regla. Vissulega er
gott að vera meðvitaður um mögu-
lega áhættu en öllu má ofgera. Vík-
verji þykist hafa lært sína lexíu af
þessu. Hún er einföld: „Ekki gúgla!“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, miskunn hans
varir að eilífu og trúfesti hans frá
kyni til kyns. (Sálm. 100:5)
SÖLUAÐILAR:
Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 | Gullúrið Mjódd s: 587-4100 | GÞ skartgripir og úr Bankastræti 12
s: 551-4007 | Meba Kringlunni s: 553-1199 | Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 |
Jón Sigmundsson skartgripaverslun Laugavegi 5 s: 551-3383 | Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 |
Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 | Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 |
Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 | Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 |
Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 | Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433