Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 24
Þjóðmál SUmAR 2013 23
komið með krók á móti bragði . Með því
að leggja sæstreng til Bretlands er hægt
að selja orkuna svo dýrt, að allar virkjan ir
verða hagkvæmar . Bæði Geysir og Land-
mannalaugar færu lóð beint í nýtingar-
flokk .
Það hafa verið skrifaðir nokkrir ágætis pistlar um Hvell . Það er að sjálfsögðu
hægt að skoða myndina frá mörgum
hliðum . Einn pistlahöfundur sá í myndinni
hetju lega baráttu fyrir eignarréttinum .
Aðrir súpa hveljur yfir því hve litlu munaði
að heimska fortíðarinnar hefði haft betur
og eyðilagt einhverja mestu náttúruperlu
í veröldinni . Allir dást að samstöðunni í
sveitinni .
En í mínum huga er myndin fyrst og
fremst herhvöt . Hún er upphaf að barátt-
unni fyrir friðhelgi Mývatns . Ekki bara
heim ildarmynd og alls ekki sögulok . Bar-
áttu aðferðir „Jötnanna“ hafa breyst . Í stað
hót ana eru í boði gull og grænir skógar .
Með nýlegum lagabreytingum, svo sem til
dæmis á vatnalögum, er hægt að bera fé á
einstaka bændur og einstakar sveitarstjórnir
og rjúfa þannig samstöðu sveitanna .
Þingheimur samþykkti fyrir fáum mán-uð um síðan, að leyfa virkjanir sem
munu örugglega ganga af Mývatni dauðu .
Virkj anir á Þeistareykjum og Kröflu og
Bjarn ar flagi munu raska vatnsbúskap
svæð is ins . Fugla paradísin Mývatn mun
ekki lifa af þá brenni steinsmengun sem
af mun hljótast . Mý vatns svæðið, sem er
eitt hvert mesta augna yndi heims, mun
verða örum sett af bor möstr um, há-
spennu línum og öðrum mann virkj um .
Meirihluti þingmanna og þar á meðal for-
stöðumenn umhverfissinna á þingi sam -
þykktu eyðileggingu Mývatns þann 14 .
jan úar 2013 . Nokkrir mótmæltu eða sátu
hjá, sök um þess að þeim fannst ekki nóg
hart fram gengið . Þeir menn skipa nú
meiri hluta þings .
Við getum huggað okkur við að þegar
Mývatn verður á endanum eyðilagt til að
tryggja byggð á Húsavík, þá verður það
gert á faglegum forsendum .
Ef þjóðin vill vernda Mývatn, þarf hún að fara í stríð við virkjanajötnana .