Þjóðmál - 01.06.2013, Side 53
52 Þjóðmál SUmAR 2013
Ólafur Hannesson
Feigðarför
Í tæplega fjögur ár hefur aðild að Evrópu-sambandinu (ESB) vofað yfir okkur
Íslendingum . Aðlögunarsinnar hafa róið að
því öllum árum að reyna að sannfæra fólk
um að það sé okkur bæði til fjár og ham ingju
að ganga í ESB .
Evrópusambandið er samband 27 ríkja .
Þessi ríki eru eins mismunandi og þau eru
mörg . Sum eru smá og eru einungis með
nokk ur hundruð þúsund íbúa . En innanborðs
eru einnig gömlu stórveldin sem hvert um
sig er með íbúafjölda sem telur milljóna tugi .
Menn ing og saga þessara þjóða er ólík og þær
teng ingar sem íbúar þess hafa við ESB, og
aðrar þjóðir innan sambandsins, mismiklar .
Ég vil vita
Samtök aðlögunarsinna, JÁ Ísland, hafa auglýst úti um allar grundir að fólk vilji
vita hvað komi upp úr „pakkanum“ . Ég
get bent ykkur, sem viljið vita, á að það eru
fjölmargar greinar og önnur skrif þar sem
þið getið fengið að vita hvað aðild að ESB
felur í sér, það er ekki um að ræða einhvern
dularfullan pakka þar sem innihald fæst
einungis með því að taka þátt í ströngu
aðlögunarferli áður en fullbúinn samningur
lítur dagsins ljós . Hér á eftir mun ég svara
nokkrum atriðum sem aðlögunarsinnar setja
fram sem ástæður fyrir aðild .
Fullveldið mitt, fullveldið þitt
og fullveldið okkar
Sumir aðlögunarsinnar halda því fram að við missum ekki fullveldi við að ganga í
ESB, þvert á móti munum við auka fullveldi
okkar . Enginn maður, sem hugsar í alvöru,
getur samt haldið öðru fram en að með aðild
að ESB felist fullveldisframsal . Við erum með
aðild að færa ESB hluta af fullveldi okkar á
silfurfati . Nú benda sumir á að við séum
þegar í EES og þar með séum við nú þegar
búin að framselja fullveldi okkar . Þetta er að
vissu leyti rétt . Við erum búin að framselja
hluta af fullveldi okkar með aðild okkar að
EES, en það er í ákveðnum málaflokkum
sem það á við, en við aðild að ESB gefum
við eftir fullveldi með víðtækari hætti sem og
í fleiri málaflokkum svo sem í utanríkis- og
sjávarútvegsmálum svo að fáein dæmi séu
nefnd .
Nú er það raunar svo að ESB er í sí felldri
þróun og viðurkenndi núverandi utan-
ríkis ráðherra, sem hart hefur barist fyrir
inngöngu í ESB, fyrir stuttu að ESB í dag sé
ekki alveg það sama og ESB þegar við sóttum
um . Hann nefnir að fullveldisframsalið í dag
sé orðið meira en þegar sótt var um aðild,
en það liggur meðal annars í samhæfðari
aðgerðum í fjármálum evruþjóðanna og
leiða til að sporna við hruni evrunnar .