Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 70
Þjóðmál VOR 2012 69
vegar mjög kærunni, og kom hann í veg
fyrir, að Kress fengi lektorsstöðu í þýsku í
Háskóla Íslands, sem losnaði haustið 1935,
skömmu eftir að Kress hafði varið doktors
ritgerð sína við Berlínarháskóla (en slík
ritgerð svarar helst til meistaraprófsritgerðar
við norræna háskóla) .19
Timmermann lét ekki þar við sitja, heldur
kærði einnig Bruno Kress til utanlands
deildar Nasistaflokksins í Berlín fyrir að spilla
friði innan flokksdeildarinnar í Reykjavík .
Var Kress rekinn úr Nasistaflokknum
6 . mars 1936 samkvæmt úrskurði fyrsta
flokksréttar utanlandsdeildarinnar, og var
sök hans talin sú að hafa kært yfirmann
sinn án haldbærra röksemda, en ekki heldur
farið rétta boðleið með kæru sína . Kress
áfrýjaði úrskurðinum, og því gerðu menn
frá höfuðstöðvum flokksins sér ferð til
Íslands og yfirheyrðu Timmermann, Kress
og nokkra trausta flokksfélaga . Komust þeir
að þeirri niðurstöðu 13 . nóvember 1936,
að ýmsar aðfinnslur Kress ættu vissulega
við rök að styðjast, en hann hefði ekki átt
að kæra til Berlínar, heldur reyna að jafna
málin innan flokksdeildarinnar:
Nasistinn og gyðingakonan frá Þýskalandi auglýstu
bæði þjónustu sína í Morgunblaðinu 25 . september
1938 .
Sérhver félagi í hreyfingunni verður að
sýna aga og þeim mun meira sem hér
er um að ræða flokksfélaga, sem hvað
snertir menntun á að vera til fyrirmyndar
og vísa veginn og láta ekki smámuni og
persónulegt missætti koma í veg fyrir hið
mikilvæga uppbyggingarstarf hugsjónar
þjóðernisjafnaðarstefnunnar .
Svo virtist sem þessi rannsóknarnefnd vildi
setja Kress aftur inn í flokkinn, en það
reyndist ekki unnt nema með úrskurði
æðra dómsstigs Nasistaflokksins .20 Um
svip að leyti og nefndin var á Íslandi haustið
1936, gekk Kress að eiga Kristínu Önnu
Thoroddsen, og fluttust þau í leiguíbúð
að Laufásvegi 10 . Næstu árin hafði Kress
viðurværi sitt aðallega af skrifstofustarfi hjá
Landsmiðjunni og einkakennslu . Tók hann
einnig í ársbyrjun 1938 að sér þýskukennslu
í Menntaskólanum í Reykjavík .
Allt logaði þessi árin í deilum innan flokks
deildar nasista í Reykjavík, þar sem þeir
Timmermann ræðismaður og Bruno Kress
voru svarnir fjandmenn . Eitt sinn var grjót
hnullungi kastað inn um glugga á heimili
Timmermanns, svo að rúða splundraðist, og
voru þau hjónin sannfærð um, að þar hefði
Kress verið að verki .21 En í Berlín virðist
Kress hafa átt hauka í horni . Yfirmaður
utanlandsdeildar Nasistaflokksins, Ernst
Wilhelm Bohle, ákvað 16 . nóvember 1936
að skjóta máli hans til æðsta dómstóls
flokksins . Gaf sá dómstóll 27 . apríl 1938
út úrskurð í nafni sjálfs Foringjans, Adolfs
Hitlers, þar sem allar sakir á hendur Kress
voru felldar niður . Var hann á ný færður
athugasemdalaust til bókar sem félagi í
Íslandsdeild Nasistaflokksins þýska .22 Svo
vildi síðan til sumarið 1938, skömmu
eftir að Kress hafði verið tekinn aftur inn
í Nasistaflokkinn, að hann hitti í Reykjavík
þýskan málvísindamann, Bruno Schweizer,
sem starfaði fyrir rannsóknastofnun SS,