Þjóðmál - 01.06.2013, Page 49

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 49
48 Þjóðmál SUmAR 2013 en það ku vera óræk sönnun þess hve afspyrnuvitlaus hún væri . Galdraprik inu var veifað og foreldrar kallaðir til vitnis um ágæti status quo í kennslumálum . Vísir og Bylgjan gerðu könnun og í ljós kom að 51% þátttakenda telja ástæðulaust að fækka framhaldsskólum og hagræða í rekstri . Þetta kom svo sem ekki á óvart . Það er þó varla til að styrkja mál staðinn að fjaðrafokið sem hið galvaska heima varnarlið þyrlaði upp bar þess merki að lestu r skýrslunnar hafi verið aukaatriði . Hvergi var því haldið fram í skýrslunni að skera ætti niður fjárframlög til menntamála, leggja niður þá skóla sem nú eru starfræktir eða talað um að fækka kennurum . Hins vegar var bent á að grunnskólinn hér sé 22% dýrari en meðaltalið á hinum Norður lönd- unum á meðan fjárveitingar til fram halds- og háskólamenntunar eru langt und ir meðaltalinu . Í skýrslunni er því haldið fram að framleiðni grunnskólans mætti auka um fjórðung með því að auka kennslu- hlutfall, stytta nám og stækka skóla . Yfir um og allt um kring þeirri orðræðu svífur brottfallið úr framhaldsskólanum, fíllinn í stofunni sem að drjúgum hluta má skrifa á reikning grunnskólans . Einhver með allt önnur gleraugu hefði lesið skýrsluna svo að hagræðing í kennslu, nýbreytni í kennslu háttum og tilflutningur fjármagns milli skóla stiga gæti aukið hagsæld . En gler augna skortur hrjáir því miður ákveðna hópa í sam félaginu . Nú er það svo að eitt það fyrsta sem ég heyrði nýjan menntamálaráðherra lýsa yfir var að menntamál væru líka efna- hags mál . Eyrun sperrtust . Menntun er sem sagt verðmæti í sjálfum sér . Þetta er kú vend ing frá pólitískri innrætingu í nýrri aðal námskrá menntamálaráðherra hinnar „hreinu vinstristjórnar“, þar sem fram leiðsla full vax inna umhverfisaðgerðasinna er tal ið helsta hlutverk menntastofnana . En eftir að fyrstu upphrópanirnar um skýrsl una hljóðn uðu hefur umræðan verið hóf stilltari um leið og hún fluttist til skólastjórn enda sem þekkja vandamálin og bera ábyrgð á framkvæmd menntastefnunnar . Ýmislegt fróðlegt kemur þar fram og má meðal annars nefna Morgunblaðsgreinar Atla Harðarsonar skólameistara, sem bendir á að raunbrottfall sé minna en Pisa-rann- sóknin gefur til kynna vegna mis munar á brautskráningarkröfum . Ennfremur vísar Atli í rit OECD, Education at a Glance 2012, þar sem fram kemur að hér á landi ljúki hærra hlutfall fólks, á aldrinum 25–64 ára, háskólagráðu en að meðaltali í OECD-löndunum, sem bendir til betri nýtingar stúdentsprófsins hér en víðast annars staðar . Það bætir þó ekki stöðu þeirra sem falla frá námi . Þeim þarf að beina í farveg sem er þjóðhagslega hagkvæmari en að mæla göturnar . Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, kom í viðtal á Bylgjuna og lýsti nýjum kennslu- E itt það fyrsta sem ég heyrði nýjan menntamálaráðherra lýsa yfir var að menntamál væru líka efna hagsmál . Eyrun sperrtust . Menntun er sem sagt verðmæti í sjálfum sér . Þetta er kú vending frá pólitískri innrætingu í nýrri aðalnámskrá menntamálaráð - herra hinnar „hreinu vinstri- stjórnar“, þar sem fram leiðsla fullvaxinna umhverfisaðgerða- sinna er talið helsta hlutverk menntastofnana .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.