Þjóðmál - 01.06.2013, Side 32

Þjóðmál - 01.06.2013, Side 32
 Þjóðmál SUmAR 2013 31 að slíkar bætur bjóðist einungis þeim sem eru fjárhagslega í alvarlegum vandræðum en dreifa þeim ekki út og suður til frískra og vinnufærra einstaklinga sem eru fullfærir á eigin vegum . Tannlæknakostnaður Næsta dæmi, sem ég vil nefna um sóun verðmæta innan velferðarkerfisins, er nýjasta útspil síðustu ríkisstjórnar, að niðurgreiða að fullu tannlækningar allra undir 18 ára aldri . Hver getur verið á móti því? Er ekki allra hagur að tannlækningar unga fólksins séu ókeypis? Lítum nánar á spurningar sem þessar . Þegar sagt er að tannlækningar séu ókeypis þá er um sjónhverfingu að ræða . Þorri fólks borgar fullt verð með sköttum sínum og gott betur . Blekkingin felst í því að þar sem kostnaðinum er dreift á tugi starfsára í gegnum skattkerfið er upphæðin svo lág um hver mánaðamót að fólk finnur ekki fyrir henni . Hins vegar, ef þessar litlu upphæðir væru lagðar saman yfir heila starfsævi kæmi út há tala, sem að öllum líkindum væri hærri en samanlögð upphæð vegna tannlækninga barna og unglinga ef borgað væri milliliðalaust . Ástæðan er m .a . sú að ríkið þarf í mörgum tilfellum að taka lán til að standa undir þessum gríðarlegu niðurgreiðslum þannig að auk beins kostnaðar vegna tannviðgerða þessa hóps leggst á umtalsverður vaxtakostnaður . Ef fólk borgar milliliðalaust, staðgreiðir fólk jafnan og losnar því við vaxtakostnaðinn . En hvernig á þá að ná niður kostnaði vegna tannviðgerða ungmenna? Með sama hætti og gildir um önnur svið, þ .e . auka frelsi og samkeppni . Enn þann dag í dag eru viðhafðar fjöldatakmarkanir þegar kemur að möguleikum stúdenta til að hefja nám í tannlækningum . Aðeins einn háskóli, HÍ, býður upp á nám í tannlækningum hér á landi og tekur einungis nokkra inn í deild- ina að loknu inntökuprófi . Mun fleiri sækja um en fá inngöngu . Aðeins þeir allra efstu á inntökuprófinu fá að hefja nám, jafnvel þótt margir hinna hafi staðist allar eðlilegar kröfur fyrir slíkt nám . Að minnsta kosti er ljóst að fjöldi tannlækna hér á landi væri margfalt meiri ef þeirri gervihindrun, sem þessi próf eru, væri rutt úr vegi . Þar með væri samkeppni tannlækna mun meiri, þjónusta þeirra myndi batna og síðast en ekki síst verð myndi verð á þjónustu þeirra lækka til muna . Þá hefur margoft komið fram, m .a . hjá formanni Tannlæknafélags Íslands, að tann- skemmdir má í flestum tilfellum fyrir byggja . Ef tannhirða er góð og neyslu sælgætis og gosdrykkja stillt í hóf, þá eru takmarkaðar líkur á að fá tannskemmdir, a .m .k . af því tagi sem verða íþyngjandi vegna kostnaðar . Augljóst er að þótt tannskemmdir einar og sér ýti við fólki til að hugsa vel um tennur sínar þá hefur kostnaður vegna hugsanlegra J ú, Pétur, leigusalinn, fær í vasann 20 .000 krónur um hver mánaðamót, gefins frá alþýðu landsins gegnum skattkerfið . Páll er hluti af þessari alþýðu og borgar með sköttum sínum hluta af þessum 20 .000 krónum alla starfsævina auk hluta af annarra manna húsaleigubótum, þannig að þegar upp er staðið borgar hann í raun þessar bætur sjálfur meira og minna . Það eina sem gerist í raun er að peningar Páls eru teknir úr öðrum vasa hans og settir í hinn .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.