Þjóðmál - 01.06.2013, Page 44

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 44
 Þjóðmál SUmAR 2013 43 bréfi frá 1890 . Hann segir það hina mestu firru að gyðingar séu upp til hópa stór- kapítal istar, margir þeirra séu öreigar . Þess utan sé enginn af ríkustu mönnum BNA gyðingur, það sýni að auðstéttin sé ekki endi lega gyðingleg . Auk þess sé margt úrvals manna af kyni gyðinga, nægi að nefna skáldið Heinrich Heine og sjálfan Karl Marx .54 Alþjóðaremba marxismans Hvað sem öðru líður voru þeir félagar Marx og Engels alþjóðarembungar fram í fingurgóma . Það kemur m .a . fram í því hvernig Engels beitir hnatt væð- ingar rökum til að verja yfirtöku BNA á Kaliforníu . Kolakowski sagði réttilega að það liggi nánast innibyggt í kennikerfi marxismans að þjóðir eigi sér ekki raunverulega tilvist, aðeins stéttir (svo lengi sem stéttasam- félagið væri við lýði) . Þetta hafi marxistinn Rosa Luxemburg skilið þótt Marx og Engels hafi talað eins og þjóðir væru til og þannig ekki verið fyllilega samkvæmir sjálfum sér .55 Í Kommúnistaávarpinu segir að verka- menn eigi sér ekkert föðurland .56 Staðhæf- ing þessi verður að teljast í anda alþjóða- hyggju, jafnvel alþjóðarembu . Erfitt er að skilja Ávarpið og önnur meginrit þeirra félaga öðru vísi en svo að þjóðir (og trúarhópar) muni hverfa þegar sósíalisminn sigri á heimsvísu: „Öreigar allra landa sameinist!“57 Ekki mjög þjóðernisleg herhvöt, her- hvöt sem hafði ansi miklu meiri áhrif en æsingaskrif Marx og Engels um slava í lítt þekktum þýskum dagblöðum . Ég held að þeir hafi talið að sigur byltingar- og framfarasinnaðra stórþjóða yfir afturhalds- sömum smáþjóðum væri ekkert annað en áfangi á leið til hins hnattræna, þjóðvana sósíalisma . Öllu væri fórnandi fyrir hinn alþjóðlega sósíalisma, þar á meðal heilu þjóðunum . Þeim má fórna á altari alþjóðarembunnar . Marx og Engels staðhæfðu, Stalín fram- kvæmdi . Eða hvað? Tilvísanir 1 Þetta er útúrsnúningur út úr frægri tilvitnun í heimspekinginn Hegel, „hið raunverulega er hið skynsamlega og hið skynsamlega hið raunverulega“ . 2 Stefán Snævarr (2011): „Marx í boði banka . Um Kommúnistaávarpið“, Skírnir, haust, bls . 397–422 . 3 Sørensen (2011): Drømmen om det fullkomne samfunn. Oslo: Aschehoug . 4 Schwarzschild (1986): The Red Prussian. London: Pickwick Books (kom fyrst út árið 1948) . 5 Engels, „Der dänisch-preußische Waffenstillstand“, Neue Erfitt er að skilja Kommúnista­ávarpið og önnur meginrit Marx og Engels öðru vísi en svo að þjóðir (og trúarhópar) muni hverfa þegar sósíalisminn sigri á heimsvísu: „Öreigar allra landa sameinist!“ Ekki mjög þjóðernisleg herhvöt, her hvöt sem hafði ansi miklu meiri áhrif en æsingaskrif Marx og Engels um slava í lítt þekktum þýskum dagblöðum . Ég held að þeir hafi talið að sigur byltingar- og framfarasinnaðra stórþjóða yfir afturhalds sömum smáþjóðum væri ekkert annað en áfangi á leið til hins hnattræna, þjóðvana sósíalisma . Öllu væri fórnandi fyrir hinn alþjóðlega sósíalisma, þar á meðal heilu þjóðunum . Þeim má fórna á altari alþjóðarembunnar .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.