Þjóðmál - 01.06.2013, Page 48

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 48
 Þjóðmál SUmAR 2013 47 öskuhaugana . Það mun taka tíma að líma þau saman svo einhver mynd verði á . En öll él birtir um síðir . Nýafstaðnar kosn ingar skiluðu okkur von um bjart ari fram tíð . Formenn flokkanna sem mest báru úr býtum eru af öðru sauðahúsi en gömlu jálkarnir sem nú hverfa af valda- stólunum . Þeir eru ekki bara yngri og betur menntaðir, heldur, að ungra manna sið, líta þeir ekki á verkefnin sem tækifæri til hefnda . Fyrir þeim eru verkefnin áskorun til að takast á við; sigrast á vandamálunum og snúa sér síðan að því næsta . Þeir eru lausir við fortíðarbaggana sem hvíldu svo þungt á herðum forvera þeirra og hrunið hefur ekki dregið úr þeim kjarkinn . Þessir ungu menn eru af sömu kynslóð og unga fólkið okkar sem er að gera það gott úti um allan heim, fullt af sjálfstrausti sem hagsæld áranna fyrir hrun blés þeim í brjóst . Sér við hlið hafa þeir karla og konur af sama upplagi . Kalli þjóðarinnar á nýtt fólk hefur verið svarað . Framtíðin er hér . Að nýir tímar væru gengnir í garð var sýnilegt strax frá byrjun . Það var góð hugmynd hjá Sigmundi Davíð að kæla málið eftir að forsetinn fékk honum stjórn- ar myndunarumboðið í hendur . Það tók fjölmiðla nokkurn tíma að átta sig á hvað væri á seiði en að endingu kviknaði ljós á perunni . Hið óhugsandi hafði gerst . Slökkt hafði verið á flóðljósum fjölmiðlanna . Allar tilraunir til að tendra þau aftur enduðu sem vöfflusoppa á þeirra eigin fési . Fyrir bragðið höfðu spunavélar taparanna engan þráð að spinna og ró færðist yfir þjóðlífið sem orðið var langþreytt á látunum . En þótt stjórnarmyndunarviðræðurn ar hafi farið fram í kyrrþey stendur tím- inn ekki í stað . Kannski sem betur fer því ekki er hættandi á að ögra geðheilsu heillar þjóð ar, sem lifað hefur á hnífsegginni frá hruni, með þögninni einni . Útkoma skýrslu svo kall aðs Samráðsvettvangs um aukna hag­ sæld lífg aði því upp á umræðuna meðan beðið var eftir niðurstöðu samninga mann- anna . Varla hefur hvarflað að nokkrum manni og allra síst þeim sem í hópnum störfuðu að allt sem á borð var borið í skýrslunni væri brúklegt og umsvifalaust samþykkt . Flestir hafa þó eflaust vonað að tillögurnar fengju skoðun áður en þeim væri sópað af borðinu . En kannski var það megrunarkúrinn sem fréttamenn höfðu mátt þola dagana á undan að hjólað var strax í þann hóp sem líklegastur var til að andæfa breytingum . Sam ráðsvettvangur um aukna hagsæld hafði semsagt komið auga á að menntamálin þyldu smásnyrtingu í kringum eyrun . Og eins og við var búist hóf menntakórinn upp raust sína og hafnaði „fjárhagslegum niðurskurði, fækkun skóla, fækkun kennara, aukinni kennsluskyldu“ og öllu því sem talið er ganga á heilagan samningsrétt kennara . Skýrslan var úthrópuð sem „exel-æfing“, L agt var til atlögu við stjórn-endur Seðlabanka Íslands af logandi heift . Gilti einu þótt reiðin beindist aðeins að einum, skaðinn var allra eða eins og stríðsherrar orða það gjarnan: „Þeir lentu í skotlínunni .“ Í kjölfarið fylgdi árásin á stjórnarskrána, árásin á fullveldið og fyrrverandi forsætisráðherra, árás á sjávarútveg og landsbyggðina og þegar ríkis- stjórnin varð uppiskroppa með átakamálefni var spjótunum beint að eigin liðsmönnum . . .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.