Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 14
Þjóðmál SUmAR 2013 13
málsmeðferð . Þetta er rakið í bók Önnu
Funder með átakanlegum hætti . Smám
saman lagði Stasi þannig undir sig samfé-
lag ið og líf fólks . Þrígreining ríkisvaldsins
varð að hjómi og Stasi varð að ríki í ríkinu .
Á sama tíma var Stasi öflugasta njósna-
og gagnnjósnastofnun heims . Ekki endi-
lega vegna þess hve skilvirk hún var heldur
tryggði umfang Stasi stofnuninni ótrú-
lega yfirsýn yfir það sem gerðist í Austur-
Þýskalandi og reyndar líka í Vestur-
Þýskalandi . Með tímanum óx Stasi upp í
gríðar legt skrifræðisbákn sem stöðugt bætti
á sig verkefnum . Stasi sá þannig lands-
feðr un um fyrir lífvörðum og hafði hús-
bónda vald á flokksskrifstofunum . Stasi réð
meira eða minna öllu landamæraeftirliti og
vega bréfaskoðun og fylgdist nákvæmlega
með öllum flutningum á fólki og vörum
inn og út úr Austur-Þýskalandi . Stasi
stundaði víðtæk vopnaviðskipti og seldi
tækni og þekkingu þar sem hagsmunir
flokksræðisins kölluðu á . Stasi átti meira að
segja sigursælasta íþróttafélag landsins, FC
Dynamo Berlin, sem varð austur-þýskur
meistari oftast allra . Þar sem annars staðar
var lyfjanotkun grundvöllur íþróttaafreka í
alþýðulýðveldinu og skipti heilsa og velferð
íþróttamanna engu . Af því eru átakanlegar
sögur .
Undirróðursstarfsemi í Vestur-Þýska-
landi var stór þáttur í starfsemi Stasi
og fengu til að mynda liðsmenn Rauðu
herdeildar innar (RAF) þjálfun, vopn
og stuðning hjá Stasi . Tengslin við RAF
hafa ekki verið full rannsökuð en síðustu
handtökur á liðsmönnum RAF voru fram-
kvæmdar í austurhluta Þýskalands í júní
1990 . Þá voru 10 liðsmenn samtakanna
handteknir en þeir höfðu á sínum tíma
flúið til Austur-Þýskalands . Margt bendir
til þess að samstarf Stasi og RAF hafi verið
umtalsvert og er hugsanlegt að starfsmenn
Stasi hafi komið sjálfir að aðgerðum sem
talið var að RAF hafi staðið fyrir í Vestur-
Þýska landi .
Hluti alheimsbaráttu
kommúnismans
Á tímum kalda stríðsins litu Stasimenn svo á að starfsemi stofnunarinnar væri
hluti af alheimsbaráttu kommúnismans/
sósíal ism ans gegn heimsvaldastefnu hins
kapítal íska heims . Þessi barátta birtist
ekki síst í hinu klofna Þýskalandi, þar væri
baráttan hörðust og því bæri Stasi að vera
á verði . Öryggisráðuneytið heyrði beint
undir aðal ritara kommúnistaflokksins .
Því starfi gegndi Walter Ulbricht til 1971
en þá tók Erich Honecker við og gegndi
starfinu til loka, utan þess stutta tíma sem
Egon Krenz fékk lyklavöldin haustið 1989 .
Öryggismálin voru ekki undanskilin öðru
pólitísku starfi kommúnistaflokksins .
Ótvírætt er að fyrirmyndin að upp-
bygg ingu öryggiskerfis Austur-Þýska-
lands var sótt til Sovétríkjanna . Strax
eftir byltinguna 1917 höfðu bolsévikar
stofnað leynilögreglu til að berjast gegn
andbyltingaröflum og hryðjuverkum .
Leyni lögregla þessi fékk fljótlega viður-
nefnin rauða ógnvaldið en var í daglegu
tali kölluð Cheka eftir rúss neskri skamm-
stöfun heitis síns . Cheka hafði frá upphafi
nær ótakmarkaðar valdheimildir til að
upp ræta „andbyltingaröfl“ . Undir stjórn
Stalíns þróaðist Cheka (og arftakar eins og
GPU, OGPU, NKVD, NKGB) í stofnun
sem beitti aðferðafræði hryðjuverka innan
flokksins og úti í samfélaginu . Niðurstaðan
varð fullkomið ógnarríki í Sovétríkjunum
undir stjórn Stalíns . Þó að framkvæmdin
hafi mildast við fráfall Stalíns þá lifði
hug myndafræðin . Öryggislögreglan var
einn af hornstólpum Sovétríkjanna allt til
loka og ól af sér lík fyrirbæri í leppríkjum
þeirra .