Þjóðmál - 01.06.2013, Side 16

Þjóðmál - 01.06.2013, Side 16
 Þjóðmál SUmAR 2013 15 að einhver væri að fylgjast með . Sem dæmi um eftirlitsgetu Stasi þá var talið að stofnunin gæti hlustað á 20 .000 símtöl í senn í Austur-Berlín einni! Forstjóri Stasi Eins og gefur að skilja var þetta ríki ofan á ríkið þungur baggi fyrir efnahag Austur-Þýskalands sem var ekki beysinn fyrir . Útþensla Stasi hófst fyrir alvöru þegar Erich Mielke tók við sem forstjóri árið 1957 . Ulbricht vildi reyndar ekki veita Mielke aðgang að Politburo, æðstu stofnun flokksins, en það stöðvaði ekki Mielke sem jók völd sín nánast allt til loka . Í bók Önnu Funder er brugðið upp mynd af honum en hún telur hann hafa verið geðvilling (psychopath) . „Samstarfsmenn óttuðust hann, flokksfélagar óttuðust hann, verkamenn óttuðust hann og almenningur óttaðist hann,“ skrifar Anna Funder (Stasiland, bls . 70) . Mielke starfaði með NKVD, leynilögreglu Stalíns og tók þátt í borgarastyrjöldinni á Spáni . Þegar yfir lauk varð hann táknmynd alls þess sem fór úrskeiðis í Austur-Þýskalandi og það hlýtur að sæta undrun hve auðveldlega hann slapp frá uppgjörinu eftir fall alþýðulýðveldisins . Að lokum var hann ákærður fyrir morð á tveimur þýskum lögregluþjónum árið 1931 og dæmdur í sex ára fangelsi . Það fannst mörgum lítil refsing fyrir mann sem sumir líktu við Hitler og Himmler . En hvers konar þjóðfélag ól þetta lög reglu- ríki af sér? Margir virðast hafa þokkalega reynslu af Austur-Þýskalandi, þetta hafi jú verið hálfgert skríparíki með miklu eftirliti en Stasi-safnið í Berlín . Til vinstri: Erich Mielke, forstjóri Stasi .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.