Þjóðmál - 01.06.2013, Page 39

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 39
38 Þjóðmál SUmAR 2013 fordæma Bandaríkin (BNA) fyrir að leggja Kaliforn íu undir sig, taka hana frá hinum lötu Mexíkóbúum .13 Stríð BNA gegn Mexíkó hafi verið stríð siðmenningarinnar gegn villimennskunni . Bandaríkjamenn stuðli með mikilli atorku að uppbyggingu Kaliforníu . Þeir valdi því nú að heims- verslunin taki nýja stefnu, verði enn hnatt- rænni (les: hnattvæðingin er góð, fyrir hana má öllu fórna) . Hefðu slavnesku smáþjóðirnar einhvern tíma á kúgunarskeiði sínu hafið nýja bylt- ingarsögu þá hefðu þær með því sýnt lífshæfni sína . Þá hefðu byltingarsinnar átt að styðja slavana gegn Þjóðverjum og Ung- verjum . En slavarnir hefðu tekið aðra og ranga stefnu, stutt gagnbyltinguna . Vegna þess sé rétt að styðja Þjóðverja og Ungverja gegn slövunum . Ekki nóg með það, ekki sé hægt að tryggja sigur byltingarinnar nema með harðákveðnum terrorisma gegn þessum slavnesku þjóðum .14 Baráttan gegn þeim verði að vera gjöreyðingarbarátta sem ein- kenn ast skuli af tillitslausum terrorisma, ekki Þýskalands vegna, heldur vegna bylt- ingarinnar .15 Engels leggur þunga áherslu á að þeir Marx séu ekki haldnir þjóðernisfordómum . Þeir hafi löngum fordæmt þjóðernislega þröng- sýni Þjóðverja og telji pan-germanismann jafn vitlausan og pan-slavismann . Þeir hafi viðurkennt rétt hinna miklu sögulegu þjóða Evrópu, Frakka og Englendinga, gegn hinum vanþróuðu Þjóðverjum, samanber það að Engels taldi Frakka í rétti er þeir lögðu hin þýskumælandi héruð Elsass og Lothringen undir sig .16 Þess vegna styðji þeir ekki sveim - huga pan-slavista gegn Þjóðverjum og Ung- verjum . Áður fyrr hafi Þjóðverjar verið leiguþý afturhaldsins, nú séu slavar það, að Pólverj- um undanskildum . Engels fær ekki nógsamlega lofað hina uppreisnargjörnu Pólverja .17 Annað hljóð kemur í strokkinn þegar um aðrar slavnesk- ar þjóðir er að ræða, svik þeirra við bylting- una verði að hefna fyrir á þeim með blóðug- um hætti .18 Kannski að Stalín hafi lesið þessa grein og hún orðið honum innblástur til að refsa heilu þjóðunum einungis vegna þess að einstaklingar af þeirra bergi brotnir höfðu unnið með nasistum .19 Ég sagði áðan að Marx og Engels hefði verið illa við ýmsar slavneskar smáþjóðir en stærðin kom því lítið við, þeim var kannski verr við Rússa en aðrar slavneskar þjóðir . Marx er sagður hafa vantreyst Rússum og talið þá stefna að heimsyfirráðum .20 Enda bældu Rússar niður uppreisnartilraunir Pólverja og tóku þátt í að bæla uppreisn Ungverja niður . Samt segja Marx og Engels að Rússar mættu þó eiga að þeir hefðu stuðlað að framförum í Asíu og ættu því sjálfstæði skilið .21 E ngels segir jafn vitlaustað fordæma Þjóðverja og Ungverja eins og að fordæma Bandaríkin fyrir að leggja Kaliforn íu undir sig, taka hana frá hinum lötu Mexíkóbúum . Stríð Bandaríkjanna gegn Mexíkó hafi verið stríð siðmenningarinnar gegn villimennskunni . Banda- ríkjamenn stuðli með mikilli atorku að uppbyggingu Kaliforníu . Þeir valdi því nú að heims verslunin taki nýja stefnu, verði enn hnatt rænni (les: hnattvæðingin er góð, fyrir hana má öllu fórna) .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.