Þjóðmál - 01.06.2013, Page 8

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 8
 Þjóðmál SUmAR 2013 7 Píratar, fengu samtals 13,3%, sá fyrrnefndi 8,2% og sá síðarnefndi 5,1% . Sjálfstæðisflokkur er stærsti flokkur lands- ins, fékk 26,7% atkvæða og 19 þing menn . Fram sóknarflokkurinn er næst stærstur með 24,4% og 19 þing menn . Sam fylkingin fékk 12,9% atkvæða og níu þingmenn, VG með 10,8% og sjö þing sæti, Björt framtíð 8,4% og sex þingmenn og Pír atar fengu 5,1% og þrjá þingmenn . Allir stjórnarandstæðingar hljóta að fagna þessari niðurstöðu . Útreið ríkisstjórnarinnar er hrikaleg, öll fyrirstaða í hennar þágu brast . Hún er hin eina og sanna hrunstjórn Íslandssögunnar . II . Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís lands, fól Sigmundi Davíð Gunnlaugs syni, formanni Framsóknarflokksins, um boð til að mynda ríkisstjórn þriðjudaginn 30 . apríl eftir að forseti hafði rætt við for menn flokkanna sem eiga menn á þingi . Hinn 21 . maí 2013 sagði Ólafur Ragnar við Richard Quest, fréttamann CNN, þegar þeir ræddust við í London (birt er laus leg þýðing af mbl.is): „Ég valdi leiðtoga Framsóknarflokksins en hann lagði í kosningabaráttu sinni mesta áherslu á að takast á við hús næðisskuldir heim ilanna og beita þá vogunarsjóði, eða hvað sem þú vilt kalla þá, þrýstingi svo þeir næðu ekki fram þeim gríðarlega hagn aði sem þeir hugðust ná fram á íslensku banka- kreppunni . Það var mjög athyglis verður lýðræðis legur sigur og þess vegna veitti ég honum um boð til að leiða næstu ríkis stjórn og ég held að honum sé að takast það .“ Þetta er í fyrsta sinn sem forseti Íslands hlutast til um stjórnmál á þennan hátt við myndun ríkisstjórnar, að hann segist hafa falið manni umboð til ríkisstjórnar vegna stefnunnar sem hann boðaði í kosninga bar- áttunni . Hafi Ólafur Ragnar farið á kjörstað 27 . apríl er augljóst af þessum orðum hvar atkvæði hans féll . Má taka undir með þeim sem segja að nú hafi Ólafur Ragnar lokið vegferð sinni um völl íslenskra stjórnmála með því að snúa aftur til síns gamla flokks, Framsóknarflokksins . Þess má minnast að í bók Elíasar Snæ land Jónssonar, Möðruvallahreyfingin — bar áttu­ saga, er Gunnlaugs M . Sigmundssonar, föð ur Sigmundar Davíðs, oft getið sem sam herja Ólafs Ragnars á umbrotaárunum í kring um 1970 þegar Ólafur Ragnar reyndi að færa Framsóknarflokkinn til vinstri en varð að lúta í lægra haldi fyrir Ólafi Jóhannes syni og hans mönnum . Gunn- laugur M . yfir gaf þó aldrei Framsóknar- flokk inn eins og Ólafur Ragnar . Á vefsíðu minni sagði ég þriðjudaginn 21 . maí: „Undarlegt er að lesa um að Ólafur Ragnar Grímsson segist hafa valið Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að mynda ríkisstjórn á Íslandi af því að honum hugnaðist stefnan sem hann boðaði fyrir kosningar . Ólafur Ragnar fer hér enn einu sinni út fyrir hæfileg mörk í afskiptum af stjórnmálum og hann undir strikar afskiptasemi sína með því að kalla Sigmund Davíð til sín á Bessastaði á morgun . Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari með þessu? Að gera lítið úr Jóhönnu Sigurðardóttur og flokki hennar eða VG? Hann gerir Sigmundi Davíð eða nýrri ríkis- stjórn engan greiða með þessu .“ Miðvikudaginn 22 . maí hitti Ólafur Ú treið ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er hrikaleg, öll fyrirstaða í hennar þágu brast . Hún er hin eina og sanna hrunstjórn Íslandssögunnar .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.